Læknisfræði
Umsókn um háskólanám
BS - 180 einingar
ISCED flokkur: 0912
BS nám í læknisfræði er fullt nám í þrjú ár og fyrsta skrefið í átt að læknastarfi.Inntökupróf er í námið.
Kennd er undirstaða í eðlis- og efnafræði, starfsemi mannslíkamans, samskipti við sjúklinga og líkamsskoðun, siðfræði læknisstarfsins, meinafræði og lyfjafræði.
Er námið fyrir þig?
Langar þig að verða læknir, stunda vísindarannsóknir eða hvoru tveggja?
Viltu læra allt um mannslíkamann og starfsemi hans?
Viltu stunda krefjandi nám sem byggir á líf- og raunvísindum?
Hefur þú áhuga á að vinna náið með fólki?
Langar þig í nám sem er bæði bóklegt og verklegt?
Langar þig í grunnnám sem býður upp á fjölbreytta möguleika á framhaldsnámi?
BS nám í læknisfræði er fyrsta skrefið í læknanámi en inntökupróf er í námið.
Um hvað snýst námið?
Markmið og sýn læknanámsins
Markmið læknanámsinsAð skila íslensku samfélagi læknum sem geta veitt hágæða heilbrigðisþjónustu innan lands sem utan með framúrskarandi kennslu og nýsköpun í rannsóknum. Námið elur af sér fyrirmyndar lækna sem starfa saman að því að ástunda félagslega ábyrgar lækningar grundvallaðar á vísindum.
Sýn læknanámsinsLæknanám við Háskóla Íslands stefnir að því að verða öðrum læknaskólum fyrirmynd ásamt því að hafa jákvæð áhrif á heilsu og velferð íslensks samfélags með menntun og rannsóknum.
Uppbygging náms
Á fyrsta og öðru ári eru kenndar undirstöðugreinar eins og efnafræði og eðlisfræði. Einnig eru kenndar greinar sem nauðsynlegar eru til þess að skilja starfsemi mannslíkamans:
líffærafræði
vefjafræði
frumulíffræði
fósturfræði
lífeðlisfræði
lífefnafræði
Fjallað er um gerð líkamans, vefja hans og líffæra. Einnig er fjallað um frumur er mynda líffærin, tengsl þeirra og starfsemi. Ýmsir þættir læknisstarfsins eru kynntir, t.d. samskipti við sjúklinga og aðferðir til að viðhalda þekkingu.
Á þriðja námsári læra nemendur um ýmsa þætti er truflað geta eðlilega uppbyggingu og starfsemi líkamans og valdið sjúkdómum (meinafræði, ónæmisfræði, veirufræði og sýklafræði) og grunn að fyrstu meðferðarúrræðum í formi lyfjagjafa (lyfjafræði).
Í lok þriðja árs er 10 vikna rannsóknatími þar sem læknanemar vinna að sjálfstæðum rannsóknum undir handleiðslu kennara. Margir nemendur kjósa að vinna verkefnin erlendis og geta m.a. farið sem skiptinemar til Norðurlandanna eða annarra landa í Evrópu á vegum Nordplus eða Erasmus. Nemendur geta einnig dvalið erlendis sem skiptinemar á öðrum tímabilum í náminu.
Mat á fyrra námi
Hafi nemendur lokið sambærilegum námskeiðum (að einingafjölda og innihaldi) og þeim er ætlað að taka samkvæmt skipulagi í læknisfræði í kennsluskrá HÍ, geta þeir sent inn formlega beiðni um mat á fyrra námi innan 2ja vikna frá því að nám á viðkomandi misseri hefst. Einkunn í þeim námskeiðum sem metin eru skal ekki vera lægri en því sem nemur 6,0 í einkunnakerfi Háskóla Íslands og aldur þeirra prófa skal ekki vera meiri en 3-4 ár að jafnaði.
Hafi námskeið sem óskað er eftir að verði metið verið lokið við annan háskóla þarf einnig að skila inn staðfestu afriti af prófvottorði ásamt námskeiðslýsingu frá viðkomandi háskóla til skrifstofu læknadeildar. Deildin aflar umsagnar umsjónarkennara í viðkomandi grein áður en ákvörðun um mat er tekin.
Annað
Námið veitir aðgang að kandídatsnámi í læknisfræði
Námsstig: Grunnnám, BS
Hefst: Haustönn 2026
Námstími: 3 ár
Umsóknartímabil: 28. febrúar 2026 - 20. maí 2026
Námsform: Staðnám
