Þýska
Umsókn um háskólanám
BA - 180 einingar
ISCED flokkur: 0231
Menntun í þýsku opnar dyr að málsvæði sem er okkur Íslendingum mjög mikilvægt í menningar-, stjórnmála- og efnahagslegu tilliti. Þýska er móðurmál um 90 milljóna Evrópubúa og opinbert tungumál fimm evrópskra ríkja sem við tengjumst með margvíslegum hætti í alþjóðlegu samstarfi.
Er námið fyrir þig?
Hefur þú áhuga á menningu og sögu Þýskalands?
Talar þú þýsku en vilt bæta við færni þína?
Hefur þú gaman af tungumálum?
Viltu vinna fjölbreytt verkefni undir handleiðslu helstu sérfræðinga landsins í þýsku?
Viltu fjölbreytt úrval námskeiða sem eru á þínu áhugasviði?
Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?
Um hvað snýst námið?
Í námi í þýsku er lögð áhersla á að nemendur nái sem bestum tökum á þýskri tungu og afli sér þekkingar og skilnings á margbreytileika hennar og þeirri menningu sem hún endurspeglar.
Meðal viðfangsefna
Rit- og talfærni í þýsku
Þýsk málfræði
Þýskur framburður
Þýðingar
Þýskar bókmenntir
Menning og saga þýska málsvæðisins
Þýska í ferðaþjónustu
Þýskar kvikmyndir
Kennslufræði þýsku sem erlent mál
Námskeiðin eru fjölbreytt: Sum eru hagnýt og snúast um að ná tökum á þýsku í ræðu og riti; önnur veita yfirgripsmikla þekkingu á bókmenntum, menningu og þjóðlífi þýska málsvæðisins; í enn öðrum er fræðileg lýsing tungumálsins í brennidepli. Auk þess er boðið upp á námskeið í þýðingum, þýsku í ferðaþjónustu, þýskum kvikmyndum og kennslufræði þýsku sem erlends máls.
Kennsluhættir
Þýska er einkum kennd í æfinga- og umræðuformi og að nokkru leyti í formi fyrirlestra, auk þess sem heimavinna, fjölbreytt verkefnavinna og ritgerðasmíð er veigamikill þáttur í náminu.
Á öðru misseri námsins er efnt til námskeiðs í háskólaborginni Tübingen í Suður-Þýskalandi. Auk þess er hægt að taka hluta þýskunámsins sem skiptinám í þýskumælandi landi.
Í greininni eru iðulega starfandi þýskir háskólanemar sem eru í starfsþjálfun við HÍ og bjóða þýskunemum upp á fjölþætta þjónustu á einstaklingsgrundvelli eða í litlum hópum, svo sem talæfingar, tilsögn í málfræði eða aðstoð við samningu og frágang kynninga og ritgerða.
Möguleikar í námi
Þetta nám er líka hægt að taka sem 120 eininga aðalnámsgrein eða 60 eininga aukanámsgrein með öðru námi. Til dæmis þýska og viðskiptafræði. Ljúka þarf 180 einingum til að útskrifast með BA-próf.
Taka má þýsku sem aukagrein til BA-prófs með öllum greinum Hugvísindasviðs og ákveðnum greinum af öðrum sviðum, svo sem ferðamálafræði, stjórnmálafræði, félagsfræði og hagfræði.
Nemendur í grunnnámi í tölvunarfræði geta valið svokallaðan tungumálapakka í þýsku (30 einingar) án sérstaks samþykkis deildar
Nemendur í 180 eininga grunnnámi í ferðamálafræði geta valið námskeið úr tungumálapakka þýskunnar án sérstaks samþykkis námsbrautar
Nemendur í vissum greinum geta einnig tekið stök námskeið í þýsku sem valnámskeið
Í eins árs diplómanámi í þýsku er lögð megináhersla á hagnýta málnotkun, menningarmiðlun og þekkingu á þjóðlífi þýskumælandi ríkja.
Námsstig: Grunnnám, BA
Hefst: Vorönn 2025
Námstími: 3 ár
Umsóknartímabil: 15. september 2025 - 1. desember 2025
Námsform: Staðnám eða Fjarnám
Meðferð persónuupplýsinga
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
