Eðlisfræði
Kjörsvið: Eðlisfræði með áherslu á stjarnvísindi
Umsókn um háskólanám
BS - 180 einingar
ISCED flokkur: 0533
Eðlisfræðin er meðal fjölbreyttustu námsgreina raunvísinda og verkfræði, í senn skemmtileg og hagnýt.
Námið veitir þekkingu og færni til að takast á við margvísleg verkefni á sviði eðlisfræði og skyldra greina.
Er námið fyrir þig?
Hefur þú áhuga á alheiminum?
Langar þig að skilja hvernig allt virkar?
Hefur þú gaman af því að safna gögnum, mæla og reikna?
Viltu vinna fjölbreytt verkefni undir handleiðslu helstu sérfræðinga landsins í eðlisfræði?
Viltu geta valið úr fjölbreyttu úrvali námskeiða á þínu áhugasviði?
Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?
Um hvað snýst námið?
Eðlisfræðin er meðal fjölbreyttustu námsgreina raunvísinda og verkfræði. Hún er í senn skemmtileg og hagnýt.
Námið veitir þekkingu og færni til að takast á við margvísleg verkefni á sviði eðlisfræði og skyldra greina.
Í boði eru tvö kjörsvið
Eðlisfræði
Eðlisfræði með áherslu á stjarnvísindi
Allir nemendur taka sömu kjarnanámskeið en námskeiðaúrval greinist á milli kjörsviða.
Meðal viðfangsefna
Þyngdarbylgjur
Fjarreikistjörnur
Nanótækni
Skammtafræði
Afstæðiskenningar Einsteins
Heimsfræði
Svarthol
Varmafræði
Tvíeðli ljóss
Kjarna- og öreindafræði
Eðlisfræði þéttefnis
Mæliaðferðir og tilraunauppsetning
Námsstig: Grunnnám, BS
Hefst: Haustönn 2025
Námstími: 3 ár
Umsóknartímabil: 1. mars 2025 - 5. júní 2025
Námsform: Staðnám
Meðferð persónuupplýsinga
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
