Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Tölvunarfræði

Kjörsvið: Almenn tölvunarfræði

Umsókn um háskólanám

MS - 120 einingar

ISCED flokkur: 0613

Í meistaranámi í tölvunarfræði fræðast nemendur meðal annars um áhrif tölvutækninnar á samfélagið og fá einnig reynslu af nýtingu hennar innan ýmissa sviða. Nemendur læra um möguleika tölva til að leysa verkefni og takmarkanir á leysanleika verkefna.

Nemendur geta valið á milli þriggja kjörsviða: Almenn tölvunarfræði, Máltækni og Netöryggi, sem snýst líka um tölvuöryggi.

Er námið fyrir þig?

  • Vilt þú öðlast sérfræðiþekkingu á tilteknu sviði tölvunarfræðinnar og dýpka skilning þinn?

  • Hefur þú áhuga á því að stunda rannsóknir?

  • Vilt þú góðan undirbúning fyrir störf sem reyna á frumkvæði og sjálfstæði?

  • Vilt þú góðan undirbúning fyrir doktorsnám í skyldum greinum?

Um hvað snýst námið?

Tölvunarfræði er fjölbreytt svið sem tengist mörgum öðrum fræðasviðum. Greinum tölvunarfræðinnar má skipta í fræðilegar og verklegar greinar, þar sem þær fræðilegu reyna að svara grundvallar spurningum sem snúa að reiknanleika en þær verklegu hafa meira hagnýtt gildi með það að markmiði að búa til hugbúnað sem auðvelt er að nota og gagnast sem flestum.

Uppbygging náms

Meistaranám í tölvunarfræði er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára.

Námið skiptist í:

  • Námskeið, 60 - 90 einingar

  • Rannsóknarverkefni, 30 - 60 einingar

Námskeið eru valin í samráði við umsjónarkennara.

  • Ef teknar eru 60 einingar í námskeiðum skulu að minnsta kosti 30 einingar vera námskeið merkt TÖL, HBV eða REI

  • Ef teknar eru 90 einingar í námskeiðum skulu að minnsta kosti 45 einingar vera námskeið merkt TÖL, HBV eða REI

Kjörsvið:

  • Almenn tölvunarfræði - Með almenna tölvunarfræði sem kjörsvið sérhæfa nemendur sig gjarnan á ákveðnu sviði svo sem í fræðilegri tölvunarfræði, gagnvirkri tölvunarfræði eða hugbúnaðarþróun.

  • Máltækni - Þverfaglegt rannsóknar og þróunarsvið sem spannar meðal annars tölvunarfræði, málvísindi, gervigreind, tölfræði og sálfræði. Með það að markmiði að þróa búnað sem getur unnið með, skilið og myndað mannlegt mál þannig að það verði nothæft í samskiptum manns og tölvu.

  • Netöryggi - Með netöryggi sem kjörsvið öðlast nemendur sterka verklega og fræðilega færni til að verja netkerfi, tölvur, forrit og stofnanir gegn tölvuárásum. Rannsóknarstofur okkar gera nemendum kleift að setja upp aðstæður úr raunheiminum til að tileinka sér hagnýta reynslu af öryggismálum. Kjörsviðið er samstarfsverkefni við Háskólann í Reykjavík og felur auk þess í sér fjarkennslunámskeið frá evrópskum háskólum (t.d. NTNU). Kjörsviðið er kennt á ensku.

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á íslensku eða enska. Flestar kennslubækurnar eru á ensku.

Meistaraverkefnin eru oft hagnýt og unnin í samvinnu við fyrirtæki eða stofnanir. Verkefnin geta sprottið af áhuga nemanda á tilteknu viðfangsefni eða tengst rannsóknarverkefnum kennara.

Meginmarkmið

Miðað er að því að nemendur öðlist dýpri þekkingu á hugrænum aðferðum og hugbúnaðartækni sem nýtist við lausn sértæks verkefnis innan tölvunarfræðinnar sem og dýpri skilning á möguleikum tölva til að leysa verkefni og takmörkunum á leysanleika verkefna.

Annað

Meistaragráða í tölvunarfræði opnar möguleika á doktorsnámi.

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Meistaranám, MS

Hefst: Vorönn 2024

Námstími: 2 ár

Umsóknartímabil: 13. september 2024 - 15. október 2024

Námsform: Staðnám

haskolanam logo

Meðferð persónuupplýsinga

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið