Fara beint í efnið
Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Uppeldis- og menntunarfræði

Kjörsvið: Jákvæð sálfræði í uppeldi og menntun

Umsókn um háskólanám

MA - 120 einingar

ISCED flokkur: 0111

Í meistaranámi í uppeldis- og menntunarfræði búa nemendur sig undir fjölbreytileg störf við rannsóknir á sviði uppeldis og kennslu, menntunar og umönnunar eða störf þar sem rannsóknir eru nýttar við stefnumótun og stjórnun í skólakerfinu sem og annars staðar í atvinnulífinu. Lögð er áhersla á sveigjanlegt nám meðal annars til að koma til móts við nemendur sem vilja stunda nám samhliða vinnu.

Er námið fyrir þig?

  • Ert þú með BA próf úr uppeldis- og menntunarfræði?

  • Langar þig að dýpka skilning þinn á mikilvægum viðfangsefnum á sviði menntunar, skóla og einstaklingsþroska?

  • Vilt þú fara í sveigjanlegt framhaldsnám?

  • Vinnur þú náið með börnum eða ungmennum?

Um hvað snýst námið?

Þverfræðilegt meistaranám í uppeldis- og menntunarfræði er ætlað BA nemum úr uppeldis- og menntunarfræði og skyldum greinum, kennurum og stjórnendum á öllum skólastigum, og öðrum sem vinna náið með börnum og ungmennum.

Í náminu er leitast við að tengja verkefni við skóla og annan vettvang menntunar og uppeldis, svo og rannsóknir á fræðasviðinu.

Námið veitir nemendum tækifæri til að dýpka skilning sinn á mikilvægum viðfangsefnum á sviði menntunar, skóla og einstaklingsþroska. Námið leggur einnig grunn að fræði- og rannsóknarstörfum á þessum sviðum.

Uppbygging náms

Námið er 120 einingar og er skipulagt sem fullt nám til tveggja ára. Einnig er hægt að stunda hlutanám í þrjú til fjögur ár.

Áhersla er lögð á að nemar geti valið um áherslur námsins með hliðsjón af eigin áhuga, rannsóknarviðfangsefni og áherslum í starfi.

Nemendur velja á milli eftirfarandi kjörsviða:

Námið er mismunandi uppsett eftir kjörsviðum en skiptist í:

  • Skyldunámskeið

  • Bundið val

  • Lokaverkefni

  • Valnámskeið

Fyrirkomulag kennslu

Kennsla og próf fara fram á íslensku.

Nemendur geta stundað námið á þeim hraða sem þeim hentar best og er lögð áhersla á sveigjanlegt nám sem er blanda af staðnámi og fjarnámi.

Meginmarkmið

Markmið námsins er að búa nemendur undir fjölbreytileg störf við rannsóknir á sviði uppeldis og kennslu, menntunar og umönnunar eða störf þar sem rannsóknir eru nýttar við stefnumótun og stjórnun í skólakerfinu sem og annars staðar í atvinnulífinu.

Annað

Einnig er boðið upp á:

  • 60 eininga viðbótarpróf á meistarastigi í uppeldis- og menntunarfræði

Námið veitir aðgang að doktorsnámi

  • Menntavísindi, Ph.D.,180-240e

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Meistaranám, MA

Hefst: Vorönn 2025

Námstími: 2 ár

Umsóknartímabil: 15. september 2025 - 15. október 2025

Námsform: Staðnám eða Fjarnám