Íslenskukennsla
Umsókn um háskólanám
MA - 120 einingar
ISCED flokkur: 0232
Markmið meistaranáms í íslenskukennslu er að veita nemendum kennslufræðilega og vísindalega þjálfun og undirbúning fyrir kennslu íslensku í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskólum.
Að loknu meistaraprófi í íslenskukennslu geta nemendur fengið leyfisbréf sem framhaldsskólakennarar.
Er námið fyrir þig?
Langar þig að öðlast kennsluréttindi?
Getur þú séð fyrir þér að kenna íslensku í grunn- eða framhaldsskóla?
Vilt þú öðlast þekkingu á almennri kennslufræði og góða þekkingu á kennslufræði íslensku?
Viltu opna dyr þínar að doktorsnámi?
Um hvað snýst námið?
Hér er um að ræða starfsmiðað réttindanám fyrir starfandi og verðandi íslenskukennara í framhaldsskólum. Jafnframt er það undirbúningur fyrir störf sem fela í sér umsjón með íslenskukennslu í skólum eða fræðsluumdæmum.
Námið er skipulagt og kennt í samvinnu við Menntavísindasvið og ljúka nemendur 60 einingum í kennslufræði og 60 einingum í íslensku.
Uppbygging náms
Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára.
Námið skiptist í:
Skyldunámskeið, 30 einingar
Vettvangsnám, 10 einingar
Valnámskeið, 50 einingar
Lokaverkefni, 30 einingar
Námið er ýmist samsett eða samþætt og velja nemendur hvorn kostinn þeir taka.Sjá nánari upplýsingar um skipulag náms til MA-prófs í Menntun framhaldsskólakennara
Fyrirkomulag kennslu
Námið er kennt á íslensku, kennslubækur eru á íslensku, ensku eða öðrum erlendum málum.
Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, umræðna og margs kyns verkefnavinnu og ritgerðasmíði. Námsmat fer langoftast fram með ritgerðum og/eða fyrirlestrum.
Í kennslufræðihluta námsins sinna nemendur æfingakennslu í framhaldsskóla. Lögð er áhersla á virka þátttöku nemenda í kennslunni og í kennslufræðihlutanum er mikil hópvinna.
Meginmarkmið
Markmið meistaranáms í íslenskukennslu er að veita nemendum kennslufræðilega og vísindalega þjálfun og búa þá undir að kenna íslensku í efri bekkjum grunnskóla og í framhaldsskólum.
Annað
Að loknu meistaraprófi í íslenskukennslu geta nemendur fengið leyfisbréf sem framhaldsskólakennarar.
Ma próf í íslensku veitir aðgang að doktorsnámi.
Námsstig: Meistaranám, MA
Hefst: Haustönn 2025
Námstími: 2 ár
Umsóknartímabil: 1. mars 2025 - 15. apríl 2025
Námsform: Staðnám
Meðferð persónuupplýsinga
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
