Grunnskólakennsla með áherslu á list- og verkgreinar
Kjörsvið: Sjónlistir: Myndmennt
Umsókn um háskólanám
B.Ed. - 180 einingar
ISCED flokkur: 0114
Námið hefur það að meginmarkmiði að efla þekkingu kennaranema á list- og verkgreinum og gera þá sem hæfasta til að miðla þekkingu sinni í grunnskólakennslu. Námið er í nánum tengslum við vettvang og vettvangsnám er samþætt fræðilegum undirbúningi fyrir frekara nám og starf í grunnskóla. Hægt er að sérhæfa sig á fimm ólíkum kjörsviðum, þ.e. textíll og hönnun, hönnun og smíði, sjónlistir - myndmennt, leiklist og tónmennt. Fjarnám að mestu eða hluta.
Er námið fyrir þig?
Viltu verða kennari?
Hefur þú áhuga á að efla þekkingu ungs fólks á list- og verkgreinum?
Viltu vinna fjölbreytt verkefni undir handleiðslu helstu sérfræðinga landsins í menntunarfræðum?
Hefur þú gaman af handverki, listsköpun og nýsköpun?
Viltu fjölbreytt úrval námskeiða sem eru á þínu áhugasviði?
Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?
Um hvað snýst námið?
Námið er fræðilegt og starfstengt 180 eininga grunnnám, ætlað þeim sem hyggjast leggja fyrir sig kennslu í grunnskólum. Í flestum námskeiðum er hægt að velja annað hvort staðnám eða fjarnám. Mætingarskylda er í vettvangsnám. Kennsla fer að jafnaði fram vikulega í rauntíma á stað- eða fjarfundum, nema annað sé tekið fram. Í verklegum námskeiðum eru staðbundnar lotur með vinnusmiðjum og getur verið mætingarskylda í þær. Fyrirkomulag um staðlotur og mætingarskyldu liggur fyrir í kennsluáætlunum við upphaf hvers misseris.
Þú getur valið um fimm kjörsvið á námsleiðinni.
Markmiðið er að veita þér sem besta þekkingu og færni í verklegum og fræðilegum greinum á þínu kjörsviði og undirstrika hversu mikilvægur þáttur listir og skapandi starf er í grunnskólum og daglegu lífi.
Meðal viðfangsefna
Þú tekur sameiginleg kjarnafög með öðrum nemendum í Deild faggreinakennslu.
Kennsluaðferðir
Nútímasamskipti
Aðferðafræði og menntarannsóknir
Íslenska
Stærðfræði
Læsi og lestrarkennsla
Þroska- og námssálfræði
Vettvangsnám
Áherslur viðfangsefna fara eftir því hvaða kjörsvið þú velur þér.
Hönnun og smíði
Silfursmíði
Hönnun glerhluta og nytjahluta
Kennslufræði hönnunar og smíði
Hönnun og smíði leikfanga
Leiklist
Leiklist, sögur og frásagnir
Leiklistarkennarinn
Frá hugmynd til sýningar
Kennsluaðferðir leiklistar
Sjónlistir: Myndmennt
Málun og teiknun
Íslensk listasaga
Myndlist, náttúra og samfélag
Sjónlistir
Textíll og hönnun
Nýsköpun í textíl
Textílaðferðir
Fata- og textílhönnun
Kennslufræði í textíl
Tónmennt
Tónlistarleikir til náms og þroska
Popptónlist og spjaldtölvur
Tónmenntakennsla
Söngur og kórstjórn
Annað
Við brautskráningu úr kennaranámi við íslenska háskóla skal kennari búa yfir hæfni í íslensku sem samsvarar að lágmarki C1 í Evrópska tungumálarammanum.
Námsstig: Grunnnám, B.Ed.
Hefst: Haustönn 2024
Námstími: 3 ár
Umsóknartímabil: 2. mars 2024 - 5. júní 2024
Námsform: Staðnám eða Fjarnám
Meðferð persónuupplýsinga
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
