Fara beint í efnið
Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Háskólanám

Hugbúnaðarverkfræði

Kjörsvið: Nýsköpun og viðskiptaþróun

Umsókn um háskólanám

MS - 120 einingar

ISCED flokkur: 0719

Tveggja ára framhaldsnám við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, þar sem nemendur sérhæfa sig á ákveðnu sviði og læra að skapa nýja þekkingu.

Starfsvettvangur hugbúnaðarverkfræðinga er mjög fjölbreyttur. Þeir eru eftirsóttir til að stjórna deildum, fyrirtækjum og stofnunum þar sem hugbúnaður gegnir mikilvægu hlutverki.

Er námið fyrir þig?

  • Langar þig að verða verkfræðingur?

  • Vilt þú sérhæfa þig á ákveðnu sviði innan hugbúnarverkfræði?

  • Hefur þú áhuga á því að skapa nýja þekkingu?

  • Vilt þú læra meira um prófun og viðhald hugbúnaðar?

Um hvað snýst námið?

Í meistaranámi í hugbúnaðarverkfræði eru öflugar rannsóknir, sterk tengsl við atvinnulífið og alþjóðleg tengsl sem tryggja að verkefni sem nemendur glíma við eru raunhæf og byggjast á nýjustu þekkingu.

Meistaraverkefnin eru oftar en ekki hagnýt og unnin í samvinnu við fyrirtæki eða stofnanir. Þau geta ýmist orðið til vegna áhuga nemanda á tilteknu viðfangsefni eða tengst rannsóknarverkefnum kennara.

Uppbygging náms

Námið er 120 einingar og er skipulagt sem fullt nám til tveggja ára.

Námið skipist í

  • Námskeið, 60 einingar

  • Meistaraverkefni, 60 einingar

Auk skyldunámskeiða velja nemendur námskeið í samráði við leiðbeinanda sem að tengjast því sviði sem nemendur vilja sérhæfa sig í.

Val er á milli eftirfarandi kjörsviða:

  • Almenn hugbúnaðarverkfræði

  • Nýsköpun og viðskiptaþróun

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á íslensku en flestar kennslubækur eru á ensku.

Hægt er að taka hluta námsins við erlenda samstarfsskóla.

Meginmarkmið

Miðað er að því að nemendur sérhæfi sig á ákveðnu sviði innan hugbúnaðarverkfræðinnar og læri að skapa nýja þekkingu.

Annað

Að loknu meistaraprófi í hugbúnaðarverkfræði geta nemendur sótt um leyfi til iðnaðarráðherra til að geta kallað sig verkfræðinga. Starfsheitið er lögverndað.

Meistaragráða í hugbúnaðarverkfræði opnar möguleika á doktorsnámi

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Meistaranám, MS

Hefst: Vorönn 2025

Námstími: 2 ár

Umsóknartímabil: 15. september 2025 - 15. október 2025

Námsform: Staðnám