Þroskaþjálfafræði til starfsleyfis sem þroskaþjálfi
Kjörsvið: Sjálfræði og sjálfstætt líf
Umsókn um háskólanám
Viðbótardiplóma - 60 einingar
ISCED flokkur: 0919
Þroskaþjálfafræði til starfsleyfis er viðbótarnám fyrir þau sem hafa lokið BA-prófi í þroskaþjálfafræði og vilja öðlast starfsréttindi sem þroskaþjálfi. Í kjarnanámskeiðum er lögð áhersla á hagnýta vettvangstengingu og munu nemendur stunda vettvangsnám á starfsviði sem tengist því kjörsviði sem valið er.
Er námið fyrir þig?
Ert þú með BA gráðu í þroskaþjálfafræði?
Langar þig að öðlast starfsheitið þroskaþjálfi?
Er þér umhugað um mannréttindi fatlaðs fólks?
Vilt þú geta starfað á jafnréttisgrunni með fólki á öllum sviðum samfélagsins?
Um hvað snýst námið?
Nám til starfsréttinda í þroskaþjálfafræði miðar að því að nemendur öðlist þekkingu og hæfni til þess að veita heildræna þjónustu og ráðgjöf í þeim tilgangi að styðja við fullgilda samfélagsþátttöku, mannréttindi, sjálfræði og lífsgæði fólks sem þarfnast stuðnings til lengri eða skemmri tíma.
Í þessu hlutverki eru nemendur búnir undir að starfa í þverfaglegu umhverfi við að fjarlægja samfélagslegar hindranir sem koma í veg fyrir að fólk njóti fullra mannréttinda. Þannig býr námið nemendur undir það að starfa á jafnréttisgrunni með fólki á öllum sviðum samfélagsins.
Uppbygging náms
Námið er 60 einingar og er skipulagt sem fullt nám til eins árs.
Námið skiptist í:
Skyldunámskeið, 50 einingar
Frjálst val 10 einingar
Nemendur velja á milli eftirfarandi kjörsviða:
Í kjarnanámskeiðum kjörsviða er lögð áhersla á hagnýta vettvangstengingu og munu nemendur stunda vettvangsnám á starfsviði sem tengist því kjörsviði sem valið var.
Fyrirkomulag kennslu
Kennsla og próf fara fram á íslensku.
Meginmarkmið
Námið miðar að því að nemendur öðlist þekkingu og hæfni til þess að veita heildræna þjónustu og ráðgjöf í þeim tilgangi að styðja við fullgilda samfélagsþátttöku, mannréttindi, sjálfræði og lífsgæði fólks.
Annað
Þau sem ljúka viðbótardiplómu í þroskaþjálfafræðum til starfsleyfis geta sótt um starfsleyfi þroskaþjálfa til Embættis landlæknis.
Viðbótardiplóma veitir ekki sjálfkrafa aðgang að frekara námi, en mögulegt er að sækja um að fá einingarnar metnar upp í meistaranám í þroskaþjálfafræði.
Námsstig: Meistaranám, Viðbótardiplóma
Hefst: Haustönn 2024
Námstími: 1 ár
Umsóknartímabil: 2. mars 2024 - 5. júní 2024
Námsform: Staðnám eða Fjarnám
Meðferð persónuupplýsinga
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
