Fara beint í efnið
Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Háskólanám

Kennsla list- og verkgreina

Kjörsvið: Sjónlistir: Myndmennt að loknu BA/BS prófi

Umsókn um háskólanám

M.Ed. - 120 einingar

ISCED flokkur: 0114

Námið býr nemendur undir kennslu list- og verkgreinakennslu í grunnskóla. Námið er opið þeim sem hafa lokið B.Ed.-prófi í grunnskólakennslu með áherslu á list- og verkgreinar, eða BA/BS-prófi í skyldum greinum.

Grunnskólakennarar með leyfisbréf geti sótt námið óháð sérhæfingu í fyrra námi.

Er námið fyrir þig?

  • Hefur þú áhuga á list, listsköpun og handverki?

  • Viltu stuðla að færni barna í listsköpun og handverki?

  • Sækist þú eftir launuðu starfsnámi á loka ári námsins?

  • Viltu hafa réttindi til að geta kennt á þremur skólastigum?

  • Viltu kenna list- eða verkgrein?

Um hvað snýst námið?

M.Ed. nám í kennslu list- og verkgreina er ætlað þeim sem hyggjast leggja fyrir sig grunnskólakennslu með sérstaka áherslu á hönnun og smíði, sjónlistir, sviðslistir, textílmennt og tónmennt.

Uppbygging náms

Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára en einnig er hægt að stunda hlutanám til allt að fjögurra ára.

Kjörsvið

Nemendur velja eitt af eftirfarandi kjörsviðum miðað við fyrra nám:

  • Hönnun og smíði eftir B.Ed

  • Sjónlistir: Myndmennt eftir B.Ed

  • Leiklist eftir B.Ed.

  • Textíll og hönnun eftir B.Ed.

  • Tónmennt eftir B.Ed.

  • Hönnun og smíði að loknu BA/BS prófi

  • Sjónlistir: Myndmennt að loknu BA/BS prófi

  • Leiklist að loknu BA/BS prófi

  • Textíll og hönnun að loknu BA/BS prófi

  • Tónmennt að loknu BA/BS prófi

  • List- og verkgreinar fyrir kennara með leyfisbréf

Athugið ef sótt er um kjörsvið að loknu grunnnámi þarf að taka fram á umsókn hvort kjörsvið sé valið eftir B.Ed. próf eða að loknu BA/BS prófi.

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á íslensku

Mörg námskeiðanna eru í boði í fjarnámi. Athugið að efnisgjald getur verið í sumum námskeiðum.

Helstu áherslur

  • Menntun og sjálfbærni

  • Miðlun og sköpun

  • Nám og kennsla

  • Sérsvið faggreinar

Meginmarkmið

Markmið námsins er að mennta fagreinakennara til starfa og stuðla að góðri og fjölbreyttri menntun list- og verkgreina í íslenska menntakerfinu.

Annað

Námsleiðin veitir þér rétt til þess að sækja um leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari.

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Meistaranám, M.Ed.

Hefst: Vorönn 2024

Námstími: 2 ár

Umsóknartímabil: 13. september 2024 - 15. október 2024

Námsform: Staðnám eða Fjarnám