Fötlunarfræði
Kjörsvið: Fötlunarfræði: MA, 120e
Umsókn um háskólanám
MA - 120 einingar
ISCED flokkur: 0314
Fötlunarfræði er þverfagleg fræðigrein sem leggur áherslu á að þróa félagslegan skilning á fötlun og rannsaka þátt menningar og umhverfis í að skapa og viðhalda fötlun.
Markmið námsins er að veita nemendum fræðilega og hagnýta þekkingu á fjölbreytilegum þáttum sem varða fatlað fólk og málefni þess.
Er námið fyrir þig?
Hefur þú áhuga á málefnum fatlaðs fólks?
Vilt þú efla fræðilega þekkingu og skilning á fötlun?
Eru mannréttindi þér hugleikin?
Langar þig í fræðilegt og hagnýtt nám?
Um hvað snýst námið?
Meistaranám í fötlunarfræði er tveggja ára nám ætlað þeim sem vilja efla fræðilega þekkingu sína á fötlun og málefnum fatlaðs fólks. Nemendur geta sérhæft sig á ákveðnum sviðum allt eftir áhuga hvers og eins.
Mögulegt er að ljúka námsleiðinni alfarið eða að mestu leyti í fjarnámi. Námskeið eru almennt skipulögð þannig að námið fer fram á netinu og gert er ráð fyrir rauntímaþátttöku á netfundum og/eða í staðlotum. Þó að mögulegt sé að ljúka námsleiðinni alfarið í fjarnámi getur verið að einhver valnámskeið séu eingöngu í boði í staðnámi.
Uppbygging náms
Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára eða í hlutanámi til allt að fjögurra ára.
Nemendur velja á milli eftirfarandi kjörsviða:
Fötlunarfræði
Fötlunarfræði og opinber stjórnsýsla
Fyrirkomulag kennslu
Námið er kennt á íslensku en flestar kennslubækur eru á ensku.
Meginmarkmið
Markmið námsins er að efla fræðilega og hagnýta þekkingu um fatlað fólk og málefni þess og að mennta fólk til leiðandi starfa.
Annað
Námið veitir aðgang að doktorsnámi.
Námsstig: Meistaranám, MA
Hefst: Vorönn 2025
Námstími: 2 ár
Umsóknartímabil: 15. september 2025 - 15. október 2025
Námsform: Fjarnám
