Ítalska
Umsókn um háskólanám
Grunndiplóma - 60 einingar
ISCED flokkur: 0231
Nám í ítölsku við HÍ er opið bæði nemendum sem hafa enga kunnáttu í ítölsku svo og fyrir lengra komna. Markmið ítölskunáms við Háskóla Íslands er að kenna BA-nemum að njóta ítalskrar tungu, sögu, bókmennta, kvikmynda og lista. Nemendur eru þjálfaðir í notkun málsins og öðlast færni til að lesa og skilja bókmenntatexta út frá félagslegu og sögulegu baksviði þeirra.
Er námið fyrir þig?
Hefur þú áhuga á ítalskri tungu?
Hefur þú gaman af ítalskri sögu og menningu?
Þarftu að eiga samskipti á ítölsku í þínu starfi?
Viltu læra eða styrkja kunnáttu þína í ítölsku?
Um hvað snýst námið?
Nám í ítölsku við HÍ er opið bæði nemendum sem hafa enga kunnáttu í ítölsku svo og fyrir lengra komna.
Námið er í góðu samstarfi við tungumálaskóla á Ítalíu og veitir nemendum möguleika á að eyða spennandi tímabili á kafi í tungumálinu auk allrar listar, matarmenningar og arkitektúrs sem hægt er að finna í ítölskum borgum.
Meðal viðfangsefna
Ítölsk málfræði
Listasaga Ítalíu
Ítalska óperan
Málnotkun og talþjálfun
Bókmenntir
Kvikmyndir frá Ítalíu
Latína
Land, menning og saga
Þýðingar
Ítölsk málvísindi
Markmið
Markmið ítölskunáms við Háskóla Íslands er að kenna nemendum að njóta ítalskrar tungu, sögu, bókmennta, kvikmynda og lista.
Nemendur eru þjálfaðir í notkun málsins og fá færni til að lesa og skilja bókmenntatexta út frá félagslegu og sögulegu baksviði þeirra.
Annað
Það er einnig hægt að taka ítölsku sem:
Meira um aðal- og aukagreina undir Hjálplegt efni neðst á síðunni.
Námsstig: Grunnnám, Grunndiplóma
Hefst: Vorönn 2024
Námstími: 1 ár
Umsóknartímabil: 13. september 2024 - 2. desember 2024
Námsform: Staðnám
