Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Lögfræði

Umsókn um háskólanám

BA - 180 einingar

ISCED flokkur: 0421

Lögfræði við Háskóla Íslands er spennandi, skemmtileg og gagnleg.

Kennslan er nútímaleg og fjölbreytt og tekur mið af því besta sem gerist. Lögð er rík áhersla á gagnvirka kennsluhætti þar sem máttur virkrar samræðu milli kennara og nemanda er nýttur til hins ýtrasta. Deildin hefur ríka alþjóðlega áherslu og bæði stúdentar og akademískir starfsmenn taka þátt í fjölbreyttum alþjóðlegum verkefnum.

Er námið fyrir þig?

  • Hefur þú áhuga á reglum og hvernig þær hafa áhrif á samfélagið?

  • Langar þig að vita hvernig samningar eru gerðir?

  • Vilt þú hafa það á hreinu hvernig á að bregðast við ef samningar eru brotnir?

  • Langar þig að vita meira um hvernig refsingar eru ákveðnar?

  • Hefur þú áhuga á réttindum og skyldum einstaklinga í samfélaginu og hvernig á að tryggja réttaröryggi og mannréttindi?

Um hvað snýst námið?

BA nám í lögfræði er 3 ára nám við lagadeild HÍ sem er stærsta lagadeildin á Íslandi, bæði í fjölda rannsakenda, kennara og nemenda.

Markmið Lagadeildar er að tryggja metnað, gæði og árangur í lagakennslu. Því eru gerðar miklar kröfur til nemenda jafnt sem kennara og lögð áhersla á nám í undirstöðugreinum lögfræðinnar.

Meðal viðfangsefna eru:

  • Almenn lögfræði

  • Réttarsaga

  • Heimspekileg forspjallsvísindi

  • Stjórnskipunarréttur

  • Fjölskyldu- og erfðaréttur

  • Evrópuréttur

  • Samningaréttur

  • Bóta- og eignaréttur

  • Stjórnsýsluréttur

  • Refsiréttur

  • Kröfuréttur

  • Réttarfar

Fyrirkomulag kennslu

Í lögfræðinni er yfirleitt ekki mætingarskylda í tíma og mikið af náminu er skipulagt í kringum sjálfslestur stúdenta eða samvinnu þeirra utan kennslustunda. Tíma sínum ráða stúdentar sjálfir, en frelsinu fylgir líka mikil ábyrgð. Lögfræðin er krefjandi nám og kallar á mikinn aga í lestri og undirbúningi.

Annað

Hefðbundin lögfræðileg menntun er fimm ára nám. Við Lagadeild HÍ skiptist hið hefðbundna (klassíska) lögfræðinám í BA-nám, sem tekur þrjú ár, og svo MA-nám, sem lýkur með prófgráðunni magister juris og tekur tvö ár að ljúka. Yfirleitt er nauðsynlegt að ljúka báðum þessum námsleiðum, eða sambærilegu námi við annan háskóla, til að geta fengið hefðbundin störf á Íslandi á sviði lögfræði. Langflestir okkar stúdenta fara þessa leið.

Lesa má meira um BA námið í kennsluskrá

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Grunnnám, BA

Hefst: Haustönn 2024

Námstími: 3 ár

Umsóknartímabil: 2. mars 2024 - 5. júní 2024

Námsform: Staðnám

haskolanam logo

Meðferð persónuupplýsinga

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið