Fara beint í efnið
Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Háskólanám

Kennsla upplýsingatækni, nýsköpunar og miðlunar

Kjörsvið: Kennslufræði grunnskóla að loknu BA/BS-prófi

Umsókn um háskólanám

MT - 120 einingar

ISCED flokkur: 0114

Námið býr nemendur undir kennslu í upplýsingatækni og miðlunar í grunnskóla. Námið er opið þeim sem hafa lokið B.Ed.-prófi í grunnskólakennslu með áherslu á upplýsingatækni eða BA/BS-prófi í skyldum greinum.

Nemendur ljúka MT gráðu án þess að skrifa 30 eininga lokaverkefni.

Er námið fyrir þig?

  • Viltu stuðla að bættu skóla- og fræðslustarfi?

  • Hefur þú áhuga á nýta upplýsingatækni í kennslu?

  • Langar þig að nýta margmiðlun í skóla- og fræðslustarfi?

  • Viltu bæta við þig hagnýtu og skemmtilegu námi?

  • Langar þig að auka rafræna færni þína?

Um hvað snýst námið?

MT nám í kennslu upplýsingatækni og miðlunar er fræðilegt og verkefnamiðað nám með áherslur á, samskipti, samvinnu, þróunarstarf, námssamfélag og gagnrýna umræðu.

Fjallað er um stafræna tækni og fengist við nýsköpun þar sem reynir á stafræn verkfæri og stafrænar lausnir. Lagt er upp úr að nemendur sýni frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð og geri vinnu sína aðgengilega og birti á ýmsum vettvangi.

Þá er áhersla lögð á kennslufræði upplýsingatækni og miðlunar ásamt þróunarstarfi en þátttakendum gefst líka færi á að styrkja kunnáttu sína í þessum greinum eftir því sem hugur þeirra stendur til.

Námsleiðin er á meistarastigi 2.1 og felur það í sér að nemendur taka kennslufræðitengd námskeið í stað þess að skrifa 30 eininga rannsóknarritgerð.

Kjörsvið

Þú velur eitt þessara þriggja kjörsviða út frá þeim bakgrunni sem þú ert með.

  • Upplýsingatækni og miðlun í fimm ára kennaranámi

  • Kennslufræði grunnskóla að loknu BA/BS prófi

  • Upplýsingatækni og miðlun fyrir kennara með leyfisbréf

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á íslensku.

Námskeið eru ýmist kennd í fjar- eða staðnámi og er nemendum því bent á að kynna sér kennslufyrirkomulag hvers námskeiðs vel. Sjá skilgreiningar á mismunandi námsformi.

Markmið námsins

Meginmarkmið námsins er að efla þekkingu og færni þátttakenda í upplýsingatækni, miðlun og kennslufræðum tengdum þessum greinum þannig að þeir verði betur í stakk búnir að kenna upplýsingatækni og miðlun.

Annað

  • Námið veitir rétt til þess að sækja um kennsluréttindi sem að gildir fyrir þrjú skólastig, leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.

  • Námsleiðin er á meistarastigi 2.1 en ljúka þarf gráðu af meistarastigi 2.2 ef sækja á um í doktorsnám. Námið veitir aðgang að námi á meistarastigi 2.2.

  • Sjá M.Ed. nám í kennslu upplýsingatækni og miðlunar

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Meistaranám, MT

Hefst: Haustönn 2026

Námstími: 2 ár

Umsóknartímabil: 28. febrúar 2026 - 15. apríl 2026

Námsform: Staðnám eða Fjarnám