Fara beint í efnið
Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Háskólanám

Viðskiptafræði

Kjörsvið: Almenn viðskiptafræði

Umsókn um háskólanám

BS - 180 einingar

ISCED flokkur: 0410

Í viðskiptafræði lærir þú allt það helsta um stofnun og rekstur fyrirtækja. Fimm kjörsvið eru í boði en þau eru fjármál, markaðsfræði, reikningshald, stjórnun og almenn viðskiptafræði. Námið er góður undirbúningur fyrir atvinnulíf, framhaldsnám og rekstur heimilis. Náminu lýkur með lokaritgerð.

Er námið fyrir þig?

  • Hefur þú áhuga á stjórnun og markaðsfræði?

  • Langar þig að stofna þitt eigið fyrirtæki?

  • Viltu vita hvernig vextir og lán virka?

  • Hefur þú gaman af stærðfræði?

  • Viltu fjölbreytt úrval námskeiða sem eru á þínu áhugasviði?

  • Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?

Um hvað snýst námið?

BS nám í viðskiptafræði byggir á sterkum grunni almennra viðskiptafræðigreina eins og fjármálafræði, markaðsfræði, reikningshaldi, rekstrarhagfræði og stjórnunarfræði.

Í upphafi náms velja nemendur sér kjörsvið en boðið er upp á fimm áherslulínur:

  • Almenn viðskiptafræði

  • Fjármál

  • Markaðsfræði

  • Reikningshald

  • Stjórnun

Meðal viðfangsefna eru:

  • Markaðsfræði

  • Stærðfræði

  • Fjárhagsbókhald

  • Rekstrarhagfræði og bókhald

  • Tölfræði

  • Tölvunotkun og tölvureiknir

  • Stjórnun

  • Alþjóðaviðskipti

  • Vörumerkjastjórnun

  • Neytendahegðun og markaðsstarf

  • Tjáning og viðskipti

  • Þjóðhagfræði

  • Markaðssamskipti og rannsóknir

Viðskiptafræði er einnig hægt að taka sem 60 eininga aukagrein með 120 eininga aðalgrein.

Viðskiptafræði er einnig hægt að taka sem 120 eininga aðalgrein með 60 eininga aukagrein úr öðru fagi.

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Grunnnám, BS

Hefst: Vorönn 2024

Námstími: 3 ár

Umsóknartímabil: 13. september 2024 - 2. desember 2024

Námsform: Staðnám