Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Norrænt meistaranám í öldrunarfræðum

Umsókn um háskólanám

MA - 120 einingar

ISCED flokkur: 0921

Samnorrænt meistaranám í öldrunarfræðum (NordMaG) er 120 eininga þverfaglegt nám sem fer fram í þremur löndum: í Svíþjóð, Noregi og á Íslandi.

Sérstök áhersla er lögð á að kynna nemendum norræna öldrunarþjónustu og gera þá hæfari til að taka þátt í norrænu rannsóknasamstarfi.

Er námið fyrir þig?

  • Hefur þú áhuga á málefnum aldraðra?

  • Hentar þér að stunda fjarnám en mæta í staðlotur í Reykjavík, Finnlandi og í Svíþjóð?

  • Viltu kynnast því betur hvernig umhverfi, félagsleg tengsl og heilsufar hafa áhrif á vellíðan aldraðra?

  • Finnt þér áhugavert að kynnast norrænni öldrunarþjónustu?

Um hvað snýst námið?

Í norrænu meistaranámi í öldrunarfræðum er lögð sérstök áhersla á að kynna nemendum norræna öldrunarþjónustu og gera þá hæfari til að taka þátt í norrænu rannsóknasamstarfi.

Fjallað er um helstu málefni og ágreiningsefni tengd öldrun og öldruðum svo sem afleiðingar öldrunar, þætti sem liggja til grundvallar öldrunarferlinu, vellíðan á efri árum, leiðir til að stuðla að heilbrigðri öldrun og fleiri þættir.

Uppbygging náms

Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára.

Námið skiptist í:

  • Fræðileg námskeið, 20 einingar

  • Námskeið í aðferðafræði, 10 einingar

  • Valnámskeið, 30-50 einingar

  • Lokaritgerð, 40-60 einingar

Fyrirkomulag kennslu

Kennt er í fjarnámi og staðlotum í Reykjavík, Jyväskylä í Finnlandi og Lundi í Svíþjóð.

Kennsla fer fram á ensku.

Meginmarkmið

Markmið með náminu er að dýpka þekkingu þátttakenda um málefni aldraðra með það að leiðarljósi að kynna þeim svið öldrunarfræða, kenningar og vinnuaðferðir og gera þá hæfari til að vinna með öðrum starfsstéttum að velferðarmálum aldraðra.

Annað

Námið veitir aðgang að doktorsnámi.

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Meistaranám, MA

Hefst: Haustönn 2025

Námstími: 2 ár

Umsóknartímabil: 1. mars 2025 - 15. apríl 2025

Námsform: Staðnám

haskolanam logo

Meðferð persónuupplýsinga

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið