Fara beint í efnið
Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Guðfræði

Umsókn um háskólanám

BA - 180 einingar

ISCED flokkur: 0221

Löngum var litið á Guðfræðideildina sem prestaskóla fyrst og fremst. Á síðari árum hefur námið við deildina orðið æ fjölbreyttara. Hinar hefðbundnu greinar guðfræðinnar gegna enn sem fyrr stærstu hlutverki en nýjar áherslur hafa hins vegar komið inn í þessar greinar, til dæmis með tilkomu kvennaguðfræði, áherslu á áhrifasögu Biblíunnar og menningarfræði og þá ekki síst rannsóknum á trúarlegum stefjum í kvikmyndum.

Er námið fyrir þig?

  • Hefur þú gaman af því að hjálpa fólki?

  • Langar þig að starfa innan embættis kirkjunnar?

  • Viltu vinna fjölbreytt verkefni undir handleiðslu helstu sérfræðinga landsins í guðfræði?

  • Vilt þú fræðast um rætur kristindóms?

  • Hefur þú áhuga á guðfræði?

  • Viltu fjölbreytt úrval námskeiða sem eru á þínu áhugasviði?

  • Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?

Um hvað snýst námið?

Aðalviðfangsefni guðfræðinámsins er að skoða rætur kristindómsins í gyðinglegri hefð og sögulega þróun hans, allt frá tímum Nýja testamentisins til samtíðar okkar.

Einnig er viðfangsefni guðfræðinnar að skoða samspil nútímasamfélagsins og kirkju nútímans.

Námið er þriggja ára grunnnám í guðfræði. Full námsframvinda á einu misseri miðast við 30 einingar. Kjarni BA-námsins er 60 einingar, sem eru námskeiðin á fyrsta ári. Að loknu fyrsta ári velja nemendur hvort þeir ljúka BA-prófi sem er óháð embættisprófi eða kjósa að stefna að embættisprófi. Þeir nemendur sem stefna á embættispróf taka hebresku á fyrsta ári í stað framsetningar guðfræðilegrar siðfræði.

Meðal viðfangsefna

  • Kirkjusaga Evrópu

  • Trúfræði

  • Þjóðfélag Hebrea

  • Guðfræðileg siðfræði

  • Trúarbragðafræðsla og margbreytileiki

  • Bókmenntasaga frumkristni

  • Siðfræði stríðs og friðar

  • Trúarlífsfélags- og sálarfræði

  • Íslensk kirkjusaga

  • Saga Islam

  • Nýja og Gamla testamentið

Markmið

Markmið kjarna námsins er að nemendur:

  • geti gert greinarmun á fræðilegum skýringum og annars konar skýringum á guðfræðilegum álitamálum

  • kunni skil á helstu rannsóknaraðferðum sem beitt er í einstökum greinum guðfræðinnar

Nám í Guðfræði- og trúarbragðafræðideild fer fram í fyrirlestrum og verkefnavinnu nemenda.

Námsmöguleikar

BA-próf án embættisprófs

Kjarninn samanstendur að mestu af sömu inngangsnámskeiðum á báðum námsleiðum, að tungumálunum forngrísku og hebresku slepptum.

Önnur námskeið getur nemandi valið eftir áhugasviði í samráði við kennara og jafnvel tengt við nám í öðrum greinum, til dæmis: heimspeki, sagnfræði, þjóðfræði eða kynjafræði.

Þau sem ekki stefna að embættisprófi hafa frjálst val um 110 einingar, auk 10 eininga BA-ritgerðar.

BA nám sem hluti af Mag. theol. gráðu

BA námið er undanfari mag.theol.-gráðu, embættisprófs í guðfræði. Samsetning námsins er bundin eftir fræðasviðum guðfræðinnar og ekki er boðið upp á valnámskeið.

Þeir nemendur sem stefna á að ljúka mag.theol.-námi, embættisprófi, taka hebresku á fyrsta ári í stað framsetningar guðfræðilegrar siðfræði.

Nám til embættisprófs er alls 300 einingar þriggja ára nám. (180 eininga, BA-nám, án valnámskeiða og 120 eininga mag.theol.-nám).

Nám til embættisprófs er starfsnám presta í Þjóðkirkjunni.

Aðrir möguleikar

Hægt að taka guðfræði bæði sem, 120 eininga aðalgrein og 60 eininga aukagrein, með öðrum námsleiðum.

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Grunnnám, BA

Hefst: Vorönn 2024

Námstími: 3 ár

Umsóknartímabil: 13. september 2024 - 2. desember 2024

Námsform: Staðnám

haskolanam logo

Meðferð persónuupplýsinga

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið