Safnafræði
Umsókn um háskólanám
MA - 120 einingar
ISCED flokkur: 0314
Framhaldsnám í safnafræði miðar að því að auka skilning nemenda á flestum þáttum hefðbundins safnastarfs og samþáttun fræðilegra vinnubragða, rannsókna og kenninga.
Áhersla er lögð á að gefa nemendum kost á að kynnast ítarlega safnastarfi og jafnframt að fylgjast með því sem hæst ber erlendis. Heimsóknir á söfn og menningarstofnanir eru mikilvægur þáttur í náminu.
Er námið fyrir þig?
Vilt þú öðlast gagnrýna sýn á hugtakið menning?
Ert þú með reynslu af safnastörfum eða viltu öðlast hana?
Vilt þú einstakt tækifæri til að kynnast fjölbreyttri starfsemi safna?
Hefur þú áhuga á því að stunda fjarnám?
Um hvað snýst námið?
MA nám í safnafræði er tveggja ára hagnýtt rannsóknarnám þar sem fjallað er um stór og smá söfn af ýmsu tagi. Safnafræði er þverfræðileg fræðigrein því að segja má að söfnum sé ekkert óviðkomandi.
Hluti námsins fer fram í starfsnámi sem veitir nemendum einstakt tækifæri til þekkingaröflunar og reynslu á því sérsviði sem nemandinn hefur áhuga á. Starfsnám á safni er valið í samráði við umsjónarkennara og getur farið fram á safni innanlands eða erlendis
Uppbygging náms
Námið er 120 einingar og skipulagt sem fullt nám til tveggja ára.
Námið skiptist í:
Skyldunámskeið, 45 einingar
Valnámskeið, 25 einingar
Starfsnám, 20 einingar
Meistararitgerð, 30 einingar
Meðal viðfangsefna
Sýningargerð og sýningarstjórnun
Markmið safna, skipulag þeirra og rekstur
Rannsóknir
Varðveisla, skráning og miðlun þekkingar
Fyrirkomulag kennslu
Námið er kennt á íslensku en flestar bækur eru á ensku.
MA-nám í safnafræði er alfarið kennt í fjarnámi að undanskildu starfsnámi. Starfsreynslu nemenda á safni er mögulegt að fá metna til allt að 20 eininga, að höfðu samráði við umsjónarkennara.
Einnig er í boðið upp á 30 eininga diplómanám í safnafræði.
Meginmarkmið
Miðað er að því að auka skilning nemenda á flestum þáttum hefðbundins safnastarfs og samþáttun fræðilegra vinnubragða, rannsókna og kenninga. Áhersla er lögð á að gefa nemendum kost á að kynnast ítarlega safnastarfi og jafnframt að fylgjast með því sem hæst ber erlendis.
Annað
Námið veitir aðgang að doktorsnámi.
Námsstig: Meistaranám, MA
Hefst: Vorönn 2024
Námstími: 2 ár
Umsóknartímabil: 13. september 2024 - 15. október 2024
Námsform: Blandað nám
Meðferð persónuupplýsinga
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
