Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Spænska

Umsókn um háskólanám

BA - 180 einingar

ISCED flokkur: 0231

Í náminu fá nemendur undirstöðuþekkingu á máli og menningu þeirra landa sem hafa spænsku að þjóðtungu. Reynt er að gera námið eins lifandi og kostur er meðal annars með samskiptum við erlenda nemendur við HÍ.

Er námið fyrir þig?

  • Hefur þú áhuga á spænsku tungumáli?

  • Hefur þú gaman af spænskum bókmenntum og menningu?

  • Býrð þú yfir góðri færni í spænskri ritun og talmáli?

  • Viltu fjölbreytt úrval námskeiða sem eru á þínu áhugasviði?

  • Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?

  • Langar þig að hafa val um fjölbreyttan starfsvettvang?

Um hvað snýst námið?

Í námi til BA-prófs í spænsku færðu undirstöðuþekkingu á máli og menningu þeirra landa sem hafa spænsku að þjóðtungu.

Þú kynnist menningu Spánar og Rómönsku Ameríku: Bókmenntum, kvikmyndum, þjóðlífi og hugmyndasögu.

Þú færð þjálfun í rit- og talmáli á fyrstu námsstigum og áhersla er lögð á fræðileg og sjálfstæð vinnubrögð. Einnig færðu innsýn í heim þýðinga og kynnist sögu og þróun tungumálsins.

Reynt er að gera námið eins lifandi og kostur er. Mikil áhersla er lögð á tengsl við viðkomandi málsvæði, meðal annars í gegnum fjölmiðla og netið, með samskiptum við erlenda nemendur við HÍ og með námsdvöl erlendis.

Meðal viðfangsefna

  • Tal- og ritþjálfun

  • Spænsk málfræði

  • Menning, þjóðlíf og saga Spánar

  • Spænska í ferðaþjónustu og viðskiptum

  • Rómönsk Ameríka

  • Spænskar bókmenntir

  • Kvikmyndir

  • Spænsk málsaga og málsvæði

  • Þýðingar

Annað

Þetta nám er hægt að taka sem:

Spænskan er gagnleg sem aukagrein til BA-prófs í öllum greinum sem kenndar eru á Hugvísindasviði og Félagsvísindasviði, til dæmis viðskiptafræði og hagfræði. Hún getur líka verið góður undirbúningur undir margs konar nám erlendis, þ.á m. listnám.

Það er líka hægt að leggja stund á spænskunám til diplómagráðu. Það nám er þriggja missera hagnýtt nám. Diplómanámið miðar að því að gera nemendur færa um að tjá sig í ræðu og riti og miðla almennum upplýsingum.

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Grunnnám, BA

Hefst: Vorönn 2025

Námstími: 3 ár

Umsóknartímabil: 15. september 2025 - 1. desember 2025

Námsform: Staðnám

haskolanam logo

Meðferð persónuupplýsinga

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið