Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Lyfjafræði (eldri námsskrá)

Umsókn um háskólanám

BS - 180 einingar

ISCED flokkur: 0916

Lyfjafræði er fræðigrein sem fjallar um lyf frá öllum hugsanlegum sjónarhornum, allt frá þróun nýrra lyfjaefna og lyfjaforma, að framleiðslu, notkun og verkun lyfjanna. Lyfjafræðinámið er fjölbreytt nám, samsett af bóklegri og verklegri kennslu í hinum ýmsu greinum líf- og raunvísinda, auk greina úr félagsvísindum.

Er námið fyrir þig?

  • Viltu fræðast um lyf frá öllum sjónarhornum?

  • Finnst þér spennandi að uppgötva og þróa ný lyf og vörur?

  • Hefur þú áhuga á raungreinum eins og efnafræði, stærðfræði og lífeðlisfræði?

  • Viltu stunda nám sem er bæði bóklegt og verklegt?

  • Langar þig í starf sem tengist flestum greinum heilbrigðisvísinda og lyfjaiðnaði?

  • Viltu hafa trygga atvinnumöguleika?

Um hvað snýst námið?

Í BS-námi í lyfjafræði er lögð áhersla á undirstöðugreinar lyfjafræðinnar,svo sem efnafræði, líffræði, stærðfræði auk ýmissa sérgreina í lyfjafræði.

Námið er byggt á fjölbreyttum kennsluháttum, fyrirlestrum, umræðutímum, verklegum æfingum, einstaklingsbundnum verkefnum, hópverkefnum og dæmatímum.

Meðal viðfangsefna

  • Efnafræði, bæði lífræn og ólífræn ásamt efnagreiningu

  • Virkni líkamans á frumu-og líffærastigi

  • Sameindalífvísindi

  • Sýkla- veiru- og örverufræði

  • Ónæmiskerfi líkamans í heilbrigðu og veiku ástandi

  • Eðlislyfjafræði

  • Bygging lyfjaefna og áhrif byggingar á verkun þess í líkamanum

  • Einangrun lyfjavirkra efna úr náttúrunni og virkni þeirra

  • Formúlering lyfja og greining á þeim og þeirra innihaldsefnum

  • Notkun nanótækni í lyfjagerð

  • Upptaka lyfja í líkamanum, umbrot þeirra og útskilnaður

  • Störf lyfjafræðinga og starfsemi apóteka

Lyfjafræðideild hefur aðsetur í byggingunni Haga við Hofsvallagötu. Þar fer kennslan að mestu fram og nemendur hafa aðstöðu og aðgang að lesrými og tölvuveri.

BS-nám í lyfjafræði er nauðsynlegur undirbúningur fyrir MS-nám í lyfjafræði en þeir sem lokið hafa MS-námi í lyfjafræði geta sótt um starfsleyfi lyfjafræðings til Landlæknis.

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Grunnnám, BS

Hefst: Haustönn 2025

Námstími: 3 ár

Umsóknartímabil: 1. mars 2025 - 5. júní 2025

Námsform: Staðnám

haskolanam logo

Meðferð persónuupplýsinga

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið