Sálfræði
Umsókn um háskólanám
BS - 180 einingar
ISCED flokkur: 0313
Er áhugasvið þitt hegðun, samskipti og hugsun fólks? Langar þig að skilja hvernig heilinn starfar? Hefur þú gaman af því að rannsaka, hlusta og fræða? Leitar þú að grunnnámi sem veitir góð atvinnutækifæri eða möguleika á fjölbreyttu framhaldsnámi? Kynntu þér BS-nám í sálfræði.
Er námið fyrir þig?
Er áhugasviðið þitt hegðun og hugsun manna?
Langar þig að skilja hvernig heilinn starfar?
Viltu vinna fjölbreytt verkefni undir handleiðslu helstu sérfræðinga landsins í sálfræði?
Hefur þú gaman af því að rannsaka, hlusta og fræða?
Viltu fjölbreytt úrval námskeiða sem eru á þínu áhugasviði?
Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?
Um hvað snýst námið?
Í BS námi í sálfræði er lögð áhersla á aðferðir vísindanna og gagnrýna hugsun.
Sálfræði er fræði- og faggrein um sálarlíf frá víðu sjónarhorni. Greinin á uppruna sinn í heimspeki, læknisfræði og náttúruvísindum.
Í öllum námskeiðum leysa nemendur úr verkefnum sem reyna á færni við rannsóknir og fræðimennsku. Nemendum gefst líka kostur á að gerast aðstoðarmenn í rannsóknum kennara og búa sig þannig undir framtíðarstörf.
Meðal viðfangsefna
Þroskasálfræði
Félagsleg sálfræði
Persónuleikasálfræði
Skyn- og hugfræði
Klínísk sálfræði
Atferlisgreining
Megindleg sálfræði
Aðferðafræði
Saga sálfræðinnar
Lífeðlisleg sálfræði
Öldrunarsálfræði
Íþróttasálfræði
Í BS-náminu er lögð áhersla á aðferðir vísindanna og gagnrýna hugsun.
Skilningur á rannsóknum og kenningum í sálfræði er efldur sérstaklega í námskeiðum um aðferðafræði rannsókna, tölfræði, mælinga- og próffræði og í námskeiðum um sögu og eðli sálfræðinnar.
Í valnámskeiðum er gjarnan fjallað um hagnýtar undirgreinar á borð við íþróttasálfræði, klíníska barnasálfræði, heilsusálfræði, umhverfissálfræði og öldrunarsálfræði. Einnig geta nemendur í sálfræði tekið valnámskeið í öðrum deildum háskólans.
Í öllum námskeiðum leysa nemendur úr verkefnum sem reyna á færni við rannsóknir og fræðimennsku. Nemendum í BS-námi gefst líka kostur á að gerast aðstoðarmenn í rannsóknum kennara og búa sig þannig undir framtíðarstörf.
Ekki er skylt að gera BS-ritgerð í Sálfræðideild. Nemendum sem vilja sleppa við lokaverkefni er heimilt að taka valnámskeið þess í stað.
Þeir sem hyggjast starfa sem sálfræðingar þurfa að ljúka framhaldsnámi í Klínískri sálfræði að loknu BS-náminu.
Annað
Einnig er hægt að taka sálfræði sem:
Meira um Aðal- og aukagreinar undir Hjálplegt efni neðst á síðunni.
Námsstig: Grunnnám, BS
Hefst: Haustönn 2024
Námstími: 3 ár
Umsóknartímabil: 2. mars 2024 - 5. júní 2024
Námsform: Staðnám
Meðferð persónuupplýsinga
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
