Íslenska sem annað mál, hagnýtt nám
Umsókn um háskólanám
Diplómapróf - 60 einingar
ISCED flokkur: 0232
Eins árs nám fyrir nemendur með litla færni í íslensku.
Umsóknarfrestur er til 20. maí fyrir umsækjendur sem búa á Íslandi og eru með íslenska kennitölu.
Er námið fyrir þig?
Vilt þú læra að tala og lesa einfalda íslensku?
Langar þig að geta bjargað þér á íslensku í daglegu lífi?
Vilt þú auka möguleika þína á virkri þátttöku í íslensku samfélagi?
Vilt þú öðlast færni til að taka áframhaldandi háskólanám í íslensku sem öðru máli?
Um hvað snýst námið?
Í Hagnýtri íslensku er byggð upp hagnýt grunnþekking á íslensku máli: málkerfi, orðaforða, skilningi og tjáningu. Nemendur geta einnig valið sér námskeið um íslenska menningu sem hluta af náminu. Megináhersla er lögð á tjáskipti og hagnýta málnotkun þannig að nemendur öðlist grundvallarfærni í skilningi og tjáningu á íslensku máli. Allir færniþættir eru þjálfaðir: munnleg færni, samskipti, ritunarfærni, hlustunar- og lesskilningur. Markmiðið er að nemendur geti tjáð sig við allar almennar aðstæður daglegs lífs, skilið umræðu er lýtur að hversdagslífi og lesið og skilið einfalda texta. Einnig er ætlast til að nemendur tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð og námsaðferðir til að geta haldið íslenskunámi sínu áfram.
Nám í Hagnýtri íslensku sem öðru máli eykur möguleika fólks af erlendum uppruna á virkri þátttöku í íslensku samfélagi og atvinnulífi. Nám í Hagnýtri íslensku sem öðru máli veitir nemendum einnig grunn til að takast á við frekara nám í íslensku sem öðru máli.
Aðgangur að frekara námi
Fyrsta einkunn (7,25) veitir aðgang að BA-námi í íslensku sem öðru máli og Íslenskustoð
Kröfur um færni í íslensku
Námið er sniðið að nemendum með lítinn grunn í íslensku. Nemendur skulu hafa náð A1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum áður en námið hefst. Sjá til dæmis:
Umsóknarfrestur
1. febrúar fyrir alþjóðlega umsækjendur.
20. maí fyrir umsækjendur sem eru búsettir á Íslandi og hafa íslenska kennitölu.
Nauðsynlegt er að sækja um í gegnum Umsóknagátt HÍ. Umsóknir sem berast í gegnum tölvupóst verða ekki teknar til greina.
Kennsla
Nemendur í fullu námi sækja staðkennslu tvo morgna eða tvö síðdegi í viku á mánudögum/þriðjudögum og miðvikudögum/fimmtudögum. Einnig verður í boði staðkennsla fjögur síðdegi í viku, frá 16:40 til 18:10, ef næg þátttaka næst. Fjarnám verður einnig í boði og sækja nemendur tíma fjóra morgna í viku, frá 8:20 til 9:50, eða fjögur síðdegi í viku, frá 16:40 til 18:10, mánudaga til fimmtudaga, ef næg þátttaka næst. Nemendur velja sér hóp í ágúst, áður en kennsla hefst. Framboð tíma í stundatöflu ræðst af þátttöku og getur breyst milli haustmisseris og vormisseris. Vakin er athygli á að fjarnámið er aðeins í boði fyrir nemendur með búsetu á Íslandi.
Öllum nemendum hagnýta diplómanámsins, fjarnemum þar með töldum, ber að taka miðmisseris- og lokapróf á staðnum við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, Háskólasetur Vestfjarða eða aðra viðurkennda prófstaði.
Við upphaf skólaárs
Kennsla hefst i lok ágúst. Skráðir nemendur geta skoðað handbók hagnýta námsins eftir að þeir hafa fengið nemendaaðgang.
Athugið: Síðasti dagur til að hefja nám er 3. september 2026.
Námsstig: Grunnnám, Diplómapróf
Hefst: Haustönn 2026
Námstími: 1 ár
Umsóknartímabil: 28. febrúar 2026 - 20. maí 2026
Námsform: Staðnám eða Fjarnám
