Fara beint í efnið
Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Háskólanám

Kennslufræði háskóla

Umsókn um háskólanám

Viðbótardiplóma - 30 einingar

ISCED flokkur: 0114

Viðbótardiplóma í kennslufræði er stutt 30 eininga nám ætlað háskólakennurum, stundakennurum og doktorsnemum. Námið dýpkar þekkingu á kennslufræði, námsmati og endurgjöf og eykur færni kennara til þess að takast á við kennsluáskoranir samtímans.

Námið hentar vel með vinnu.

Er námið fyrir þig?

  • Er háskólakennsla partur af þínu starfi?

  • Viltu bæta við þig þekkingu í kennslufræðum háskóla?

  • Langar þig að geta byggt upp gott námsmat og endurgjöf?

  • Hefur þú áhuga á að þróa þín námskeið?

  • Viltu öðlast góða þekkingu á miðlunarleiðum í námi?

Um hvað snýst námið?

Námsleiðin er skipulögð í samstarfi við Kennslumiðstöð og er sniðin að starfandi háskólakennurum, doktorsnemum og öðrum sem kenna í háskólum á grundvelli sérfræðiþekkingar sinnar.

Með námsleið í kennslufræði háskóla er Háskóli Íslands að bregðast við þörfum háskólakennara fyrir aukna þekkingu og færni á sviði kennslufræða.

Háskólakennarar búa yfir mikilli þekkingu innan sinna sérsviða en hafa sjaldan þá sérþekkingu á námi og kennslu sem æskileg er til að skipuleggja kennslu, stýra námi nemenda og leggja á það mat. Slík kunnátta er mikilvæg í ljósi þess að nemendahópur háskólastigsins verður æ fjölbreyttari, kröfur til kennara um notkun upplýsingatækni meiri og gæði háskóla eru í auknum mæli metin út frá gæðum kennslu.

Uppbygging náms

Námið er 30 einingar og er skipulagt sem hluta nám til allt að tveggja ára.

Skyldunámskeið á námsleiðinni:

  • Inngangur að kennslufræði á háskólastigi, 10 einingar

  • Námsmat og endurgjöf, 5 einingar

  • Skipulag og endurskoðun námskeiða, 5 einingar

  • Kennsluþróun og starfendarannsóknir, 10 einingar

Viðfangsefni

Meðal þess sem fjallað er um eru:

  • skilgreining hæfniviðmiða

  • samhæft námsskipulag

  • tengsl hæfniviðmiða og námsmats

  • kennsluþróun og leiðir til að leggja mat á gæði námskeiða

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á íslensku.

Námið er skipulagt þannig að þátttakendur vinna að því samhliða störfum sínum. Auk þátttöku í tímum vinna þátttakendur ýmis verkefni tengd eigin kennslu.

Meginmarkmið

Er að þátttakendur öðlist góðan skilning á lykilhugtökum náms, kennslu og námsmats á háskólastigi.

Annað

Frekari upplýsingar um námsleiðina veitir Kennslumiðstöð

Háskóli Íslands styður við fastráðna kennara sem sækja námsleiðina með því að veita þeim styrk úr Kennslumálastjóði fyrir skrásetningargjaldi við skólann.

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Meistaranám, Viðbótardiplóma

Hefst: Vorönn 2024

Námstími: 2 ár

Umsóknartímabil: 13. september 2024 - 2. desember 2024

Námsform: Staðnám