Menntun allra og stoðþjónusta
Umsókn um háskólanám
M.Ed. - 120 einingar
ISCED flokkur: 0113
Námsleiðin eru ætluð kennurum með leyfisbréf og með reynslu af kennslu.Markmið námsleiðarinnar er að þátttakendur geti styrkt sig sem fagfólk í námi og kennslu í skóla án aðgreiningar í fjölmenningarsamfélagi, sem og hæfni sína til að leiða skólastarf á þeim grunni. Fjarnám.
Er námið fyrir þig?
Ert þú með leyfisbréf til kennslu?
Langar þig að styrkja þig sem fagmanneskju í starfi?
Vilt þú taka þátt í því að skapa menningu í skólastarfi þar sem styrkleikar bæði nemenda og kennara fá að njóta sín?
Hefur þú áhuga á félagslegu réttlæti?
Um hvað snýst námið?
Í meistaranámi í menntun allra og stoðþjónusta er sjónum einkum beint að því hvernig búa má börn og ungmenni með ólíkar forsendur til náms, aðstæður til að þroskast og læra í samfélagi við aðra.
Lögð er áhersla á að nemendur tileinki sér að hafa manngildi, lýðræði og félagslegt réttlæti að leiðarljósi.
Uppbygging náms
Námið er 120 einingar og er skipulagt sem fullt nám til tveggja ára eða hlutanám í þrjú til fjögur ár.
Námið skiptist í:
Skyldunámskeið, 20 einingar
Bundið val, 70 einingar
Lokaverkefni, 30 einingar
Fyrirkomulag kennslu
Kennsla og próf fara fram á íslensku.
Námskeið eru ýmist kennd í fjarnámi með rauntímaþátttöku á netfundum og/eða staðlotum, eða á kennt á staðnum. Mismunur er á fyrirkomulagi á milli námskeiða og skulu nemendur kynna sér fyrirkomulag hvers námskeiðs vel.
Meginmarkmið
Meðal annar er miðað að því að nemendur:
tileinki sér virðingu fyrir margbreytileika nemenda og geti nýtt þau tækifæri í kennslu sem verða til í fjölbreyttum hópi
þrói með sér námshæfni og sjálfstæð vinnubrögð til að takast á við áframhaldandi nám og faglega þróun
öðlist hæfni til að taka frumkvæði að þróunarverkefnum á sviði skóla án aðgreiningar og fjölmenningar, geti stýrt þeim og axlað ábyrgð á framkvæmd þeirra
Annað
Við brautskráningu úr kennaranámi við íslenska háskóla skal kennari búa yfir hæfni í íslensku sem samsvarar að lágmarki C1 í Evrópska tungumálarammanum.
Hér má sjá Tungumálaramma Evrópuráðsins.
Námið getur veitt aðgang að doktorsnámi.
Námsstig: Meistaranám, M.Ed.
Hefst: Vorönn 2024
Námstími: 2 ár
Umsóknartímabil: 13. september 2024 - 15. október 2024
Námsform: Staðnám eða Fjarnám
Meðferð persónuupplýsinga
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
