Klassískt flytjendanám
Umsókn um háskólanám
B.Mus. - 180 einingar
ISCED flokkur: 0215
Markmið
Námið miðar að því að veita nemendum þá þjálfun sem nauðsynleg er til að starfa sem klassískir tónlistarflytjendur. Víðtæk tækifæri gefast hér til listrænnar sérhæfingar á háskólastigi.
Um námið
Klassíska flytjendanámið er þrískipt: hljóðfæraleikur; söngur; og kirkjutónlist. Námið byggir á reglulegri og markvissri þjálfun þar sem áhersla er lögð á sjálfstæði og skapandi vinnubrögð. Nemendur vinna markvisst að því að öðlast gott vald á tækni og túlkun undir leiðsögn kennara deildarinnar og gestakennara.
Í náminu fá nemendur tækifæri til að kynnast fjölbreyttri flóru tónlistar og móta eigin áherslur. Fræðanámskeið, samstarf í tónlist og þátttaka í fjölbreyttum verkefnum styðja við aðalfagið og efla túlkunarhæfni og sviðsframkomu. Meðan á námstímanum stendur geta nemendur sótt um skiptinám í erlenda tónlistarháskóla.
Meginmarkmið námsleiðarinnar er að veita nemendum djúpa þekkingu og trausta tækni í klassískum hljóðfæraleik og söng. Lögð er áhersla á að nemendur dýpki skilning sinn á aðferðum, stíltegundum og túlkun ólíkra tónverka. Námið er einstaklingsmiðað og hvetur til valdeflingar og frumkvæðis í listsköpun. Áhersla er jafnframt lögð á að nemendur öðlist innsýn inn í tónlist sem fræðigrein. Þannig fá nemendur leiðsögn í því að leita að, og nýta sér, útgefið efni (greinar, nýjustu rannsóknir o.s.frv.) sem byggir undir þekkingu þeirra og færni í að beita gagnrýninni hugsun og ígrundun um það nám sem þau hafa kosið sér.
Inntökuskilyrði eru framhaldspróf í tónlist eða sambærileg hæfni. Að námi loknu búa nemendur yfir staðgóðri og faglegri þekkingu, færni og hæfni innan síns sérsviðs og geta auk þess með vali á sérsniðnum námskeiðum breikkað starfssvið sitt innan tónlistar. Í því samhengi verður frá og með 2. ári boðið upp á að nemendur nýti sér allt val (30 ECTS) í sérstök áherslusvið:
(a) kennslu og miðlun
(b) flytjendanám helgað samtímatónlist.
Uppbygging og námskeið "sérstakra áherslusviða" verður kynnt síðar.
Námsstig: Grunnnám, B.Mus.
Hefst: Haustönn 2026
Námstími: 3 ár
Umsóknartímabil: 14. janúar 2026 - 13. apríl 2026
Námsform: Staðnám
Meðferð persónuupplýsinga
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
