Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Ítalska

Kjörsvið: Ítalska og viðskiptafræði

Umsókn um háskólanám

BA - 120 einingar

ISCED flokkur: 0231

Nám í ítölsku við HÍ er opið bæði nemendum sem hafa enga kunnáttu í ítölsku svo og fyrir lengra komna. Markmið ítölskunáms við Háskóla Íslands er að kenna BA-nemum að njóta ítalskrar tungu, sögu, bókmennta, kvikmynda og lista. Nemendur eru þjálfaðir í notkun málsins og öðlast færni til að lesa og skilja bókmenntatexta út frá félagslegu og sögulegu baksviði þeirra.

Er námið fyrir þig?

  • Hefur þú áhuga á ítalskri tungu?

  • Hefur þú gaman af ítalskri sögu og menningu?

  • Viltu geta talað ítölsku í þínu framtíðarstarfi?

  • Viltu vinna fjölbreytt verkefni undir handleiðslu helstu sérfræðinga landsins í ítölsku?

  • Viltu fjölbreytt úrval námskeiða sem eru á þínu áhugasviði?

  • Langar þig að eiga möguleika á krefjandi framtíðarstarfi?

Um hvað snýst námið?

Nám í ítölsku við HÍ er í góðu samstarfi við tungumálaskóla á Ítalíu og veitir nemendum möguleika á að eyða spennandi tímabili á kafi í tungumálinu auk allrar listar, matarmenningar og arkitektúrs sem hægt er að finna í ítölskum borgum.

Þetta nám er 120 eininga aðalgrein og þurfa nemendur því að bæta við sig 60 eininga aukagrein til þess að ljúka 180 eininga BA námi.

Meðal viðfangsefna

  • Ítölsk málfræði

  • Listasaga Ítalíu

  • Ítalska óperan

  • Málnotkun og talþjálfun

  • Bókmenntir

  • Kvikmyndir frá Ítalíu

  • Latína

  • Land, menning og saga

  • Þýðingar

  • Ítölsk málvísindi

Skipulag og námstilhögun

Námskeiðin sem eru í boði innan BA-náms í ítölsku eru skipulögð á þann hátt að þau henta byrjendum sem og lengra komnum. Hægt er að hafa samband við kennara til að fá nánari upplýsingar um námskeiðin: Stefano Rosatti, aðjunkt (rosatti@hi.is).

Nám í ítölsku er miðað við breytt svið áhugamála og gagnrýninnar nálgunar. Stúdentar geta valið á milli fjölbreyttra námskeiða í ítalskri tungu og bókmenntum, sögu, listasögu, kvikmyndafræði o.s.frv.

Nemendur eru hvattir til að taka þátt í umræðum og sinna einstaklingsverkefnum innan og utan skólastofu.

Öll námskeið eru kennd á ítölsku nema annað sé tekið fram.

Nám erlendis

Vegna samninga við erlenda háskóla er unnt að stunda hluta af námi í greininni erlendis í samráði við fasta kennara. Tvíhliða samningar um stúdentaskipti hafa verið gerðir við marga ítalska háskóla.

Þeir sem eru skráðir í B.A. nám og hafa lokið fyrsta árinu átt möguleika á að sækja um Erasmus styrk, sótt námskeið og tekið próf í fjölmörgum háskólum á Ítalíu sem eru með samning við Háskóla Íslands.

Hægt er að hafa samband við verkefnastjóra deildar og verkefnastjóra alþjóðamála til að fá nánari upplýsingar um nám og skiptinám.

Annað

Þetta nám er einnig hægt að taka sem:

Meira um aðal- og aukagreina undir Hjálplegt efni neðst á síðunni.

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Grunnnám, BA

Hefst: Vorönn 2024

Námstími: 2 ár

Umsóknartímabil: 13. september 2024 - 2. desember 2024

Námsform: Staðnám

haskolanam logo

Meðferð persónuupplýsinga

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið