Fara beint í efnið
Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Háskólanám

Kennsla náttúrugreina

Kjörsvið: Náttúrugreinar fyrir kennara með leyfisbréf

Umsókn um háskólanám

MT - 120 einingar

ISCED flokkur: 0114

MT-námið býr nemendur undir kennslu náttúrugreina. Námið er opið þeim sem hafa lokið B.Ed.-prófi í grunnskólakennslu með áherslu á náttúrugreinar, eða BA/BS-prófi í skyldum greinum. Grunnskólakennarar með leyfisbréf geti sótt námið óháð sérhæfingu í fyrra námi.

Nemendur ljúka MT gráðu án þess að skrifa 30 eininga lokaverkefni.

Er námið fyrir þig?

  • Vilt þú kenna náttúrufræði og tengdar greinar?

  • Viltu stuðla að eflingu og færni barna og ungmenna á náttúrvísindum?

  • Hljómar vel að taka frekar fleiri námskeið í stað þess að skrifa lokaritgerð?

  • Langar þig að verða kennari?

Um hvað snýst námið?

MT nám í kennslu náttúrugreina er ætlað þeim sem hyggjast leggja fyrir sig grunnskólakennslu með sérstaka áherslu á náttúrufræði, eðlisfræði, jarðfæði, lífvísindi, sjálfbærni eða veðurfar.

Námsleiðin er á meistarastigi 2.1 og felur það í sér að nemendur taka kennslufræðitengd námskeið í stað þess að skrifa 30 eininga rannsóknarritgerð.

Uppbygging náms

Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára en einnig er hægt að stunda hlutanám til allt að fjögurra ára.

Kjörsvið

Nemendur velja eitt af eftirfarandi kjörsviðum miðað við fyrra nám:

  • Fimm ára kennaranám fyrir nemendur með B.Ed. próf

  • Kennslufræði grunnskóla að loknu BA/BS-prófi

  • Náttúrugreinar fyrir kennara með leyfisbréf

Mikilvægt er að velja kjörsvið eftir þeim bakgrunni nemanda.

Fyrirkomulag kennslu

Bæði er boðið upp á staðnám og fjarnám. Kennsla fer fram á íslensku.

Námið er að stórum hluta fræðilegt en einnig fá kennaranemar tækifæri til þess að fylgjast með kennslu og æfa sig í að kenna í grunnskóla.

Námið miðar að kennslu í grunnskóla en nýtist þó einnig þeim sem hafa áhuga á því að kenna í framhaldsskólum.

Meginmarkið

Meginmarkmið námsins er að efla þekkingu og færni þátttakenda í náttúrufræðigreinum og kennslufræðum tengdum þessum greinum þannig að þeir verði betur í stakk búnir að kenna náttúrufræðigreinar.

Annað

  • Námið veitir rétt til þess að sækja um kennsluréttindi sem að gildir fyrir þrjú skólastig, leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.

  • Námsleiðin er á meistarastigi 2.1 en ljúka þarf gráðu af meistarastigi 2.2 ef sækja á um í doktorsnám. Námið veitir aðgang að námi á meistarastigi 2.2.

  • Sjá M.Ed. nám í kennslu náttúrugreina

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Meistaranám, MT

Hefst: Vorönn 2025

Námstími: 2 ár

Umsóknartímabil: 15. september 2025 - 15. október 2025

Námsform: Staðnám eða Fjarnám