Þroskaþjálfafræði
Kjörsvið: Rannsóknarmiðað MA-nám
Umsókn um háskólanám
MA - 120 einingar
ISCED flokkur: 0919
Meistaranám í þroskaþjálfafræði veitir þeim sem lokið hafa BA-námi í þroskaþjálfafræði tækifæri til að dýpka þekkingu og auka færni á fjölbreytilegu fag- og fræðasviði og kynnast nýjum áherslum og leiðum í rannsóknum og þjónustu. Nemendur þjálfast í að greina viðfangsefni og takast á við álitamál og áskoranir á fræðilegum grunni og út frá félagslegum skilningi á fötlun og margbreytileika. Fjarnám.
Er námið fyrir þig?
Ert þú með BA gráðu í þroskaþjálfafræði?
Vilt þú dýpka þekkingu þína í fræðunum?
Vilt þú fræðast um nýjar áherslur og leiðir í þjónustu sem fagstéttin veitir?
Langar þig í framhaldsnám?
Um hvað snýst námið?
Í meistaranámi í þroskaþjálfafræði er lögð áhersla á að nemendur dýpki þekkingu og skilning á helstu stefnum, rannsóknum og kenningum í þroskaþjálfafræði og á öðrum fræðasviðum er leggja grundvöll að störfum fagstéttarinnar.
Nemendur kynnast nýjum íslenskum og erlendum rannsóknum á fræðasviðinu. Einnig er fjallað um nýjar áherslur og leiðir í þjónustu sem fagstéttin veitir úti á vettvangi og þeim áskorunum sem hún stendur frammi fyrir á hverjum tíma.
Í náminu er gengið út frá félagslegum skilningi á fötlun og margbreytileika og áhersla er lögð á að nemendur þjálfist í beitingu mannréttindasjónarhorns við að greina stöðu fatlaðs fólks og annarra jaðarhópa. Nemendur kynnast rannsóknarleiðum sem nýtast við rannsóknir á sviði þroskaþjálfafræða.
Uppbygging náms
Námið er 120 einingar og er skipulagt sem fullt nám til tveggja ára. Einnig er hægt að stunda hlutanám í þrjú til fjögur ár.
Nemendur velja á milli eftirfarandi kjörsviða:
Í rannsóknarmiðuðu námi er nemendum gefinn kostur á að sérhæfa sig í rannsóknum á vettvangi fatlaðs fólks. Nemendur dýpka þekkingu sína í rannsóknum og fræðistörfum t.d. í þeim tilgangi að undirbúa sig undir doktorsnám. Lokaverkefni er 40 einingar.
Í starfstengdu meistaranámi geta nemendur sérhæft sig á tilteknum sviðum sem eru annars vegar þroskaþjálfafræði með áherslu á þjónustu við fullorðna og aldraða og hins vegar með áherslu á þjónustu við fötluð börn og ungmenni.Lokaverkefni er 30 einingar.
Námið skiptist í:
Skyldunámskeið eru að lágmarki 60 einingar, þar af aðferðafræði 10-20 einingar
Lokaverkefni 30-40 einingar
Val 10-20 einingar
Fyrirkomulag kennslu
Kennsla og próf fara fram á íslensku.
Meginmarkmið
Meginmarkmið námsins er að nemendur upplifi sig að námi loknu sem sterka fagmenn sem byggja starf sitt á framsæknum fræðilegum grunni.
Annað
Einnig er boðið upp á:
Námið veitir aðgang að doktorsnámi
Námsstig: Meistaranám, MA
Hefst: Vorönn 2024
Námstími: 2 ár
Umsóknartímabil: 13. september 2024 - 15. október 2024
Námsform: Staðnám eða Fjarnám
