Opinber stjórnsýsla
Kjörsvið: Opinber stjórnsýsla
Umsókn um háskólanám
Örnám á framhaldsstigi - 30 einingar
ISCED flokkur: 0413
Hagnýt námsleið fyrir þau sem lokið hafa BA- eða BS-námi í einhverri grein. Nám í opinberri stjórnsýslu greiðir leið og styrkir nemendur í starfi á fjölbreyttum og lifandi starfsvettvangi, jafnt hjá stofnunum ríkis og sveitarfélaga, sem og í starfi hjá félagasamtökum.
Er námið fyrir þig?
Vilt þú fara í stutt en hagnýtt nám sem þú getur stundað samhliða vinnu?
Langar þig að auka þekkingu þína á stjórnun og stjórnsýslu hins opinbera?
Starfar þú eða hefur þú áhuga á að starfa hjá ríki, sveitafélögum eða félagasamtökum?
Hentar þér vel að fara í fjarnám?
Um hvað snýst námið?
30 eininga hagnýtt nám í opinberri stjórnsýslu greiðir þér leið og styrkir þig í starfi á fjölbreyttum og lifandi starfsvettvangi, jafnt hjá stofnunum ríkis og sveitarfélaga, sem og í starfi hjá félagasamtökum.
Uppbygging náms
Námið er 30 einingar og sett upp sem hlutanám til eins árs.
Nemendur velja á milli eftirfarandi kjörsviða:
Opinber stjórnsýsla
Opinber stjórnsýsla fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu
Meðal viðfangsefna
Ólíkar aðferðir sem notaðar eru til opinberrar stefnumótunar
stjórnunaraðferðir í mannauðsstjórnun
Skipulag og þróun opinberrar stjórnsýslu
Grundvallarhugtök stjórnsýslufræðanna
Íslensk stjórnvöld
Íslenska stjórnsýslukerfið
Fyrirkomulag kennslu
Námið er kennt á íslensku en kennslubækur eru á ensku.
Meginmarkmið
Meðal annars er miðað að því að nemendur öðlist þekkingu á:
uppbyggingu íslenska stjórnsýslukerfisins
grundvallarhugtökum sem varða stjórnsýslukerfið, verkefni stjórnvalda og meðferð stjórnsýslumála
þróun opinberrar stjórnsýslu
Annað
Nemendur sem sem sækja um meistaranám í opinberri stjórnsýslu MPA og fá heimild til að innritast í það fá örnám sitt metið að fullu (30e) inn í MPA-námið.
Námsstig: Meistaranám, Örnám á framhaldsstigi
Hefst: Haustönn 2026
Námstími: 1 ár
Umsóknartímabil: 28. febrúar 2026 - 5. júní 2026
Námsform: Staðnám eða Fjarnám
