Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Ferðamálafræði

Umsókn um háskólanám

Grunndiplóma - 90 einingar

ISCED flokkur: 1015

Diplómanám í ferðamálafræði er stutt og hagnýtt nám. Námið spannar eitt ár (3 annir) og er 90 ECTS einingar. Þar af er verknám 30 ECTS einingar. Diplómanám í ferðamálafræði undirbýr fólk fyrir störf í ferðaþjónustu og frekara nám. Í náminu er rík áhersla á náttúru, menningu og sjálfbæra þróun. Í náminu öðlast nemendur innsýn í ferðaþjónustu sem atvinnugrein, markaðsmál og rekstur, móttöku ferðamanna, eðli afþreyingar og gerð göngustíga.

Nemendur sem ljúka diplomanámi í ferðamálafræði öðlast einnig landvarðaréttindi í samstarfi við Umhverfisstofnun.

Nemandi getur bætt diploma í ferðamálafræði ofan á fyrra nám og þannig sérhæft sig á sviði ferðamála og/eða nýtt námið sem stökkpall inn í frekara nám. Að loknum 60 ECTS einingum í diplómanámi getur nemandi farið beint inn á annað ár í BA námsleiðum Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum.

Námið er fjarnám en gert er ráð fyrir að nemendur mæti í lotur tvisvar til þrisvar á önn. Að öðru leyti geta nemendur sinnt náminu á þeim tíma sem þeim hentar innan ramma hvers námskeiðs. Nemendur eru að jafnaði í þremur námskeiðum í einu á meðan á námstímanum stendur. Fjögur af fimm námskeiðum hverrar annar spanna hálfa önn (6-7 vikur) en eitt námskeið nær yfir alla önnina. Verknám fer að jafnaði fram að sumri og nemendur brautskrást að hausti. Hægt er að stunda námið samhliða vinnu.

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Grunnnám, Grunndiplóma

Hefst: Haustönn 2024

Námstími: 1.5 ár

Umsóknartímabil: 2. mars 2024 - 5. júní 2024

Námsform: Fjarnám

haskolanam logo

Meðferð persónuupplýsinga

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið