Fara beint í efnið
Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Háskólanám

Faggreinakennsla

Kjörsvið: Tónmennt

Umsókn um háskólanám

Viðbótardiplóma - 60 einingar

ISCED flokkur: 0114

Námsleið ætluð starfandi kennunum sem óska þess að bæta við sérhæfingu sína í faggrein og kennslufræði faggreinar.

Er námið fyrir þig?

  • Ert þú með kennsluréttindi?

  • Vilt þú kynnast nýrri nálgun í skólastarfi?

  • Hefur þú áhuga á að efla og þróa þig í starfi?

  • Sækist þú eftir aukinni fagþekkingu?

Um hvað snýst námið?

Í faggreinakennslu til viðbótardiplómu er lögð á að nemendur fái tækifæri til að efla fagmennsku sína og þróa sig í starfi, meðal annars með því að kynnast nýjum hugmyndum og rannsóknum um faggreinamenntun. Með aukinni fagþekkingu styrkjast kennarar og geta unnið þróunarstarf í kennslu í faggrein sinni.

Uppbygging náms

Námið er 60 einingar og er sett upp sem fullt nám í eitt ár en einnig er hægt að stunda hlutanám til allt að fjögurra ára.

Námið skiptist í:

  • 25 einingar af völdu kjörsviði í faggrein

  • 35 einingar í frjálsu vali

Kjörsvið

Nemendur velja á milli eftirfarandi kjörsviða:

  • Átak í dönskukennslu

  • Enska

  • Hönnun og smíði

  • Sjónlistir: Myndmennt

  • Íslenska

  • Íslenska sem annað mál

  • Leiklist

  • Textílmennt

  • Tónmennt

  • Samfélagsgreinar

  • Stærðfræði

  • Náttúrugreinar

  • Upplýsingatækni og miðlun

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á íslensku.

Námskeið eru í boði bæði í staðnámi og í fjarnámi með staðbundnum lotum.

Meginarkmið

Meginmarkmið námsleiðarinnar er að kennarar dýpki skilning sinn, þekkingu og færni í fagi sínu og kennslufræði þess.

Annað

Mögulegt er að sækja um nám til meistaraprófs við HÍ að loknu námi til viðbótardiplómu með fyrstu einkunn.

Við brautskráningu úr kennaranámi við íslenska háskóla skal kennari búa yfir hæfni í íslensku sem samsvarar að lágmarki C1 í Evrópska tungumálarammanum. Hér má sjá Tungumálaramma Evrópuráðsins.

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Meistaranám, Viðbótardiplóma

Hefst: Vorönn 2024

Námstími: 1 ár

Umsóknartímabil: 13. september 2024 - 2. desember 2024

Námsform: Staðnám eða Fjarnám