Fara beint í efnið
Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Háskólanám

Opinber stjórnsýsla

Kjörsvið: Stjórnsýsluréttur

Umsókn um háskólanám

MPA - 120 einingar

ISCED flokkur: 0413

Námsleið sem greiðir leið og styrkir nemendur í starfi á fjölbreyttum og lifandi starfsvettvangi, jafnt hjá stofnunum ríkis og sveitarfélaga, sem og í starfi hjá félagasamtökum.Í náminu kynnist fólk með ólíka menntun og starfsreynslu sem á það sameiginlegt að vilja efla fræðilega og hagnýta þekkingu sína á sviði stjórnunar innan hins opinbera eða á sviðum sem því tengjast.

Er námið fyrir þig?

  • Vilt þú öðlast fræðilega og hagnýta þekkingu á stjórnun og stjórnsýslu hins opinbera?

  • Starfar þú eða hefur þú áhuga á að starfa hjá ríki, sveitafélögum eða félagasamtökum?

  • Hentar þér vel að fara í fjarnám?

  • Vilt þú þróa með þér nauðsynlega námshæfni til að takast á við frekara nám?

Um hvað snýst námið?

Tveggja ára fræðilegt og hagnýtt framhaldsnám (rannsóknatengt framhaldsnám) þar sem nemendur útskrifast með prófgráðuna magister publicarum administrationis, MPA.

Uppbygging náms

Námið er 120 einingar og sett upp sem fullt nám til tveggja ára en einnig stendur til boða að vera í hluta námi og ljúka náminu á lengri tíma

Nemendur velja á milli eftirfarandi kjörsviða:

  • MPA

  • Alþjóðasamskipti

  • Evrópuréttur

  • Fötlunarfræði

  • Hagnýt jafnréttisfræði

  • Lýðheilsuvísindi

  • Mannauðsstjórnun

  • Nýsköpun og þróun þjónustu og starfshátta

  • Stjórnsýsla sveitarfélaga

  • Stjórnsýsluréttur

  • Stjórnun menntastofnana

  • Umhverfisstjórnun

  • Upplýsingastjórnun og rafræn samskipti

  • Verkefnastjórnun

  • Þjóðaréttur

Meðal viðfangsefna

  • Stjórntæki hins opinbera

  • Skipulag og stjórnun stofnana

  • Stjórnsýsluréttur fyrir stjórnendur og starfsmenn opinberra stofnana

  • Rekstrarhagfræði, markaðsbrestir og ríkisafskipti

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt í fjarnámi sem auðveldar fólki að stunda námið samhliða vinnu.

Námið er kennt á íslensku en kennslubækur eru á ensku.

Meginmarkmið

Meðal annars er miðað að því að nemendur:

  • fræðist um þær ólíku aðferðir sem notaðar eru til opinberra stefnumótunar

  • tileinki sér mismunandi stjórnunaraðferðir og öðlist færni í mannauðsstjórnun

  • öðlast þekkingu á verkefnum forystufólks og árángursríkum vinnubrögðum

  • öðlast kunnáttu á sviði stjórnsýsluréttar

Annað

Einnig er í boði upp á 30 eininga örnám í opinberri stjórnsýslu.

Námið veitir aðgang að doktorsnámi. Sjá doktorsnám í opinberri stjórnsýslu.

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Meistaranám, MPA

Hefst: Vorönn 2025

Námstími: 2 ár

Umsóknartímabil: 15. september 2025 - 15. október 2025

Námsform: Staðnám eða Fjarnám