Fara beint í efnið
Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Akademísk enska

Umsókn um háskólanám

Grunndiplóma - 60 einingar

ISCED flokkur: 0231

Akademísk enska er hagnýt námsleið til diplómaprófs á BA-stigi sem ætluð er þeim sem vilja styrkja færni sína í að nota ensku í öðrum námsgreinum í háskólanum.

Er námið fyrir þig?

  • Þarftu að nota ensku í þínu námi en vantar betri grunn?

  • Viltu ná góðum tökum á ensku í þinni námsgrein?

  • Finnst þér gaman að læra tungumál?

  • Viltu styrkja kunnáttu þína í ensku?

Um hvað snýst námið?

Akademísk enska er 60 eininga hagnýt námsleið til diplómaprófs á BA-stigi sem er ætluð háskólanemendum sem vilja styrkja færni sína í að nota ensku í háskólanámi í öðrum námsgreinum.

Sérstök áhersla er lögð á að undirbúa nemendur til þess að takast á við nám þar sem enska er helsta kennslumálið eða námsefni er aðallega á ensku.

Einnig er hægt að taka eitt eða fleiri námskeið samhliða öðru námi við Háskóla Íslands. Mat inn í námsleiðir er háð samþykki viðkomandi deildar/sviðs.

Námsleiðin er kennd á ensku.

Nemendur sem hefja nám í akademískri ensku verða að hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambærilegu prófi frá erlendum skóla í samræmi við reglur Háskóla Íslands.

Helstu áherslur í náminu

  • Tal

  • Hlustun

  • Ritun

  • Orðaforði

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Grunnnám, Grunndiplóma

Hefst: Haustönn 2024

Námstími: 1 ár

Umsóknartímabil: 2. mars 2024 - 5. júní 2024

Námsform: Staðnám

haskolanam logo

Meðferð persónuupplýsinga

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið