Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Viðskiptafræði

Umsókn um háskólanám

BS - 120 einingar

ISCED flokkur: 0488

Viðskiptafræði sem aðalgrein 120e byggir á sterkum grunni almennra viðskiptafræðigreina eins og fjármálafræði, markaðsfræði, reikningshaldi, rekstrarhagfræði og stjórnun. Námið veitir nemendum færi á að læra aðra 60 eininga námsgrein samhliða viðskiptafræði.

Er námið fyrir þig?

  • Hefur þú áhuga á stjórnun og markaðsfræði?

  • Langar þig að kynnast fjármálafræði, reikningshaldi og rekstrarhagfræði?

  • Finnst þér spennandi að taka hluta námsins í öðru fagi?

  • Viltu almenna og þverfaglega menntun?

Um hvað snýst námið?

Viðskiptafræði sem 120 eininga aðalgrein þýðir þú þarft að taka 60 eininga aukagrein í öðru fagi, ef þú stefnir á að ljúka BS prófi.

Námið er sett upp sem fullt nám til tveggja ára og allar 120 einingarnar eru í skyldunámskeiðum.

Meðal mögulegra aukagreina má nefna:

  • hagfræði

  • stjórnmálafræði

  • fjölmiðlafræði

  • heimspeki

  • lögfræði

Þessi upptalning er ekki tæmandi. Hér má sjá lista yfir allt nám sem boðið er upp á sem aukagrein í grunnnámi.

Þú finnur frekari upplýsingar um Aðalgreinar og aukagreinar í grunnnámi undir Hjálplegt efni, neðst á síðunni.

Annað

Viðskiptafræði er einnig hægt að taka sem:

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Grunnnám, BS

Hefst: Vorönn 2025

Námstími: 2 ár

Umsóknartímabil: 15. september 2025 - 1. desember 2025

Námsform: Staðnám

haskolanam logo

Meðferð persónuupplýsinga

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið