Fara beint í efnið
Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Þýska

Umsókn um háskólanám

Grunndiplóma - 60 einingar

ISCED flokkur: 0231

Menntun í þýsku opnar dyr að málsvæði sem er Íslendingum mjög mikilvægt í menningar-, stjórnmála- og efnahagslegu tilliti. Þýska er móðurmál um 90 milljóna Evrópubúa og opinbert tungumál fimm evrópskra ríkja sem við tengjumst með margvíslegum hætti í alþjóðlegu samstarfi.

Er námið fyrir þig?

  • Vilt þú fara í stutt og hnitmiðað þýskunám sem styrkir þig í starfi eða leik?

  • Hefur þú áhuga á menningu og sögu Þýskalands?

  • Hefur þú gaman af tungumálum?

  • Talar þú þýsku?

Um hvað snýst námið?

Þetta diplómanám er hægt að fá metið að mestum hluta til BA-gráðu ef þú ákveður að halda áfram þýskunámi. Námsleiðina er hægt að taka í fjarnámi.

Diplómanámið er ætlað þeim sem vilja búa sig undir störf þar sem sérstaklega reynir á almenna og starfstengda þýskukunnáttu, til dæmis í viðskiptum, ferðaþjónustu og alþjóðasamskiptum, sem og nám og störf í þýskumælandi löndum.

Meðal viðfangsefna

  • Tal og tjáskipti

  • Málfræði og framburður

  • Hagnýt þýska fyrir atvinnulíf

Markmið

Markmið eins árs diplómanáms í þýsku sem og náms í hagnýtri þýsku er að nemendur:

  • bæti færni sína í talaðri og ritaðri þýsku og auki orðaforða sinn, einkum með tilliti til þátttöku í atvinnulífinu

  • hljóti undirbúning undir störf í atvinnulífinu, t.d. í ferðaþjónustu, verslun og stjórnsýslu.

Kennsluhættir

Þýska er einkum kennd í æfinga- og umræðuformi og að nokkru leyti í formi fyrirlestra, auk þess sem heimavinna, fjölbreytt verkefnavinna og ritgerðasmíð er veigamikill þáttur í náminu.

Einnig er boðið upp á 90 eininga diplómu í hagnýtri þýsku fyrir atvinnulífið.

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Grunnnám, Grunndiplóma

Hefst: Vorönn 2024

Námstími: 1 ár

Umsóknartímabil: 13. september 2024 - 2. desember 2024

Námsform: Staðnám eða Fjarnám