Fara beint í efnið
Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Líffræði

Kjörsvið: Sjávar- og vatnalíffræði

Umsókn um háskólanám

MS - 120 einingar

ISCED flokkur: 0511

Tvö kjörsvið:

Líffræðin er víð fræðigrein og spannar allt frá minnstu lífefnafræðilegu sameindum upp í risastór flókin vistfræðikerfi.

Er námið fyrir þig?

  • Hefur þú áhuga á rannsóknum?

  • Vilt þú auka sérhæfingu þína á ákveðnu sviði líffræðinnar?

  • Hefur þú áhuga á uppbyggingu og virkni sjávar- og vatnavistkerfa?

  • Vilt þú ná aukinni færni í lestri og umfjöllun rannsóknargreina?

  • Langar þig í nám sem fer fram bæði úti á vettvangi og inni á rannsóknarstofu?

  • Langar þig að kafa dýpra í erfðafræði?

Um hvað snýst námið?

Líffræðin er fræðilegt og rannsóknarmiðað nám þar sem nemendur vinna við rannsóknir við deildina en einnig á öðrum rannsóknarstofnunum svo sem Landspítala, Umhverfisstofnun, Matís og Hafrannsóknarstofnun.

Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára og boðið er upp á tvö kjörsvið, Líffræði og Sjávar- og vatnalíffræði.

Kjörsvið: Líffræði

Algengast er að meistaraverkefni sé 90 einingar og námskeið eða annað nám kemur þá á móti þar til 120 einingum er náð.

Námið er kennt á Íslensku og ensku í sumum tilvikum. Kennslubækur eru á ensku eða Norðurlandamáli og fyrirlestranótur á íslensku.

Meðal viðfangsefna

  • Bygging og starfsemi fruma

  • Erfðir og hvernig eiginleikar erfast á milli lífvera

  • Einkenni tegunda og aðgreining þeirra

  • Innri starfsemi lífvera og hegðun

  • Samfélög og vistkerfi og áhrif mannsins á þessi kerfi

Meginmarkmið kjörsviðs
Miðað er að því að nemendur:

  • öðlist færni í sjálfstæðum vinnubrögð í alþjóðlegu umhverfi

  • öðlist færni til þess að stunda rannsóknir og afla nýrrar þekkingar

  • þrói með sér gagnrýna hugsun um hvernig vísindi virka

Kjörsvið: Sjávar- og vatnalíffræði

Efni námskeiða og verkefna byggja á sérfræðiþekkingu starfsmanna við Háskóla Íslands og Hafrannsóknarstofnunar sem sjá um kennsluna og einnig samstarfsaðila á Íslandi. Möguleiki er á að vinna rannsóknarverkefni við aðrar rannsóknarstofnanir.

Viðfangsefni námskeiða og mögulegra verkefna munu endurspegla þessa þekkingu í fiskifræði, vatnalíffræði, sjávarvistfræði, haffræði og umhverfisfræði og einnig notkun ólíkra aðferða við rannsókir á lífríkinu þ.á.m. notkun líkana og tölfræði við stofnstærðarmat, greiningu á kvörnum, hljóðum og merkingum, nýtingu útlits og erfðaupplýsinga við rannsóknir á lífríki ferskvatns og sjávar, bæði samfélögum og stofnum lífvera til dæmis fiska, sjávarspendýra og fugla.

Meginmarkmið kjörsviðs
Miðað er að því að nemendur:

  • breikki og dýpki þekkingu sína á völdu sérsviði innan líffræði og öðlist kerfisbundinn skilning á nýjustu þekkingu á því sviði og rannsóknaraðferðum.

  • geti sett saman og þróað viðeigandi aðferðir í líffræði í því skyni að svara rannsóknaspurningum á sínu sérsviði.

  • geti sett fram nýjar tilgátur sem snerta eigin rannsóknaviðfangsefni.

Nánari upplýsingar
Námsleiðin er í boði sem kjörsvið innan MS náms í líffræði. Þar af leiðandi skal sækja um í MS nám í líffræði en tilgreina í greinargerð að nemandi sé að sækja um nám í sjávar- og vatnalíffræði.

Nánari upplýsingar um námið og umsóknir veita Nemendaþjónusta VoN (mssens@hi.is ), Arnar Pálsson (apalsson@hi.is) og Theodór Kristjánsson (theodor.kristjansson@hafogvatn.is).

Annað

Framhaldsnám í líffræði er oft styrkt eða launað.

Meistaragráða í líffræði opnar möguleika á doktorsnámi.

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Meistaranám, MS

Hefst: Vorönn 2024

Námstími: 2 ár

Umsóknartímabil: 13. september 2024 - 15. október 2024

Námsform: Staðnám

haskolanam logo

Meðferð persónuupplýsinga

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið