Jarðfræði
Kjörsvið: Jarðfræði
Umsókn um háskólanám
MS - 120 einingar
ISCED flokkur: 0532
Ísland er ungt og mjög virkt land og því er jarðfræði mikilvægt fag á Íslandi.
Meistaranám í jarðfræði er rannsóknartengt framhaldsnám þar sem megin áhersla er lögð á stórt rannsóknarverkefni sem nemendur vinna sjálfstætt undir leiðsögn kennara Jarðvísindadeildar eða sérfræðings Jarðvísindastofnunar.
Er námið fyrir þig?
Vilt þú auka sérhæfingu þína á ákveðnu sviði jarðfræðinnar?
Hefur þú áhuga á orku og auðlindum jarðar?
Vilt þú ná aukinni færni í rannsóknum?
Langar þig að læra meira um endurnýjanlega orku?
Skipta lofslagabreytingar þig máli?
Um hvað snýst námið?
MS nám í jarðfræði er tveggja ára rannsóknartengt framhaldsnám við Jarðvísindadeild Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands.
Rannsóknarþátturinn skiptir megin máli í meistaranáminu og er það helsta breytingin frá grunnnáminu.
Nemendur fá þjálfun í greiningu og túlkun gagna á sviði náttúruvísinda en jarðfræði er undistaða í vöktun á margskonar náttúruvá.
Uppbygging náms
Námið er 120 einingar og er skipulagt sem fullt nám til tveggja ára.
Námið skiptist í:
Skyldunámskeið, 7,5 - 17,5 einingar
Valnámskeið, 102,5 - 112,5 einingar
Meistaraverkefni, 60 einingar
Mikið er um valnámskeið og geta nemendur þá sniðið námið eftir sínu áhugasviði.
Val er á milli eftirfarandi tveggja kjörsviða:
Fyrirkomulag kennslu
Kennsla fram á íslensku og/eða ensku en kennslubækur eru almennt á ensku.
Meginmarkmið
Að nemendur eflist og styrkist í rannsóknum og öðlist mikilvæga þjálfun í greiningu og túlkun gagna á sviði náttúruvísinda.
Að nemendur tileinki sér þekkingu á sérhæfðu sviði innan jarðfræði.
Annað
Meistaragráða í jarðvísindum opnar möguleika á doktorsnámi.
Námsstig: Meistaranám, MS
Hefst: Vorönn 2024
Námstími: 2 ár
Umsóknartímabil: 13. september 2024 - 15. október 2024
Námsform: Staðnám
