Fara beint í efnið
Háskólanám Forsíða
Háskólanám Forsíða

Háskólanám

Tungumálakennsla

Kjörsvið: Þýska

Umsókn um háskólanám

MT - 120 einingar

ISCED flokkur: 0114

Tungumálakunnátta er mikilvæg í vaxandi fjölmenningarsamfélagi. Námið byggir á uppeldis- og kennslufræði og kjörsviði þess tungumáls sem þú velur. Námið er hagnýtt að hluta með kennslu á vettvangi.

MT gráða í tungumálakennslu uppfyllir öll skilyrði til að fá réttindi sem kennari í tungumáli kjörsviðs.

Er námið fyrir þig?

  • Langar þig að öðlast kennsluréttindi?

  • Vilt þú öðlast þekkingu á almennri kennslufræði og góða þekkingu á kennslufræði erlendra tungumála?

  • Getur þú séð fyrir þér að kenna ákveðið tungumál í grunn- eða framhaldsskóla?

  • Ert þú að huga að framhaldsnámi?

Um hvað snýst námið?

Hér er um að ræða starfsmiðað réttindanám fyrir starfandi og verðandi kennara. Jafnframt er það undirbúningur fyrir störf sem fela í sér umsjón með tungumálakennslu í skólum eða fræðsluumdæmum.

Nemendur í MT námi taka námskeið í stað lokaritgerðar.

Uppbygging náms

Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára.

Námið skiptist í:

  • Skyldunámskeið, 65 einingar

  • Vettvangsnám, 10 einingar

  • Valnámskeið, 45 einingar

Nemendur velja á milli eftirfarandi kjörsviða:

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á tungumáli kjörsviðs og íslensku.

Námið skiptist í tvo hluta:

  • Í fyrsta hluta eru námskeið sem fjalla um uppeldis- og kennslufræði og tilheyra þau flest Menntavísindasviði, 60 einingar.

  • Í öðrum hluta eru námskeið í því tungumáli sem nemandinn hefur valið. Þessi námskeið tilheyra yfirleitt Hugvísindasviði eða eru metin úr námi við erlenda háskóla, 60 einingar.

Hluti námsins fer fram á vettvangi. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum.

Sjá nánar um MT nám í menntun framhaldsskólakennara

Meginmarkmið

Markmiðið með meistaranáminu er að efla færni nemenda við kennslu á því tungumáli sem nemandi sérhæfir sig í.

Annað

Nemandi sem lýkur MA-námi í kennslu erlends tungumáls uppfyllir öll skilyrði til að fá réttindi sem kennari í viðkomandi erlendu tungumáli.

MT próf veitir námið aðgang að meistaranámi.

Sjá nánar á vef háskóla

Námsstig: Meistaranám, MT

Hefst: Haustönn 2024

Námstími: 2 ár

Umsóknartímabil: 2. mars 2024 - 15. apríl 2024

Námsform: Staðnám