Um verkefnið
Frumkvæði er verkefni fyrir þau sem eru á atvinnuleysisskrá og vilja skapa sér eigið starf og fara út í eigin rekstur.
Þátttakendur fá fræðslu og leiðsögn, kanna þörf fyrir væntanlega þjónustu eða vörur sínar á markaði og gera viðskiptaáætlun um viðkomandi verkefni. Þannig geta þeir metið hvort verkefnið sé raunhæft og hvað þurfi til svo að unnt sé að búa til starf.
Lengd verkefnis
Verkefnið er í heildina 6 mánuðir en hægt er að stytta verkefnið ef þátttakandi óskar eftir því.
Fræðsla
Fræðslan stendur yfir í þrjá mánuði. Þátttakendur fá aðgang að fræðsluefni á vefnum um gerð viðskiptáaætlana. Fræðsluefnið er í formi fyrirlestra á netinu, þeir eru á íslensku en hver þáttur er textaður á ensku.
Ennfremur fá þátttakendur handleiðslu og ráðgjöf í hverri viku, frá handleiðara og frá starfsfólki Frumkvæðis þar sem meðal annars er farið í viðskiptaáætlanir, kynningar, fyrirtækjaform og ferlið við að stofna fyrirtæki.
Vinnustofa
Þátttakendur hittast á vinnustofu eða í fyrirtækjasmiðju á viku fresti í allt að 12 skipti. Þeir skuldbinda sig til að mæta í fyrirlestra einu sinni til tvisvar í viku, taka virkan þátt, vinna að viðskiptaáætlun sinni jafnt og þétt og kynna hana fyrir hópnum.
Kynningarnar samanstanda af:
einni 1 mínútna lyfturæðu,
fjórum 1 mínútna stöðuskýrslum,
tveimur 5 mínútna fjárfestakynningum með glærum.
Mikil áhersla er á jafningjafræðslu sem þýðir að þátttakendur gefa hver öðrum endurgjöf eftir kynningar.
Framhald
Eftir þrjá mánuði þurfa þátttakendur að skila inn 6-12 blaðsíðna viðskiptaáætlun til Vinnumálastofnunar sem kallar þá á fund til að fara yfir áætlunina, stöðu verkefnis og framhald þess.
Í lok verkefnis
Þau sem fá samþykkta 6 mánuði þurfa í lok verkefnis að skila inn lokaskýrslu og mæta á lokafund hjá ráðgjöfum Frumkvæðis. Þar þurfa þau einnig að staðfesta hvort farið sé alfarið af atvinnuleysiskrá og í vinnu hjá fyrirtækinu, farið í hlutastarf eða hætt við hugmyndina.
Ef hætt er við viðskiptahugmyndina eða í verkefninu þarf að skrifa undir yfirlýsingu um að viðkomandi muni ekki hefja rekstur án þess að tilkynna um það til Vinnumálastofnunar.
Ná í yfirlýsingu vegna reksturs eða verktakavinnu
Hægt er að senda tilkynninguna á netfangið: frumkvaedi@vmst.is
Umsóknarferli
Tekið er á móti umsóknum rafrænt frá 1. til 31. hvers mánaðar. Umsóknir eru metnar og afgreiddar fyrir 15. næsta mánaðar og fá allir umsækjendur tölvupóst um afgreiðsluna.
Alla jafna hefst fræðslan í þar næsta mánuði.
Dæmi: umsóknir sem berast í september eru afgreiddar í október og hefst þá fræðslan í nóvember.
Staðfesta atvinnuleit
Atvinnuleitendur þurfa að staðfesta atvinnuleit í hverjum mánuði á Mínum síðum milli 20. - 25. á hefðbundinn hátt en eru samt undanþegnir atvinnuleit á meðan á verkefni stendur og reynt er á viðskiptahugmyndina.
Hægt er að senda fyrirspurnir á ráðgjafa Frumkvæðis á netfangið: frumkvaedi@vmst.is
Þjónustuaðili
Vinnumálastofnun