Þú átt rétt til að krefjast þess að persónuupplýsingum þínum verði eytt af vefsvæðum, gagnagrunnum eða öðrum kerfum, þegar ákveðin skilyrði eru uppfyllt.
Þetta kallast rétturinn til að gleymast.
Afgreiðslutími
Fyrirtæki eða stofnun verður að bregðast við eins fljótt og hægt er og ekki seinna en 1 mánuði frá beiðnin barst.
Við ákveðnar aðstæður má lengja frestinn um 2 mánuði. Í þessu tilviki verður að upplýsa þig:
innan 1 mánaðar frá beiðni þinni
um hvers vegna það er seinkun
rétt til að leggja fram kvörtun til Persónuverndar
Skilyrði
Þú getur óskað eftir eyðingu persónuupplýsinga þinna þegar:
persónuupplýsingarnar eru ekki lengur nauðsynlegar fyrir þann tilgang sem þeim var safnað eða unnið
þú dregur samþykki þitt til baka og enginn annar lögmætur grundvöllur er fyrir vinnslu upplýsinganna
þú mótmælir vinnslu og engin lögmæt ástæða er fyrir áframhaldandi vinnslu
vinnsla persónuupplýsinga er ólögmæt, til dæmis ef þeim var safnað án samþykkis
persónuupplýsingum þarf að eyðatil að uppfylla lagalegar skyldur
upplýsingar varða barn sem var undir 16 ára aldri þegar þeim var safnað
Réttur á ekki við
Rétturinn til gleymast á almennt ekki við um vinnslu persónuupplýsinga hjá stjórnvöldum þar sem þau eru bundin að lögum til að varðveita skjöl og aðrar upplýsingar sem þeim berast.
Fyrirtæki og stofnanir mega neita að eyða upplýsingum þegar vinnsla er nauðsynleg til að:
nýta tjáningarfrelsi og upplýsingafrelsi sitt
uppfylla lagalega skyldu til að sinna verkefni sem er unnið í þágu almannahagsmuna
tryggja lýðheilsu eða almannahagsmuni
tryggja skjalavistun í þágu almannahagsmuna, vegna vísindarannsókna, sagnfræðilegra rannsókna og tölfræðivinnslu
setja fram, hafa uppi eða verja réttarkröfur
Upplýsingar um þig afmáðar úr leitarvélum á netinu
Meta þarf í hverju tilviki fyrir sig hvort skilyrði séu fyrir því að þegar nafni einstaklings sé flett upp í leitarvél, verði leitarniðurstöður á netinu afmáðar (sömu sjónarmið gilda og um réttinn til að persónuupplýsingum verði eytt), eða hvort réttmætt sé að upplýsingarnar séu aðgengilegar.
Þá þarf einnig að meta:
hagsmuni einstaklings af friðhelgi einkalífs og vernd persónuupplýsinga um hann.
hagsmuni almennings af því að upplýsingarnar séu aðgengilegar með þessum hætti.
Matsatriði
Meta þarf meðal annars:
hversu viðkvæmar persónuupplýsingarnar eru sem um ræðir.
hvort viðkomandi einstaklingur sé opinber persóna eða gegni hlutverki á opinberum vettvangi, svo áhrif hafi á einkalífsvernd viðkomandi.
hvort viðkomandi einstaklingur er barn.
hversu nákvæmar og áreiðanlegar upplýsingarnar eru.
hverjir hagsmunir almennings eru af því að upplýsingarnar séu aðgengilegar.
hversu hóflegar eða óhóflegar upplýsingarnar eru miðað við upphaflegan tilgang vinnslunnar.
hversu mikil neikvæð áhrif þessi aðgangur að upplýsingunum hefur á einkalíf viðkomandi.
hversu langur tími hefur liðið frá því að upphafleg vinnsla fór fram.
hvaðan upplýsingarnar komu upphaflega, þ.e. frá viðkomandi einstaklingi sjálfum eða öðrum, og hvort ætlunin var að gera þær opinberar.
hvort upplýsingarnar voru upphaflega gerðar opinberar sem liður í fréttaflutningi eða annarri fjölmiðlun.
hvort sá sem upphaflega birti upplýsingarnar hafði lögbundna skyldu til þess að gera þær aðgengilegar.
nektarmyndir eða myndir af kynferðislegum toga sem settar hafa verið á Netið án samþykkis viðkomandi
sjúkraskrár einstaklinga eða önnur gögn um heilsuhagi þeirra, sem bundin eru trúnaði
Persónuupplýsingar sem Google eyðir ekki
Sumar persónuupplýsingar eyðir Google almennt ekki, eins og:
fæðingardaga
heimilisföng
símanúmer
Matsatriði Google
Við mat á beiðnum um að leitarniðurstöður verði afmáðar er litið til þess hvort:
tilteknar persónuupplýsingar gætu aukið hættu á auðkennaþjófnaði, fjársvikum eða öðrum skaða
tiltekin auðkennanúmer séu gefin út af hinu opinbera.
upplýsingarnar séu opinberar eða bundnar trúnaði
þær geti almennt verið notaðar við tilfærslu fjármuna
þær geti almennt verið notaðar til þess að afla frekari upplýsinga um tiltekinn einstakling, sem gætu leitt til auðkennaþjófnaðar eða fjárhagslegs skaða.
unnt sé að auðkenna viðkomandi einstakling á nektarmynd eða mynd af kynferðislegum toga
Almenna reglan, samkvæmt skilmálum Google, er að leitarniðurstöðum er ekki eytt ef þær varða persónuupplýsingar sem eru aðgengilegar almenningi á vefsíðum hins opinbera.
Hafðu samband við leitarvélina og óskaðu eftir því að leitarniðurstaða verði afmáð.
Ef þess er óskað að tilteknar leitarniðurstöðum verði afmáðar af Google er hægt að óska eftir því með því að fylla út beiðni og senda hana til Google.
Svipuð úrræði kunna að vera í boði á vefsíðum annarra vefleitarvéla, en ef svo er ekki þá er hægt að senda skilaboð á viðkomandi vefleitarvél og óska eftir því að tilteknar leitarniðurstöður verði afmáðar, með viðeigandi rökstuðningi.
Verði vefleitarvél ekki við beiðni um að leitarniðurstaða verði afmáð er hægt að senda Persónuvernd kvörtun ef:
vefleitarvélin er Google – Persónuvernd hefur þegar úrskurðað um að Google sé með staðfestu hér á landi,
vefleitarvélin er rekin af aðila sem er með staðfestu hér á landi eða,
vefleitarvélin er rekin af aðila sem hefur ekki staðfestu hér á landi en starfsemi vefsíðunnar tengist því að (i) bjóða einstaklingum innan EES-svæðisins vöru eða þjónustu, óháð því hvort það er gegn greiðslu eða ekki, eða (ii) hafa eftirlit með hegðun einstaklinga innan EES-svæðisins, og leysir Persónuvernd þá úr ágreiningi aðila.
Ef þú getur borið ágreining þinn undir Persónuvernd samkvæmt framangreindum skilyrðum getur þú einnig borið hann beint undir dómstóla.
Einnig er hægt að bera ákvarðanir Persónuverndar undir dómstóla.