Hæstiréttur
Mál nr. 52/2025
Miðvikudagurinn 30. september 2026
Vörður tryggingar hf. (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)
gegn
A (Stefán Geir Þórisson lögmaður)
Lykilorð
Líkamstjón. Skaðabætur. Uppgjör. Árslaun. Lífeyrisréttindi. Viðmiðunartekjur
Reifun
Í málinu deildu aðilar um hvort telja skyldi mótframlag vinnuveitanda A í séreignasjóð til árslauna í skilningi 1. mgr. 7. gr. skaðabótalaga við uppgjör bóta til handa A vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir í umferðarslysi. Í dómi Hæstaréttar kom fram að sú ályktun yrði ekki dregin af því orðalagi 1. mgr. 7. gr. skaðabótalaga að árslaun skuli vera meðalatvinnutekjur tjónþola „að meðtöldu framlagi vinnuveitanda til lífeyrissjóðs“ að aðrar greiðslur vinnuveitanda í hans þágu kæmu ekki til álita við ákvörðun bóta fyrir líkamstjón. Vísaði rétturinn til þess að greiðslum launþega og mótframlagi vinnuveitanda í séreignasjóð væri ætlað að mynda sérgreinda innistæðu til útgreiðslu við síðara tímamark. Að virtu þessu eðli séreignasparnaðar og meginmarkmiði skaðabótalaga um fullar bætur væru engin rök til að horfa fram hjá mótframlagi vinnuveitanda A í séreignasjóð við mat á meðalatvinnutekjum og ákvörðun árslauna hans. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur.
Dómur Hæstaréttar
1. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Skúli Magnússon og Ingveldur Einarsdóttir fyrrverandi hæstaréttardómari.
2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 8. september 2025. Hann krefst sýknu af kröfu stefnda auk málskostnaðar á öllum dómstigum.
3. Stefndi krefst staðfestingar hins áfrýjaða dóms auk málskostnaðar fyrir Hæstarétti án tillits til gjafsóknar sem honum hefur verið veitt.
Ágreiningsefni
4. Í málinu deila aðilar um uppgjör bóta til stefnda fyrir varanlega örorku vegna umferðarslyss sem hann varð fyrir árið 2018. Fyrir Hæstarétti lýtur ágreiningur aðila að því hvort við mat á árslaunum hans vegna uppgjörsins hafi borið að telja með mótframlag vinnuveitanda til séreignarsjóðs lífeyris þrjú síðustu almanaksárin fyrir þann dag er tjónið varð, sbr. 1. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993.
5. Með dómi Landsréttar 23. júní 2025 var staðfestur héraðsdómur 26. mars 2024 þar sem fallist var á kröfu stefnda.
6. Áfrýjunarleyfi var veitt 8. september 2025, með ákvörðun réttarins nr. 2025-130, á þeim grunni að dómur Hæstaréttar kynni að hafa verulegt almennt gildi á sviði vátrygginga- og skaðabótaréttar.
Málsatvik
7. Stefndi varð fyrir líkamstjóni í umferðarslysi 23. nóvember 2018 en sú bifreið sem hann ók var tryggð lögboðnum ökutækjatryggingum hjá áfrýjanda. Varanleg örorka hans vegna slyssins var metin 70% og varanlegur miski 35 stig.
8. Þegar slysið varð gegndi stefndi fullu starfi hjá Isavia ohf. Samkvæmt gögnum málsins greiddi félagið 2% af launum hans sem mótframlag í séreign hjá lífeyrissjóði. Með bréfi 10. september 2020 krafðist stefndi þess að áfrýjandi gerði upp við hann bætur vegna slyssins á grundvelli fyrrgreinds örorkumats. Í sundurliðun kröfu var miðað við meðalatvinnutekjur hans síðustu þrjú almanaksárin fyrir slysið að meðtöldu mótframlagi vinnuveitanda í séreignarsjóð.
9. Með tölvubréfi áfrýjanda 8. desember 2020 var stefnda tilkynnt að ekki væri fallist á að mótframlag vinnuveitanda í séreignarsjóð bættist við árslaun við uppgjör bóta. Í samræmi við þessa afstöðu áfrýjanda var ekki tekið tillit til þessara greiðslna við uppgjör bóta til stefnda sem fram fór 10. sama mánaðar. Höfðaði stefndi 14. desember 2022 mál þetta gegn áfrýjanda. Ekki er tölulegur ágreiningur um fjárhæð kröfunnar. Þá er ekki lengur deilt um hvort stefndi hafi gert fullnægjandi fyrirvara við uppgjörið um þetta atriði.
Málsástæður
Helstu málsástæður áfrýjanda
10. Áfrýjandi reisir málatilbúnað sinn á því að ekki sé heimilt að bæta mótframlagi vinnuveitanda í séreignarsjóð við árslaun tjónþola við útreikning á bótum fyrir varanlega örorku samkvæmt 7. gr. skaðabótalaga. Túlka beri orðalagið „að meðtöldu framlagi vinnuveitanda til lífeyrissjóðs“ í 1. mgr. greinarinnar þannig að aðeins sé átt við venjulegt, skyldubundið framlag vinnuveitanda til lífeyrissjóðs eins og það sé ákveðið með lögum, kjarasamningum, ráðningarsamningi eða öðrum sambærilegum hætti, sbr. til hliðsjónar 1. mgr. 2. gr. laga nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Bendir áfrýjandi á að umrætt orðalag 1. mgr. 7. gr. skaðabótalaga hafi komið í lögin með breytingalögum nr. 37/1999 eftir að möguleiki á frjálsum einstaklingsbundnum séreignarsparnaði varð til með lögum nr. 129/1997. Í athugasemdum við frumvarp er varð að lögum nr. 37/1999 hafi þó ekkert verið vikið að framlögum til séreignarsjóða.
11. Áfrýjandi vísar til þess að dómstólar hafi ítrekað staðfest að mótframlagi vinnuveitanda til séreignarsjóðs verði ekki jafnað til hlutdeildar vinnuveitanda í skyldubundnu iðgjaldi til lífeyrissjóðs. Slíku framlagi sé ætlað að tryggja lágmarksframfærslu launþega og sé því af félagslegum toga. Mótframlag vinnuveitanda í séreignarsjóð sé hins vegar hvorki hluti hins félagslega kerfis né hluti af atvinnutekjum launþega. Er því til stuðnings bent á að samkvæmt 4. mgr. 5. gr. skaðabótalaga beri að draga frá bótum fyrir líkamstjón uppreiknað eingreiðsluverðmæti bóta af félagslegum toga sem eigi uppruna sinn í framlagi vinnuveitanda til lífeyris en það eigi ekki við um mótframlag til séreignarsjóðs.
12. Áfrýjandi bendir á að eðlismunur sé á framlögum til séreignarsjóðs og skyldubundnum lífeyrissparnaði, sbr. til dæmis dóm Hæstaréttar 28. maí 2014 í máli nr. 348/2014. Um hið fyrrnefnda hafi launþegi frjálsar hendur ólíkt því sem gildi um hið síðarnefnda. Þótt greitt hafi verið í séreignarsjóð á ákveðnu tímabili, svo sem hátti til um stefnda, sé því aldrei vissa um að svo verði áfram. Sé mótframlag vinnuveitanda í séreignarsjóð talið með til árslauna skapist því sú hætta að tjónþoli fái ofgreiddar bætur. Í þessu sambandi bendir áfrýjandi á heimildir launþega til að taka séreignarsparnað út áður en að starfslokum kemur, í ákveðnum tilvikum án þess að greiða af honum skatt. Hins vegar þurfi að greiða skatt af öðrum hlunnindum og launum sem falli undir árslaunahugtak 7. gr. skaðabótalaga. Þá geti séreignarsparnaður verið í vörslu annarra aðila en lífeyrissjóða andstætt skyldubundnum lífeyri. Orðalag 1. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nái þó eingöngu til lífeyrissjóða.
Helstu málsástæður stefnda
13. Stefndi vísar til þess að til árslauna samkvæmt 1. mgr. 7. gr. skaðabótalaga teljist allar atvinnutekjur tjónþola hvaða nafni sem þær nefnist, meðal annars mótframlag vinnuveitanda í séreignarsjóð. Þótt í ákvæðinu sé sérstaklega áréttað að við útreikning árslauna eigi að telja með framlag vinnuveitanda til lífeyrissjóðs sé ekki með því verið að undanskilja aðrar tekjur. Er þessu til stuðnings vísað til athugasemda við 7. gr. upphaflegs frumvarps til skaðabótalaga.
14. Þá bendir stefndi á að orðalag 1. mgr. 7. gr. laganna um að árslaun skuli vera meðalatvinnutekjur „að meðtöldu framlagi vinnuveitanda til lífeyrissjóðs“ hafi komið í skaðabótalög með breytingalögum nr. 37/1999. Ástæðan fyrir breytingunni hafi verið ágreiningur sem uppi hafi verið fyrir setningu skaðabótalaga um hvort bæta ætti mótframlagi vinnuveitanda í lífeyrissjóð við árslaunaútreikning. Dómaframkvæmd hafi staðfest síðar að telja ætti þetta framlag með, sbr. dóm Hæstaréttar 14. september 1994 í máli nr. 279/1992 sem birtur er í dómasafni þess árs á bls. 1621. Breytingunni hafi því verið ætlað að taka af tvímæli um þetta atriði en ekki fela í sér takmörkun á árslaunahugtakinu, sbr. til dæmis dóm Hæstaréttar 16. desember 2004 í máli nr. 264/2004. Án tillits til þess hvort mótframlag vinnuveitanda til séreignarsjóðs teljist til framlags vinnuveitanda til lífeyrissjóðs sé um að ræða tekjur launþega sem falli undir árslaunahugtak ákvæðisins.
15. Stefndi telur enga þýðingu hafa að aðrir aðilar en lífeyrissjóðir geti tekið á móti greiðslum í séreignarsparnað. Sama eigi við um ríkari ráðstöfunarrétt launþega yfir slíkum sparnaði, skattlagningu hans og stöðu við fjárskipti hjóna. Telur stefndi raunar að þessi atriði styðji frekar það sjónarmið að séreignarsparnaður teljist til tekna launþega sem líta eigi til þegar meðalatvinnutekjur hans séu reiknaðar.
16. Stefndi bendir á að eðli máls samkvæmt sé aldrei hægt að sanna að tjónþoli hefði haldið tilteknum tekjum út alla starfsævi sína. Sú óvissa haggi hins vegar ekki fyrirmælum 1. mgr. 7. gr. skaðabótalaga sem aðilar séu sammála um að eigi við.
Niðurstaða
17. Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. skaðabótalaga skal meta bætur tjónþola fyrir varanlega örorku á grundvelli örorkustigs hans samkvæmt 5. gr. laganna, árslauna samkvæmt 7. gr. og aldurstengds stuðuls sem þar greinir nánar. Eins og ráðið verður af athugasemdum við það frumvarp sem varð að skaðabótalögum nr. 50/1993 var þar leitast við að gera reglur um bætur fyrir líkamstjón einfaldari og skýrari, þar á meðal með ákvæðum um stöðlun bóta og tilteknar reikningsaðferðir. Engu að síður var það ótvírætt markmið löggjafans að reglur um þetta efni yrðu þannig úr garði gerðar að tjónþoli fengi fullar bætur fyrir raunverulegt tjón sitt. Verður þá að hafa í huga að heimild löggjafans til að setja nánari reglur um hvernig bætur fyrir líkamstjón skuli ákveðnar markast af því að í aflahæfi manna eru fólgin eignarréttindi sem njóta verndar 72. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, sbr. dóm Hæstaréttar 22. maí 1998 í máli nr. 311/1997 sem birtur er í dómasafni þess árs á bls. 1976.
18. Í samræmi við meginmarkmið skaðabótalaga um fullar bætur er nú í 1. mgr. 7. gr. þeirra mælt fyrir um þá meginreglu að árslaun til ákvörðunar bóta samkvæmt 6. gr. skuli teljast meðalatvinnutekjur tjónþola að meðtöldu framlagi vinnuveitanda til lífeyrissjóðs þrjú síðustu almanaksárin fyrir þann dag er tjón varð, leiðrétt samkvæmt launavísitölu til þess tíma sem upphaf varanlegrar örorku miðast við. Í athugasemdum við frumvarp það sem varð að skaðabótalögum sagði um þetta atriði að með árslaunum væri átt við „brúttóárstekjur, þ.e. tekjur eins og þær eru áður en skattur er dreginn frá þeim“. Með tekjum skyldi telja „venjulegt framlag vinnuveitanda og launþega til lífeyrissjóðs” og einnig „hlunnindi, t.d. endurgjaldslaus bifreiðarafnot sem fylgdu starfi tjónþola áður en hann varð fyrir líkamstjóni“.
19. Með lögum nr. 37/1999 voru gerðar ýmsar breytingar á ákvæðum skaðabótalaga vegna ákvörðunar bóta fyrir líkamstjón, þar á meðal fyrrnefndum margfeldisstuðli samkvæmt 6. gr. en einnig fyrirmælum 7. gr. um ákvörðun árslauna. Sú meginbreyting varð á fyrstu málsgrein síðarnefndu greinarinnar að árslaun til ákvörðunar bóta skyldu framvegis miðast við meðalatvinnutekjur tjónþola síðustu þrjú almanaksár fyrir slys í stað tólf mánaða áður. Með breytingalögunum var því einnig slegið föstu að árslaun til ákvörðunar bóta skyldu teljast meðalatvinnutekjur tjónþola á þessu tímabili „að meðtöldu framlagi vinnuveitanda til lífeyrissjóðs”. Í athugasemdum við frumvarp til breytingalaganna kom fram að þetta væri gert til að taka af tvímæli.
20. Samkvæmt framansögðu var þegar við setningu skaðabótalaga árið 1993 gert ráð fyrir að ákvörðun bóta fyrir líkamstjón miðaðist almennt við heildaratvinnutekjur tjónþola á ákveðnu tímabili, hverju nafni sem þær nefndust, þar á meðal framlag vinnuveitanda og launþega til lífeyrissjóðs. Má í því tilliti benda á að fyrir gildistöku laganna höfðu dómstólar viðurkennt rétt tjónþola til þess að fá bætt tjón vegna tapaðra lífeyrisréttinda, sbr. til dæmis fyrrgreindan dóm Hæstaréttar í máli nr. 279/1992. Með breytingalögum nr. 37/1999 var því aðeins áréttað að undir „árslaun“ samkvæmt 1. mgr. 7. gr. félli einnig framlag vinnuveitanda til lífeyrissjóðs. Eftir sem áður bar því að miða árslaun tjónþola að öðru leyti við heildaratvinnutekjur hans á ákveðnu tímabili fyrir tjónsatburð. Má til hliðsjónar þar um vísa til fyrrgreinds dóms Hæstaréttar í máli nr. 264/2004 þar sem talið var að engin haldbær rök hefðu verið fyrir því að miða árslaun tjónþola vegna 11,5% framlags vinnuveitanda í lífeyrissjóð við lægri hlutfallstölu og skipti þá ekki máli þótt lögbundið lágmark slíks framlags væri 6%.
21. Samkvæmt þessu verður sú ályktun ekki dregin af því orðalagi 1. mgr. 7. gr. skaðabótalaga að árslaun skuli vera meðalatvinnutekjur tjónþola „að meðtöldu framlagi vinnuveitanda til lífeyrissjóðs“ að aðrar greiðslur vinnuveitanda í hans þágu komi ekki til álita við ákvörðun bóta fyrir líkamstjón. Þótt slíkar greiðslur teljist ekki til „framlags vinnuveitanda til lífeyrissjóðs“ veltur úrlausn um þetta sem endranær á því hvort um sé að ræða greiðslur sem líta skuli á sem þátt í heildaratvinnutekjum tjónþola þrjú síðustu almanaksárin fyrir þann dag er tjón varð.
22. Í hinum áfrýjaða dómi eru rakin helstu lagafyrirmæli sem gilda annars vegar um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og hins vegar samninga launþega um viðbótartryggingarvernd eða lífeyrisréttindi í séreign, svonefndan séreignarsparnað. Svo sem þar kemur fram er það undir launþega sjálfum komið hvort hann gerir samning um séreignarsparnað, andstætt því sem gildir um greiðslur til lágmarkstryggingarverndar samkvæmt lögum nr. 129/1997. Taki launþegi ákvörðun um greiðslur til séreignarsjóðs er vinnuveitanda skylt að greiða mótframlag til þess aðila sem samningur er gerður við. Um útgreiðslu séreignar gilda nánari fyrirmæli II. kafla laganna. Samkvæmt þeim er heimilt að greiða rétthafa út séreign ásamt vöxtum þegar hann er orðinn 60 ára. Verði rétthafi öryrki fyrir þann aldur á hann rétt á útgreiðslu með jöfnum árlegum greiðslum á sjö árum í samræmi við örorkustig, sbr. 2. og 3. mgr. 11. gr. laganna. Andist rétthafi áður en innstæða er að fullu greidd út fellur hún til erfingja hans og skiptist milli þeirra eftir reglum erfðalaga nr. 8/1962 samkvæmt því sem nánar getur í 4. mgr. greinarinnar.
23. Af því sem nú hefur verið rakið um eðli séreignarsparnaðar er ljóst að greiðslum launþega og mótframlagi vinnuveitanda í séreignarsjóð er ætlað að mynda sérgreinda innstæðu til útgreiðslu, ásamt vöxtum, við síðara tímamark samkvæmt nánari fyrirmælum laga nr. 129/1997. Svo sem nánar er rakið í hinum áfrýjaða dómi er ágreiningslaust að stefndi samdi við vinnuveitanda sinn um tiltekið mótframlag í séreignarsjóð og var um að ræða slíkar greiðslur í hans þágu síðustu þrjú almanaksár fyrir þann dag er tjón varð. Í málinu er ekki deilt um fjárhæð þeirra greiðslna.
24. Að öllu þessu virtu voru engin haldbær rök til að horfa fram hjá umræddu mótframlagi vinnuveitanda við mat á meðalatvinnutekjum og ákvörðun árslauna stefnda samkvæmt 1. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Skiptir engu þótt hér hafi verið um að ræða greiðslur sem féllu utan lögbundins framlags vinnuveitanda til lífeyrissjóðs og stefnda heimilt að semja um séreignarsparnað við tiltekna aðra aðila en lífeyrissjóði samkvæmt lögum nr. 129/1997. Andspænis umræddum fyrirmælum skaðabótalaga er að sama skapi þýðingarlaust hvernig löggjafinn ákveður á hverjum tíma að haga skattlagningu þeirra fjárhagslegu réttinda sem hér um ræðir eða hvernig þau horfa við fjárskiptum hjóna.
25. Samkvæmt framangreindu verður hinn áfrýjaði dómur staðfestur.
26. Eftir úrslitum málsins verður áfrýjanda gert að greiða málskostnað fyrir Hæstarétti eins og í dómsorði greinir sem rennur í ríkissjóð.
27. Allur gjafsóknarkostnaður stefnda fyrir Hæstarétti greiðist úr ríkissjóði, þar með talin þóknun lögmanns hans, eins og nánar greinir í dómsorði.
Dómsorð:
Hinn áfrýjaði dómur skal óraskaður.
Áfrýjandi, Vörður tryggingar hf., greiði 800.000 krónur í málskostnað fyrir Hæstarétti sem renni í ríkissjóð.
Allur gjafsóknarkostnaður stefnda, A, greiðist úr ríkissjóði, þar með talin þóknun lögmanns hans, 800.000 krónur.