Fara beint í efnið

Hæstiréttur

Mál nr. 45/2026

Mánudagurinn 12. október 2026

Edda Rún Ólafsdóttir, Freygerður Anna Ólafsdóttir, Jón Gestur Ólafsson, Reykjaprent ehf. og dánarbú Sigríðar Sólrúnar Jónsdóttur (Sif Konráðsdóttir lögmaður)

gegn

Landsneti hf. (Þórður Bogason lögmaður)

Lykilorð

Kærumál. Aðfarargerð. Frávísunarúrskurður staðfestur. Ómerkingarkröfu hafnað. Lögvarðir hagsmunir

Reifun

Með úrskurði héraðsdóms var fallist á kröfu varnaraðila um að fá tiltekna jörð tekna úr umráðum sóknaraðila með beinni aðfarargerð, á grundvelli eignarnáms sem varnaraðila hafði verið heimilað í jörðinni. Í úrskurði Landsréttar, sem staðfestur var af Hæstarétti, kom fram að varnaraðila hefðu þegar verið fengin umráð jarðarinnar. Sóknaraðilar hefðu því ekki lengur lögvarða hagsmuni af úrlausn málsins.

  1. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen og Skúli Magnússon og Helgi I. Jónsson og Ingveldur Einarsdóttir fyrrverandi hæstaréttardómarar.

  2. Sóknaraðilar skutu málinu til Hæstaréttar með kæru 17. september 2026 sem barst réttinum 21. sama mánaðar en kærumálsgögn bárust 28. þess mánaðar. Kærður er úrskurður Landsréttar 3. september 2026 þar sem máli sóknaraðila gegn varnaraðila var vísað frá réttinum. Kæruheimild er í 5. mgr. 84. gr. laga nr. 90/1989 um aðför, sbr. a-lið 1. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

  3. Sóknaraðilar krefjast þess aðallega að hinn kærði úrskurður verði ómerktur en til vara að hann verði felldur úr gildi og Hæstiréttur leggi fyrir Landsrétt að taka málið til efnismeðferðar. Þá krefjast sóknaraðilar kærumálskostnaðar fyrir Hæstarétti og Landsrétti en að öðrum kosti verði málskostnaður felldur niður.

  4. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur auk kærumálskostnaðar fyrir Hæstarétti úr hendi sóknaraðila.

  5. Með ákvörðun umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra 21. júní 2024 var varnaraðila heimilað eignarnám í jörð sóknaraðila, Heiðarlandi Vogajarða í Sveitarfélaginu Vogum, til ótímabundinna afnota lands undir 4.504 metra langa 220 kV rafmagnslínu, svokallaða Suðurnesjalínu 2. Með dómi Hæstaréttar 27. maí 2026 í máli nr. 66/2025 var hafnað kröfu sóknaraðila um ógildingu ákvörðunar ráðherra.

  6. Með úrskurði héraðsdóms 3. júlí 2026 var fallist á kröfu varnaraðila um að fá tekna úr umráðum sóknaraðila samtals 21.932 hektara lands á grundvelli fyrrnefndrar heimildar til eignarnáms. Samkvæmt endurriti úr aðfararbók sýslumannsins á Suðurnesjum 8. sama mánaðar ákvað fulltrúi sýslumanns þann dag að gerðinni skyldi fram haldið þrátt fyrir andmæli sóknaraðila. Fékk varnaraðili því með gerðinni afhent þau umráð landsins sem hann hafði krafist.

  7. Sóknaraðilar skutu úrskurði héraðsdóms til Landsréttar með kæru 17. júlí 2026. Landsréttur vísaði málinu sjálfkrafa frá réttinum með hinum kærða úrskurði. Í forsendum réttarins er vísað til þess að varnaraðili hafi þegar fengið umráð yfir því landi sem um ræði. Sóknaraðilar hafi því ekki lengur lögvarða hagsmuni af endurskoðun úrskurðarins.

  8. Sóknaraðilar byggja aðalkröfu sína um ómerkingu hins kærða úrskurðar á því að standi hann óhaggaður fæli það í sér að sú endurskoðun á niðurstöðu héraðsdóms, sem mælt er fyrir um í 4. mgr. 84. gr. laga nr. 90/1989, væri í reynd ekki fyrir hendi. Þá telja sóknaraðilar að málsmeðferð fyrir Landsrétti hafi verið haldin annmörkum, einkum í ljósi þess að sóknaraðilum hafi ekki verið gefinn kostur á að flytja kærumálið munnlega.

  9. Kærumál fyrir Landsrétti sæta skriflegri meðferð nema annað sé ákveðið, sbr. 3. mgr. 149. gr. laga nr. 91/1991. Engin efni voru til að flytja málið munnlega fyrir réttinum. Var meðferð þess að öðru leyti lögum samkvæmt. Þá átti réttilega við hér sem endranær sú meginregla réttarfars að sóknaraðili verður að hafa lögvarða hagsmuni af úrlausn máls. Samkvæmt þessu verður kröfu sóknaraðila um ómerkingu hins kærða úrskurðar hafnað.

  10. Fyrir því er löng og rótgróin dómvenja að vísa skuli sjálfkrafa frá dómi máli sem skotið er til æðri dóms í því skyni að fá heimild til fullnustugerðar fellda úr gildi ef hún hefur þegar farið fram. Við þær aðstæður sem uppi eru í málinu hefur kærandi því ekki lengur lögvarða hagsmuni af úrlausn þess og sætir það frávísun eftir þeirri meginreglu sem áður er vísað til. Um það má meðal annars benda á dóm Hæstaréttar 1. desember 2021 í máli nr. 48/2021. Í samræmi við þetta verður hinn kærði úrskurður staðfestur. Því fá ekki breytt þær málsástæður sem sóknaraðilar hafa teflt fram hér fyrir rétti og ekki er þörf á að rekja með tilliti til þess afmarkaða úrlausnarefnis sem mál þetta tekur til.

  11. Sóknaraðilum verður gert að greiða varnaraðila kærumálskostnað eins og í dómsorði segir.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Sóknaraðilar, Edda Rún Ólafsdóttir, Freygerður Anna Ólafsdóttir, Jón Gestur Ólafsson, Reykjaprent ehf. og dánarbú Sigríðar Sólrúnar Jónsdóttur, greiði varnaraðila, Landsneti hf., óskipt 500.000 krónur í kærumálskostnað.