Hæstiréttur
Mál nr. 28/2026
Fimmtudagurinn 17. september 2026
S8 ehf. (Reimar Pétursson lögmaður)
gegn
Reykjavíkurborg (Ebba Schram lögmaður)
Lykilorð
Kærumál. Gagnaöflun. Matsbeiðni. Dómkvaðning matsmanns
Reifun
Kærðar voru ákvarðanir Landsréttar, annars vegar um að hafna beiðni S um dómkvaðningu matsmanna og hins vegar þar sem því var hafnað að kveðinn yrði upp úrskurður um kröfu S um dómkvaðningu matsmanna. Hæstiréttur vísaði til þess að af samspili 3. mgr. 160. gr. og 1. mgr. 164. gr. laga nr. 91/1991 leiddi að þegar ekki væri ágreiningur með aðilum um þau atriði varðandi rekstur máls sem fjallað væri um í fyrrnefnda ákvæðinu, eða dómsformanni tækist að jafna slíkan ágreining, gæti hann ráðið honum til lykta með ákvörðun sem ekki væri kæranleg til Hæstaréttar. Eftir lögfestingu heimildar 3. mgr. 167. gr. laganna til að veita kæruleyfi vegna úrskurða Landsréttar um önnur atriði en getið væri í 1. mgr. greinarinnar, sbr. lög nr. 134/2022, væri á hinn bóginn ekki lengur heimilt að leiða slík atriði varðandi rekstur máls til lykta með ákvörðun dómsformanns þegar ágreiningur væri um þau atriði sem ekki tækist að jafna. Þar sem ágreiningur hefði verið með aðilum um hvort dómkveðja skyldi matsmenn í samræmi við breytta matsbeiðni S og dómsformanni hefði ekki tekist að jafna þann ágreining hefði þremur dómurum Landsréttar borið að taka ágreiningsefnið fyrir í undirbúningsþinghaldi og ráða því til lykta með úrskurði. Hinar kærðu ákvarðanir Landsréttar voru því felldar úr gildi og lagt fyrir Landsrétt að kveða upp úrskurð um hvort dómkveðja skyldi matsmenn samkvæmt matsbeiðni S.
Dómur Hæstaréttar
1. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen, Karl Axelsson, Sigurður Tómas Magnússon og Skúli Magnússon.
2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 29. maí 2026 en kærumálsgögn bárust réttinum 1. júní sama ár. Hann krefst þess að ákvarðanir Landsréttar 18. og 22. sama mánaðar verði felldar úr gildi og aðallega að lagt verði fyrir réttinn að kveða upp úrskurð um að dómkvaddir skuli matsmenn samkvæmt beiðni sóknaraðila 30. apríl sama ár en til vara að lagt verði fyrir Landsrétt að kveða upp úrskurð um hvort dómkveðja skuli matsmenn samkvæmt umræddri beiðni sóknaraðila. Þá krefst hann málskostnaðar fyrir Hæstarétti.
3. Varnaraðili krefst þess að kröfum sóknaraðila verði hafnað og honum gert að greiða varnaraðila málskostnað fyrir Hæstarétti.
Ágreiningsefni
4. Dómkrafa sóknaraðila lýtur að því að fá felldar úr gildi annars vegar ákvörðun Landsréttar 18. maí 2026 þar sem rétturinn hafnaði beiðni hans um dómkvaðningu matsmanna og hins vegar ákvörðun 22. sama mánaðar þar sem því var hafnað að kveðinn yrði upp úrskurður um kröfu hans um dómkvaðningu matsmanna.
5. Varnaraðili telur að réttilega hafi verið staðið að ákvörðun Landsréttar um að synja beiðni sóknaraðila um dómkvaðningu matsmanna og ný matsbeiðni hans sé augljóslega óþörf til sönnunar í skilningi 3. mgr. 46. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Í fyrsta lagi sé frestur til gagnaöflunar fyrir Landsrétti liðinn. Þar sem aðilar geti af þeim sökum ekki lagt þar fram frekari gögn sé tilgangslaust að afla nýrrar matsgerðar, sbr. 1. mgr. 160. gr. sömu laga. Í öðru lagi séu matsspurningarnar þess eðlis að svör við þeim hafi ekkert sönnunargildi við úrlausn málsins.
6. Kæruleyfi var veitt 22. júní 2026, með ákvörðun Hæstaréttar nr. 2026-83, á þeim grunni að úrlausn um kæruefnið gæti haft grundvallarþýðingu fyrir meðferð málsins, sbr. 2. málslið 3. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991.
Málsatvik og málsmeðferð
7. Sóknaraðili höfðaði mál þetta 16. apríl 2024 aðallega til viðurkenningar á að ógilt væri samkomulag hans við stefnda 15. október 2021 vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar og breyttrar nýtingar á lóðinni Haukahlíð 2 í Reykjavík. Til vara krafðist hann viðurkenningar á því að ógild væru tiltekin ákvæði samkomulagsins og til þrautavara að tilteknum ákvæðum þess yrði hliðrað með dómi. Jafnframt höfðaði hann málið til viðurkenningar á ógildi yfirlýsingar aðila sama dag um tilteknar kvaðir á lóðinni. Loks gerði sóknaraðili fjárkröfur á hendur varnaraðila vegna þessara lögskipta.
8. Í efnisþætti málsins reisir sóknaraðili kröfur sínar á því að varnaraðili hafi nýtt skipulags- og byggingarleyfisvald sitt til að knýja fram greiðslur og margvíslega kvaðabindingu lóðarinnar gagnvart sóknaraðila auk þess að neita honum um endurgreiðslu gatnagerðargjalda. Samkomulag aðila um þessi atriði hafi ekki verið gagnkvæm viljayfirlýsing heldur einhliða skilmálar varnaraðila sem nýtt hafi yfirburðastöðu sína. Sóknaraðili byggir meðal annars á 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga en einnig á því að varnaraðili hafi brotið gegn reglum stjórnsýsluréttar um réttmæti, jafnræði og meðalhóf.
9. Varnaraðili var sýknaður af öllum kröfum sóknaraðila með héraðsdómum 23. maí og 16. september 2025. Sóknaraðili áfrýjaði báðum dómunum til Landsréttar og óskaði eftir að málin yrðu sameinuð.
10. Við þingfestingu málsins vegna fyrri áfrýjunarinnar í Landsrétti lagði sóknaraðili fram beiðni um dómkvaðningu matsmanna. Hún var tekin fyrir í undirbúningsþinghaldi 8. október 2025 af dómsformanni og henni hafnað með rökstuddri ákvörðun 14. sama mánaðar. Með ákvörðun sama dómara 20. nóvember sama ár var hafnað kröfu sóknaraðila um að þrír dómarar réttarins tækju ákvörðun eða kvæðu upp úrskurð um ágreiningsefnið. Sóknaraðili leitaði ekki eftir leyfi til að kæra fyrrnefndar dómsathafnir Landsréttar til Hæstaréttar.
11. Með beiðni til héraðsdóms 25. nóvember 2025 fór sóknaraðili þess á leit að dómkvaddir yrðu matsmenn til að leggja mat á sömu atriði og í þeirri matsbeiðni sem áður hafði verið lögð fram í Landsrétti. Með úrskurði héraðsdóms 19. febrúar 2026 var beiðninni vísað frá dómi á þeim grundvelli að Landsréttur hefði þegar tekið afstöðu til hennar og sóknaraðili ekki sýnt fram á sérstaka þörf fyrir dómkvaðningu matsmanna. Sóknaraðili skaut þeirri niðurstöðu til Landsréttar sem hafnaði beiðninni með úrskurði 20. mars sama ár í máli nr. 172/2026. Fram kom í forsendum úrskurðarins að rétturinn hefði þegar tekið afstöðu til beiðni sóknaraðila með fyrri ákvörðun dómsformanns. Með ákvörðun Hæstaréttar nr. 2026-50 frá 28. apríl 2026 var beiðni um kæruleyfi vegna þessa úrskurðar Landsréttar hafnað.
12. Sóknaraðili sendi Landsrétti á ný beiðni um dómkvaðningu tveggja matsmanna 30. apríl 2026. Hún var tekin fyrir í undirbúningsþinghaldi 12. maí sama ár af dómsformanni í málinu. Með ákvörðun hans 18. sama mánaðar var beiðninni hafnað. Í kjölfarið sendi sóknaraðili erindi til réttarins þar sem hann áréttaði kröfu sína um að kveðinn yrði upp úrskurður. Í þingbók vegna fyrirtöku málsins í Landsrétti 22. maí sama ár áréttaði dómsformaður að í ákvörðun réttarins 18. maí 2026 hefði falist að ekki yrði kveðinn upp úrskurður um kröfu sóknaraðila.
Niðurstaða
13. Með breytingu á lögum nr. 91/1991 sem gerð var með lögum nr. 134/2022 var lögfest heimild í 3. mgr. 167. gr. laganna til að veita kæruleyfi vegna úrskurða Landsréttar um önnur atriði en getið er í 1. mgr. greinarinnar. Við þessa lagabreytingu var ekki farin sú leið að afmarka nánar þá úrskurði Landsréttar sem unnt er að sækja um leyfi Hæstaréttar til að kæra til réttarins, svo sem gert er í 143. gr. laganna um kæru til Landsréttar.
14. Eftir umrædda lagabreytingu eru samkvæmt framangreindu jafnframt kæranlegar dómsathafnir Landsréttar sem unnt er að skjóta til Hæstaréttar að fengnu leyfi hans samkvæmt 3. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991. Hvort dómsathöfn Landsréttar sem varðar rekstur máls verði borin undir Hæstarétt á þessum grundvelli ræðst af því hvort Landsrétti sé skylt að kveða upp úrskurð um hlutaðeigandi atriði eins og nú verður rakið.
15. Í 3. mgr. 160. gr. laga nr. 91/1991 segir meðal annars að sé tilefni til taki Landsréttur mál fyrir á dómþingi til að ráða til lykta atriðum varðandi rekstur þess, þar með talið gagnaöflun og framlagningu gagna, hvaða skýrslutökur verði heimilaðar fyrir réttinum og hvaða upptökur verði spilaðar við aðalmeðferð. Dómsformaður taki að jafnaði einn fyrir mál í þessu skyni og taki einn ákvarðanir varðandi rekstur þess sem ekki séu kæranlegar.
16. Í 1. mgr. 164. gr. laganna er kveðið á um form dómsathafna Landsréttar en þar segir svo:
Að því leyti sem önnur ákvæði laga þessara mæla ekki á annan veg og ágreiningur er ekki uppi tekur Landsréttur afstöðu til atriða sem varða rekstur máls fyrir Landsrétti með ákvörðun. Slík atriði má einnig leiða til lykta með ákvörðun þótt ágreiningur sé um þau ef ágreiningsefnið sætir ekki kæru til Hæstaréttar eða úrlausn um það leiðir ekki til loka máls fyrir dóminum en í slíkum tilvikum skal kveðinn upp rökstuddur úrskurður.
17. Af samspili 3. mgr. 160. gr. og 1. mgr. 164. gr. laga nr. 91/1991 leiðir að þegar ekki er ágreiningur með aðilum um þau atriði varðandi rekstur máls sem fjallað er um í fyrrnefnda ákvæðinu eða dómsformanni tekst að jafna slíkan ágreining getur hann ráðið honum til lykta með ákvörðun sem ekki er kæranleg til Hæstaréttar. Eftir umrædda breytingu með lögum nr. 134/2022 er á hinn bóginn ekki lengur heimilt að leiða slík atriði varðandi rekstur máls til lykta með ákvörðun dómsformanns þegar ágreiningur er um þau sem ekki hefur tekist að jafna.
18. Þar sem ágreiningur var með aðilum um hvort dómkveðja skyldi matsmenn í samræmi við breytta matsbeiðni sóknaraðila og dómsformanni tókst ekki að jafna þann ágreining bar þremur dómurum Landsréttar að taka ágreiningsefnið fyrir í undirbúningsþinghaldi og ráða því til lykta með úrskurði.
19. Það athugast að kæranleiki dómsathafna ræðst almennt ekki af því hvaða form dómarar velja úrlausn sinni heldur því úrlausnarefni sem hún lýtur að. Gat það því ekki ráðið úrslitum um hvort leyfi til kæru væri veitt að dómsformaður í Landsrétti tók einn ákvörðun um að synja beiðni um dómkvaðningu í stað þess að þrír dómarar réttarins kvæðu réttilega upp úrskurð um ágreininginn.
20. Með því að ágreiningi málsaðila fyrir Landsrétti um dómkvaðningu matsmanna hefur ekki verið ráðið til lykta með réttum hætti af þremur dómurum réttarins verður fallist á varakröfu sóknaraðila um að ákvarðanir réttarins 18. og 22. maí 2026 verði felldar úr gildi og lagt fyrir Landsrétt að kveða upp úrskurð um hvort dómkveðja skuli matsmenn samkvæmt matsbeiðni sóknaraðila 30. apríl það ár.
21. Rétt þykir að kærumálskostnaður fyrir Hæstarétti falli niður.
Dómsorð:
Hinar kærðu ákvarðanir Landsréttar 18. og 22. maí 2026 eru felldar úr gildi og lagt fyrir Landsrétt að kveða upp úrskurð um hvort dómkveðja skuli matsmenn samkvæmt matsbeiðni sóknaraðila 30. apríl 2026.
Kærumálskostnaður fyrir Hæstarétti fellur niður.