Fara beint í efnið

Hæstiréttur

Mál nr. 26/2026

Þriðjudagurinn 15. september 2026

Þróunarfélag Hafna ehf. (Karl Georg Sigurbjörnsson lögmaður)

gegn

Húsasmiðjunni ehf. (Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður)

Lykilorð

Kærumál. Dómsmálagjöld. Aðfinnslur. Frávísun frá Landsrétti staðfest

Reifun

Með hinum kærða úrskurði var máli Þ á hendur H vísað frá Landsrétti á þeim grundvelli að kæra á úrskurði héraðsdóms hefði ekki borist innan kærufrests. Hæstiréttur rakti að kæra Þ hefði borist héraðsdómi innan kærufrests en að lögmælt dómsmálagjöld hefðu ekki borist héraðsdómi fyrr en að frestinum liðnum, sbr. 3. mgr. 145. gr. laga nr. 91/1991 og 1. tölulið 2. mgr. 1. gr. laga nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs. Taldi rétturinn að þótt ekki hefði staðið nauðsyn til þess að greiða gjaldið samhliða afhendingu kæru til héraðsdóms hefði Þ þó borið að inna greiðsluna af hendi innan kærufests. Var því staðfest niðurstaða hins kærða úrskurðar um frávísun málsins frá Landsrétti.

Dómur Hæstaréttar

1. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ásgerður Ragnarsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.

2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 17. júní 2026 sem barst réttinum 18. sama mánaðar en kærumálsgögn bárust 25. þess mánaðar. Kærður er úrskurður Landsréttar 3. júní 2026 þar sem málinu var vísað frá réttinum. Kæruheimild er í a-lið 1. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

3. Sóknaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi og lagt fyrir Landsrétt að taka kæru sóknaraðila á úrskurði héraðsdóms til efnislegrar meðferðar. Jafnframt krefst hann að varnaraðila verði gert að greiða kærumálskostnað fyrir Landsrétti og Hæstarétti.

4. Varnaraðili krefst þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur og sóknaraðila gert að greiða varnaraðila kærumálskostnað fyrir Hæstarétti.

5. Með úrskurði héraðsdóms 22. apríl 2026 var dómkröfum sóknaraðila í gagnsök vísað frá dómi. Með hinum kærða úrskurði Landsréttar var kæru hans á úrskurði héraðsdóms vísað frá réttinum þar sem hún barst héraðsdómi 7. maí 2026 en hefði þurft að berast eigi síðar en 6. sama mánaðar.

6. Fyrir liggur að kæra sóknaraðila var afhent héraðsdómi með rafrænum hætti í gegnum vefgátt dómstóla 6. maí 2026. Með tölvubréfi Héraðsdóms Reykjavíkur 7. sama mánaðar var sóknaraðili upplýstur um að kæran hefði borist óundirrituð og óskað upplýsinga um hvort kærugjald hefði verið greitt. Í svarbréfi sem barst sama dag sagði sóknaraðili að skjalið hefði verið undirritað en í viðhengi við bréfið var afrit af kærunni á PDF-formi auk millifærslukvittunar. Á kvittuninni kom fram að gjald vegna kæru hefði verið greitt héraðsdómi 7. maí 2026. Kæran var stimpluð um móttöku síðar sama dag og send Landsrétti.

7. Í 1. mgr. 144. gr. laga nr. 91/1991 segir að vilji maður kæra dómsathöfn skuli hann afhenda héraðsdómara skriflega kæru áður en tvær vikur eru liðnar frá uppkvaðningu úrskurðar eða dómsathöfn ef hann eða umboðsmaður hans var þá staddur á dómþingi, en ella áður en tvær vikur eru liðnar frá því hann eða umboðsmaður hans fékk vitneskju um úrskurð eða dómsathöfn.

8. Svo sem framar greinir barst héraðsdómi kæra sóknaraðila innan kærufrests. Lögmælt dómsmálagjöld bárust héraðsdómi hins vegar ekki fyrr en að fresti liðnum, sbr. 3. mgr. 145. gr. laga nr. 91/1991 og 1. tölulið 2. mgr. 1. gr. laga nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs. Þótt ekki hafi staðið nauðsyn til þess að greiða gjaldið samhliða afhendingu kæru til héraðsdóms bar sóknaraðila þó að inna greiðsluna af hendi innan kærufrests, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar 8. júní 2026 í máli nr. 23/2026.

9. Með því að sóknaraðili greiddi ekki umrætt gjald innan þess frests sem hann hafði til þess voru ekki skilyrði til að taka málið til frekari meðferðar fyrir Landsrétti. Samkvæmt þessu verður staðfest niðurstaða hins kærða úrskurðar um frávísun málsins frá réttinum.

10. Sóknaraðila verður gert að greiða varnaraðila kærumálskostnað eins og greinir í dómsorði.

11. Það athugast að sóknaraðili afhenti réttinum málsgögn sem eru í verulegu ósamræmi við reglur Hæstaréttar nr. 140/2018 um kærumálsgögn í einkamálum sem settar eru samkvæmt 4. mgr. 171. gr. laga nr. 91/1991. Er þetta aðfinnsluvert.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Sóknaraðili, Þróunarfélag Hafna ehf., greiði varnaraðila, Húsasmiðjunni ehf., 300.000 krónur í kærumálskostnað fyrir Hæstarétti.