Fara beint í efnið

Hæstiréttur

Mál nr. 11/2026

Miðvikudagurinn 21. október 2026

Ákæruvaldið (Dröfn Kærnested saksóknari)

gegn

Lárusi Guðmundi Jónssyni (Auður Björg Jónsdóttir lögmaður)

Lykilorð

Skjalafals. Refsiákvörðun. Brotasamsteypa. Hegningarauki

Reifun

L var gefið að sök skjalafals með því að hafa ritað nafn A undir umsókn B ehf. til C ehf. um að taka á leigu bifreiðar og samþykki viðskiptaskilmála og notað skjalið til að stofna til slíkra viðskipta við C ehf. Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sakfellingu L. Við ákvörðun refsingar leit Hæstiréttur til þess að brot það sem L væri sakfelldur fyrir í þessu máli hefði hann framið áður en dómur gekk í öðru máli þar sem hann hlaut sex mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir fjárkúgun. Bæri því að dæma honum hegningarauka og ákveða refsingu með hliðsjón af brotasamsteypu. Að virtum málsbótum ákærða mætti ætla að hann hefði ekki hlotið þyngri refsingu en honum var dæmd með fyrrnefndum dómi þótt um skjalafalsbrot hans hefði jafnframt verið dæmt í því máli. Var L því ekki gerð refsing í málinu.

Dómur Hæstaréttar

1. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ásgerður Ragnarsdóttir, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Sigurður Tómas Magnússon.

2. Ríkissaksóknari skaut málinu til Hæstaréttar 18. febrúar 2026 í samræmi við yfirlýsingu ákærða um áfrýjun. Ákæruvaldið krefst staðfestingar hins áfrýjaða dóms og að ákærða verði gert að greiða allan sakarkostnað í málinu á öllum dómstigum.

3. Ákærði krefst aðallega sýknu af kröfum ákæruvaldsins en til vara vægustu refsingar.

Ágreiningsefni

4. Með ákæru 23. september 2024 var ákærða gefið að sök skjalafals með því að hafa 10. maí 2023, í blekkingarskyni, ritað nafn A sem umsóknaraðila og til samþykkis viðskiptaskilmála á umsókn B ehf. um viðskipti við C ehf. og notað skjalið til að stofna til viðskipta við það félag um útleigu bifreiða til B ehf. Háttsemi þessi var talin varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

5. Með héraðsdómi 4. mars 2025 var ákærði sýknaður af sakargiftum. Taldi héraðsdómur að huglægri afstöðu hans til athæfisins yrði ekki jafnað við ásetning til að beita blekkingum í lögskiptum í skilningi 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga. Landsréttur komst að gagnstæðri niðurstöðu. Vísaði rétturinn til þess að ekkert lægi fyrir um að ákærði hefði haft umboð til að skuldbinda B ehf. þegar hann sendi umsóknina til C ehf. eða haft heimild til að rita nafn A undir hana. Yrði því að leggja til grundvallar að með því að afhenda hana hefði ákærði af ásetningi notað falsað skjal til að koma því til leiðar að B ehf. stofnaði til viðskipta við C ehf. um útleigu bifreiða. Refsing ákærða var ákveðin 30 daga skilorðsbundið fangelsi.

6. Áfrýjunarleyfi í málinu var veitt 12. febrúar 2026, með ákvörðun Hæstaréttar nr. 2026-12, á þeim grunni að ákærði hefði verið sýknaður í héraði en sakfelldur fyrir Landsrétti.

Málsatvik

7. Málavöxtum er lýst í hinum áfrýjaða dómi og héraðsdómi. Þeir eru í megindráttum að 9. maí 2023 spurðist einkahlutafélagið B fyrir um bifreiðar til langtímaleigu hjá C ehf. og jafnframt um leigu bifreiðar þar til langtímasamningur kæmist á. Starfsmaður C ehf. svaraði umsókninni með tölvubréfi daginn eftir og upplýsti að fylla þyrfti út umsóknareyðublað um viðskipti sem væri í viðhengi, prenta það út, skrifa undir og senda til baka.

8. Ákærði sendi umsókn um viðskipti fyrir hönd B ehf. 10. maí 2023. Í henni tilgreindi hann A sem tengilið félagsins og tók fram að starfsheiti A væri „hluthafi/starfsmaður“. Í reitinn „Undirskrift umsóknaraðila og samþykki viðskiptaskilmála“ ritaði hann síðan „A“.

9. Fyrir liggur að með samningi 10. maí 2023 keypti ákærði allt hlutafé í einkahlutafélaginu B af D og A. Þá liggur fyrir tilkynning til hlutafélagaskrár um breytingu á stjórn einkahlutafélagsins sem var móttekin 24. maí 2023. Þar segir að ákærði hafi verið kosinn í eins manns stjórn á hluthafafundi 1. sama mánaðar.

Röksemdir ákærða og ákæruvalds

Helstu röksemdir ákærða

10. Ákærði byggir á því að hann hafi haft samþykki A til að nota nafn hans í viðskiptum B ehf. meðan hann væri enn skráður raunverulegur eigandi, hluthafi og prókúruhafi félagsins. Vísar ákærði til þess að hann hafi tekið við réttindum og skyldum B ehf. frá og með 1. maí 2023 samkvæmt samningi 10. sama mánaðar. Óumdeilt sé að hann hafi haft prókúru frá 1. maí og frá þeim tíma verið heimilt að gera samning fyrir hönd félagsins við bílaleigu um leigu á bifreið. Ekki beri að miða þá heimild við móttökudag hlutafélagaskrár um breytingu á stjórn.

11. Þá tekur ákærði undir forsendur héraðsdóms. Huglægri afstöðu hans sé ekki hægt að jafna við ásetning til að beita blekkingum í lögskiptum í skilningi 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga. Engin blekking hafi átt sér stað. Réttarsamband hafi komist á með B ehf. og C ehf. og sá samningur verið efndur af báðum aðilum. Umsóknin sem ákærði ritaði undir hafi ekki verið um tiltekin viðskipti heldur einungis veitt C ehf. heimild til að fletta B ehf. upp hjá Creditinfo.

Helstu röksemdir ákæruvalds

12. Af ákæruvaldsins hálfu er tekið undir forsendur og niðurstöðu hins áfrýjaða dóms. Vísar ákæruvaldið til þess að í málinu liggi fyrir að tilkynning um breytingu á stjórn B ehf. hafði ekki borist hlutafélagaskrá þegar ákærði stofnaði til viðskipta við C ehf. Ákærði hafi þar með enga stöðu haft af hálfu félagsins út á við gagnvart þriðja aðila og ekki getað stofnað til slíkra viðskipta með undirritun fyrir hönd þess. Af framburði ákærða megi ráða að honum hafi verið þetta ljóst.

13. Í málinu liggi fyrir að umsóknin hafi verið fölsuð þar sem hún hafi verið undirrituð af ákærða en ekki A eins og hún hafi borið með sér. Skjalið hafi ákærði notað til að stofna til viðskipta við C ehf. og á grundvelli þess hafi félaginu verið leigðar bifreiðir. Blekkingin hafi verið fólgin í því að rita nafn A undir umsóknina og láta líta út fyrir að hann en ekki ákærði sjálfur væri að stofna til viðskipta fyrir hönd félagsins. Með því að afhenda C ehf. umsóknina hafi ákærði af ásetningi notað falsað skjal til að koma því til leiðar að einkahlutafélagið B stofnaði til viðskipta við C ehf. um leigu bifreiða. Hafi hann þar með notað skjalið til að blekkja í lögskiptum í skilningi 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga.

Niðurstaða

14. Skjalafalsi er í 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga lýst með þeim hætti að hver sem noti falsað skjal til þess að blekkja með því í lögskiptum skuli sæta fangelsi allt að átta árum. Skuli það einkum metið refsingu til þyngingar ef skjalið er notað sem opinbert skjal, viðskiptabréf eða erfðaskrá. Í 3. mgr. ákvæðisins segir að hafi aðeins verið um lítilræði að tefla eða miklar málsbætur séu að öðru leyti, einkum ef fremjandi hefur ekki ætlað að baka öðrum tjón, megi beita fangelsi allt að einu ári eða sektum.

15. Í athugasemdum við skjalafalsákvæðið í greinargerð sem varð að almennum hegningarlögum sagði orðrétt:

Ekki er ætlazt til, að hugtakið skjal sé skýrt á annan hátt en til þessa hefir verið. Skjalið verður að vera þess efnis og þannig úr garði gert, að unnt sé að blekkja með því í lögskiptum. Falsað er skjal þegar það, með því efni, sem það hefir, stafar ekki frá þeim manni, sem það gefur sjálft til kynna, að það sé frá eða vitað er um, að það á að stafa frá. Brotið er ekki fullframið, þegar fölsun hefir verið framkvæmd, heldur þá fyrst, er skjalið hefir verið notað í blekkingarskyni. Hinsvegar er ekki skilyrði, að nokkur hafi blekkzt vegna fölsunarinnar. Auðgunartilgangur þarf ekki að vera fyrir hendi, og ekki heldur sá ásetningur að baka öðrum tjón, sbr. 2. mgr.

16. Í hinum áfrýjaða dómi var talið sannað að umsókn um leigu bifreiðar hafi verið fölsuð þar sem hún hafi ekki stafað frá þeim sem hún bar með sér. Niðurstaðan byggðist einkum á framburði vitnisins A um að ákærði hefði enga heimild haft frá honum til að rita nafn hans á skjalið en Landsréttur mat þann framburð trúverðugri en framburð ákærða um að hann hefði haft fullt umboð til þess. Landsréttur lagði til grundvallar að með því að afhenda C ehf. umsóknina hafi ákærði af ásetningi notað falsað skjal til að koma því til leiðar að einkahlutafélagið B stofnaði til viðskipta við C ehf. um leigu bifreiða. Hafi ákærði þar með notað skjalið til að blekkja með í lögskiptum í skilningi 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga.

17. Niðurstaða hins áfrýjaða dóms um sakfellingu og heimfærslu til refsiákvæða var reist á heildstæðu mati á öllum sönnunargögnum og þá einkum sönnunargildi munnlegs framburðar ákærða og vitnisins A. Það mat verður ekki endurskoðað af Hæstarétti, sbr. 2. mgr. 225. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Í samræmi við það hefur rétturinn ítrekað tekið fram að honum sé þröngur stakkur skorinn við endurskoðun á sönnunarmati Landsréttar undir þessum kringumstæðum.

18. Samkvæmt því sem hér hefur verið rakið en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms verður hann staðfestur um sakfellingu ákærða fyrir brot gegn 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga.

19. Við skjalafalsi liggur samkvæmt framansögðu allt að átta ára fangelsi. Er það til vitnis um að slík brot eru almennt talin alvarleg. Í þessu máli ber þó að líta til þess að Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að ekkert lægi fyrir um að ákærði hefði framið brot sitt í ávinningsskyni. Þá kom fram í dóminum að sama dag og ákærði framdi brotið hefði hann gengið frá kaupum á öllu hlutafé einkahlutafélagsins B. Því er fallist á með Landsrétti að við ákvörðun refsingar sé rétt að líta til fyrrnefndrar 3. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga. Jafnframt er fallist á með Landsrétti að rétt sé að líta til 3. töluliðar 1. mgr. 70. gr. sömu laga sem mælir fyrir um að við ákvörðun refsingar eigi að taka til greina hversu mikil hætta hafi verið búin af verki, einkum þegar til þess sé litið hvenær, hvar og hvernig það hafi verið framkvæmt.

20. Ákærði hlaut 13. júní 2023 sex mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir fjárkúgun. Brot það sem hann hefur verið sakfelldur fyrir í þessu máli framdi hann 10. maí sama ár eða áður en fyrrnefndur dómur gekk. Ber því að dæma ákærða hegningarauka, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga og ákveða refsingu jafnframt með hliðsjón af 77. gr. sömu laga um brotasamsteypu. Samkvæmt fyrrnefndu lagagreininni skal hegningarauki samsvara þeirri þyngingu refsingar sem kynni að hafa orðið ef dæmt hefði verið um öll brot hans í fyrra málinu.

21. Við ákvörðun hegningarauka í máli þessu er til þess að líta að þótt hámarksrefsing fyrir skjalafalsbrot sé hærri en fyrir fjárkúgun verður ráðið af umræddum dómi 13. júní 2023 að um mun alvarlegra brot hafi verið að ræða en í því máli sem hér er til úrlausnar. Að virtum þeim málsbótum sem ákærði hefur samkvæmt framansögðu má ætla að hann hefði ekki hlotið þyngri refsingu en honum var dæmd með fyrrnefndum dómi þótt um skjalafalsbrot hans hefði jafnframt verið dæmt í því máli. Þykir ákærði því ekki eiga að hljóta frekari refsingu en honum hefur áður verið dæmd.

22. Staðfest verða ákvæði hins áfrýjaða dóms um sakarkostnað.

23. Eftir þessum úrslitum og samkvæmt 1. mgr. 238. gr., sbr. 235. gr. laga nr. 88/2008, verður ákærða gert að greiða helming áfrýjunarkostnaðar málsins fyrir Hæstarétti, þar með talið helming málsvarnarlauna skipaðs verjanda síns sem ákveðin verða að meðtöldum virðisaukaskatti, allt eins og greinir í dómsorði. Að öðru leyti verður áfrýjunarkostnaður fyrir Hæstarétti felldur á ríkissjóð.

Dómsorð:

Ákærða, Lárusi Guðmundi Jónssyni, verður ekki gerð refsing í máli þessu.

Ákvæði hins áfrýjaða dóms um sakarkostnað skulu vera óröskuð.

Ákærði greiði helming málsvarnarlauna verjanda síns fyrir Hæstarétti, Auðar Bjargar Jónsdóttur lögmanns, 706.800 krónur.

Ákærði greiði helming annars áfrýjunarkostnaðar málsins fyrir Hæstarétti sem er samtals 59.087 krónur. Að öðru leyti greiðist áfrýjunarkostnaður úr ríkissjóði.