Fara beint í efnið

Hæstiréttur

Mál nr. 44/2026

Föstudagurinn 30. október 2026

Daði Einarsson, Jens Guðbjörnsson, Daði Guðbjörnsson, Guðbjörn Guðbjörnsson, Gunnar Guðbjörnsson, Valdimar Makaira Valdimarsson, Jóhannes Wiremu Valdimarsson, Stefán Wirihana Valdimarsson, Sólrún H. Skúladóttir, Guðný Kúld, Kristín Aðalsteinsdóttir, Iða Brá Skúladóttir og Þorsteinn Guðbrandsson (Gísli Guðni Hall lögmaður)

gegn

Dön ehf. (Friðbjörn Eiríkur Garðarsson lögmaður)

Lykilorð

Kærumál. Útivist í héraði. Lögmæt forföll. Boðun til þinghalds. Þingsókn. Úrskurður Landsréttar felldur úr gildi. Aðfinnslur

Reifun

Með hinum kærða úrskurði var meðferð málsins ómerkt og vísað til nýrrar meðferðar í héraði á þeim grundvelli að héraðsdómara hefði borið að fella það niður vegna útivistar stefnanda í þinghaldi sem boðað hafði verið til í því skyni að kveða upp úrskurð um frávísunarkröfu. Hæstiréttur rakti að vegna óskýrra og misvísandi skilaboða héraðsdómara til lögmanna málsaðila í tölvupóstsamskiptum þeirra á milli í aðdraganda þinghaldsins hefðu þeir haft ástæðu til að ætla að fjarvera þeirra myndi ekki verða umbjóðendum þeirra til tjóns þrátt fyrir að þeir hefðu ekki boðað lögmæt forföll. Eins og hér háttaði til og vegna misvísandi skilaboða héraðsdómara bar honum því í fyrrnefndu þinghaldi að boða til nýs þinghalds í stað þess að kveða upp úrskurð að lögmönnum fjarstöddum. Vísaði Hæstiréttur til þess að þrátt fyrir þennan annmarka hefði málsmeðferðinni ekki verið svo stórlega ábótavant að rétt væri að ómerkja hana og vísa málinu til nýrrar meðferðar í héraði. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir Landsrétt að taka málið til efnislegrar meðferðar.

Dómur Hæstaréttar

1. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ásgerður Ragnarsdóttir, Björg Thorarensen, Sigurður Tómas Magnússon og Skúli Magnússon.

2. Sóknaraðilar skutu málinu til Hæstaréttar með kæru 9. júlí 2026 sem barst réttinum degi síðar en kærumálsgögn bárust 16. sama mánaðar. Kærður er úrskurður Landsréttar 25. júní sama ár þar sem meðferð málsins í héraði frá og með 22. nóvember 2024 var ómerkt og lagt fyrir héraðsdóm að taka það til meðferðar á ný.

3. Sóknaraðilar krefjast þess að hinn kærði úrskurður verði felldur úr gildi og lagt fyrir Landsrétt að taka málið til meðferðar á ný.

4. Varnaraðili gerir aðallega sömu kröfur og sóknaraðilar en til vara að lagt verði fyrir héraðsdóm að boða til nýs þinghalds til samræmis við 3. mgr. 97. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

Ágreiningsefni

5. Í máli þessu er til úrlausnar hvort Landsrétti hafi verið rétt að ómerkja meðferð málsins og vísa því til nýrrar meðferðar í héraði á þeim grundvelli að héraðsdómara hafi borið að fella málið niður þegar þingsókn féll niður af hálfu stefnanda í þinghaldi sem boðað hafði verið til í því skyni að kveða upp úrskurð um frávísunarkröfu.

6. Efnisdómur í máli aðila var kveðinn upp í héraði 30. júní 2025 og sóknaraðilar, ásamt átta öðrum, sýknaðir af kröfum varnaraðila. Með hinum kærða úrskurði var meðferð málsins í héraði frá og með 22. nóvember 2024 ómerkt á þeim grundvelli að héraðsdómara hefði borið að fella það niður vegna útivistar stefnanda. Þann dag hafði málið verið tekið fyrir í því skyni að kveða upp úrskurð um frávísunarkröfu án þess að sótt væri þing af hálfu aðila.

7. Aðilar eru sammála um að fella beri hinn kærða úrskurð úr gildi.

8. Kæruleyfi var veitt 21. september 2026, með ákvörðun Hæstaréttar nr. 2026-110, á þeim grunni að fullnægt væri skilyrðum 3. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 til að veita leyfið.

Málsatvik og málsmeðferð

9. Fyrir héraðsdómi gerði varnaraðili þrenns konar kröfur sem lutu í megindráttum að viðurkenningu á beinum eignarrétti á hluta af landi og landsréttindum jarðarinnar Dönustaða í Dalabyggð svo og afmörkun á landamerkjum útskipts lands hennar gagnvart jörðinni Lambeyrum.

10. Mál þetta var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness 15. nóvember 2023. Öllum eigendum Dönustaða var stefnt en auk sóknaraðila var þar um að ræða átta aðra aðila. Skiluðu þessir átta stefndu saman greinargerð í málinu 13. desember sama ár þar sem þeir féllust á allar kröfur stefnanda, kröfðust ekki málskostnaðar og lýstu því yfir að þeir myndu ekki láta málið frekar til sín taka. Sóttu þeir ekki þing í málinu í héraði eftir það. Aðrir stefndu tóku til varna og skiluðu greinargerð þar sem eingöngu var krafist frávísunar málsins.

11. Þar sem allir dómarar við Héraðsdóm Reykjaness viku sæti í málinu 7. júní 2024 fól dómstólasýslan dómstjóra Héraðsdóms Norðurlands vestra, með aðsetur á Sauðárkróki, meðferð málsins. Í þinghaldi sem hann hélt á starfsstöð Héraðsdóms Reykjaness 31. október sama ár var málið flutt um frávísunarkröfu sóknaraðila og tekið til úrskurðar um þá kröfu. Bókað var í þingbók að boðað yrði til uppkvaðningar úrskurðar með tíðkanlegum hætti.

12. Með tölvubréfi héraðsdómara 21. nóvember 2024 klukkan 9.56 tilkynnti hann lögmönnum málsaðila að daginn eftir klukkan 11.00 yrði kveðinn upp úrskurður í málinu. Hann yrði kveðinn upp á Sauðárkróki nema sérstök mótmæli kæmu fram þar að lútandi en jafnframt var tekið fram að málið ætti „vissulega lögheimili í Reykjanesi.“ Lögmenn voru beðnir um að staðfesta móttöku og láta vita um afstöðu til staðsetningar þinghaldsins og hvort þeir óskuðu eftir að nota fjarfundarbúnað.

13. Lögmaður sóknaraðila svaraði héraðsdómara að bragði með tölvubréfi. Gerði hann ekki athugasemdir við að úrskurðurinn yrði kveðinn upp á Sauðárkróki og að því búnu sendur lögmönnunum. Hann lýsti því einnig yfir að ekki þyrfti að nota fjarfundarbúnað hans vegna. Kvaðst hann segja þetta með fyrirvara um að lögmaður varnaraðila óskaði ekki eftir öðru. Lögmaður varnaraðila tók undir með lögmanni gagnaðila í tölvubréfi til dómarans sama dag og kvað nægilegt að fá úrskurðinn sendan með tölvupósti. Héraðsdómarinn svaraði lögmönnunum með tölvubréfi síðar sama dag en þar sagði: „Ég tek þetta þannig að þið boðið forföll og ég sé til þess að úrskurðurinn verði sendur ykkur að uppkvaðningu lokinni.“

14. Héraðsdómari tók málið fyrir 22. nóvember 2024 og bókaði í þingbók: „Af hálfu aðila hafa verið boðuð forföll og þá liggur fyrir að þeir gera ekki athugasemd við að þinghaldið fari fram á Sauðárkróki.“ Í málinu var í kjölfarið kveðinn upp úrskurður þar sem frávísunarkröfu var hafnað. Loks var bókað í þingbók: „Úrskurðurinn er sendur lögmönnum aðila með rafrænum hætti.“

Málsástæður

15. Málsaðilar eru sammála um að ekki hafi verið skilyrði til að fella málið niður með vísan til b-liðar 1. mgr. 105. gr. laga nr. 91/1991 vegna útivistar lögmanna í þinghaldi í héraði 22. nóvember 2024.

16. Lögmaður sóknaraðila telur að það sem skilji mál þetta frá þremur hæstaréttardómum sem vísað sé til í hinum kærða úrskurði sé að lögmenn málsaðila og héraðsdómari hafi verið í tölvupóstsamskiptum fyrir uppkvaðningu úrskurðarins umræddan dag. Héraðsdómarinn hafi staðfest móttöku forfallatilkynninga lögmanna án athugasemda og svar hans til þeirra verði ekki skilið á annan hátt en að hann hafi að eigin frumkvæði metið forföll þeirra lögmæt. Dómarinn hafi því ekki haft tilefni til að líta svo á að um útivist væri að ræða og ekki gert það.

17. Sóknaraðilar benda á að hefði dómarinn eða annar hvor málsaðila vefengt lögmæti forfalla hefði legið fyrir honum að leysa úr því með úrskurði. Úrskurður dómara um niðurfellingu máls hefði verið kæranlegur til Landsréttar samkvæmt k-lið 1. mgr. 143. gr. laga nr. 91/1991. Forföll lögmannanna hafi hins vegar ekki verið vefengd og lögmæti þeirra því ekki komið til frekari skoðunar.

18. Sóknaraðilar benda á að aðeins dómari geti boðað lögmenn til þinghalds og hann einn geti afboðað þá með sama hætti. Samskipti hans við lögmenn hafi verið á þann veg að samkomulag hafi verið þeirra á milli um að lögmenn yrðu ekki viðstaddir þinghald umræddan dag. Forföll lögmannanna sem skráð hafi verið í þingbók hafi því ekki þurft að skilgreina þau lagalega samkvæmt 97. gr. laga nr. 91/1991. Dómarinn hafi sent þeim úrskurð um frávísunarkröfu og málsmeðferð verið fram haldið að svo búnu.

19. Ómerking af hálfu Landsréttar, þegar svo hátti til sem í þessu máli, tefji endanlegar lyktir þess og feli í sér óþarfa viðbótarvinnu og kostnað, bæði fyrir aðila og dómskerfið. Það atriði sem Landsréttur hafi byggt ómerkingu á hafi engin áhrif haft á áframhaldandi málsmeðferð eða efnislega niðurstöðu málsins. Sóknaraðilar vísa jafnframt til réttaröryggis aðila og málshraða- og málsforræðisreglu réttarfars. Eins og atvikum sé háttað sé því ekki næg ástæða til að ómerkja málsmeðferðina enda myndu vægari úrræði, svo sem aðfinnslur, þjóna sama tilgangi.

20. Af hálfu varnaraðila er tekið undir málsástæður og lagarök sóknaraðila. Þá styður hann varakröfu sína þeim rökum að verði ekki fallist á aðalkröfuna standi engin rök til þess að fella málið fyrirvaralaust niður í héraði. Þess í stað bæri héraðsdómara að boða lögmenn til nýrrar fyrirtöku á grundvelli d-liðar 1. mgr. 97. gr. laga nr. 91/1991.

Löggjöf

21. Um meðferð frávísunarkröfu, forföll aðila frá þinghaldi og afleiðingar þeirra er fjallað í lögum nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

22. Um forföll aðila frá þinghaldi segir svo í 1. til 3. mgr. 97. gr. laganna:

1. Forföll aðila frá þinghaldi teljast lögmæt ef þau stafa af:

a. sjúkdómi hans sjálfs, heimilismanns hans eða annars manns sem hann þarf að annast eða leita læknishjálpar fyrir,

b. veðri, torfærum eða öðrum óviðráðanlegum atvikum,c. því að hann yrði ella fyrir verulegum vinnumissi eða tjóni á atvinnu eða öðrum hagsmunum,

d. þörf á ferðalagi um langan veg,

e. embættis- eða sýslunarstörfum sem eru fyrir fram ákveðin og þola ekki bið,f. áður ákveðnu þinghaldi.

2. Lögmæt forföll umboðsmanns aðila jafngilda lögmætum forföllum aðilans sjálfs.3. Ef dómara er kunnugt um að aðili mæti ekki vegna lögmætra forfalla frestar hann máli og tilkynnir hvenær það verði tekið fyrir á ný.

23. Í 2. mgr. 100. gr. laganna segir um meðferð frávísunarkröfu:

Nú krefst stefndi frávísunar máls í greinargerð, og skal þá málið flutt munnlega um þá kröfu áður en fjallað verður frekar um efni þess og leyst úr kröfunni í úrskurði. Frá þessu má víkja ef krafan byggist á ástæðum sem varða einnig efni máls og nægilegar upplýsingar þykja ekki komnar fram að því leyti.

24. Samkvæmt b-lið 1. mgr. 105. gr. laganna verður mál fellt niður ef stefnandi sækir ekki þing og hefur ekki lögmæt forföll. Af 3. mgr. 96. gr. laganna leiðir jafnframt að ef stefndi sækir ekki þing eftir að hann hefur skilað greinargerð verður málið tekið til dóms og dæmt eftir framkomnum kröfum, gögnum og sókn stefnanda með tilliti til þess sem hefur komið fram af hálfu stefnda.

25. Í 3. mgr. 115. gr. laganna er mælt fyrir um tilkynningar dómara um uppkvaðningu dóms eða úrskurðar ef vörnum hefur verið haldið uppi og um uppkvaðninguna sjálfa. Í 4. mgr. greinarinnar segir að frestir samkvæmt dómi eða úrskurði byrji að líða þegar við uppkvaðningu hans án tillits til þess hvort aðilar séu þar staddir.

23. Með 52. gr. laga nr. 53/2024, um breytingu meðal annars á lögum um meðferð einkamála, sem tók gildi 28. maí 2024 og varð að 4. mgr. 8. gr. síðarnefndu laganna, var fest í sessi bráðabirgðaákvæði um fjarþinghöld sem hafði verið í gildi frá árinu 2020. Ákvæðið er á þá leið að dómari geti heimilað þátttöku í þinghaldi í gegnum fjarfundarbúnað, enda verði því háttað þannig að allir sem viðstaddir séu geti fylgst með því sem fram fer. Teljist það fullnægjandi mæting af hálfu málsaðila.

Niðurstaða

26. Í hinum kærða úrskurði kemur fram að báðir lögmenn höfðu staðfest móttöku boðunar í fyrrgreint þinghald 22. nóvember 2024 til uppkvaðningar úrskurðar héraðsdómara um hvort vísa ætti málinu frá dómi en ekki mætt. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að þar sem þingsókn hefði fallið niður af hálfu stefnanda í héraði hefði dómara borið að fara svo að sem segir í b-lið 1. mgr. 105. gr. laga nr. 91/1991 og fella málið niður nema um lögmæt forföll hefði verið að ræða í skilningi 2. mgr., sbr. 1. mgr. 97. gr. sömu laga, en í þingbók málsins kæmi þó ekkert fram um að svo hefði verið og heldur ekki í svari lögmanna til héraðsdóms. Hefði sú verið raunin hefði héraðsdómara samkvæmt 3. mgr. sömu greinar því borið að fresta málinu og boða til nýs þinghalds. Héraðsdómari hefði hvorugt gert. Væri því óhjákvæmilegt að ómerkja meðferð málsins frá og með fyrrgreindu þinghaldi og leggja fyrir héraðsdóm að taka það til meðferðar á ný. Engu var talið breyta þótt lögmenn hefðu samþykkt að úrskurðurinn yrði kveðinn upp á aðsetri Héraðsdóms Norðurlands vestra á Sauðárkróki, enda hefði lögmönnum verið fær sú leið við þingsókn sem héraðsdómari hefði tiltekið í boðun sinni, það er að hún færi fram með fjarfundarbúnaði í samræmi við 4. mgr. 8. gr. laga nr. 91/1991.

27. Í hinum kærða úrskurði var meðal annars vísað til dóms Hæstaréttar 24. ágúst 1999 í máli nr. 238/1999 þar sem staðfestur var úrskurður héraðsdóms um niðurfellingu máls og greiðslu málskostnaðar. Í dóminum kom fram að ekki hefði verið mætt af hálfu stefnanda í þinghald til uppkvaðningar úrskurðar um frávísunarkröfu sem boðað hefði verið til með lögmætum hætti. Ákvæði b-liðar 1. mgr. 105. gr. laga nr. 91/1991 yrði ekki skilið svo að það tæki ekki til þinghalds sem boðað hefði verið til í því skyni að kveða upp úrskurð um atriði varðandi rekstur máls. Hefði héraðsdómara því verið rétt að fella málið niður.

28. Þá var í hinum kærða úrskurði vísað til dóms Hæstaréttar 24. mars 2011 í máli nr. 521/2010. Í því máli reyndi á áhrif útivistar af hálfu stefndu sem höfðu látið sækja þing við þingfestingu málsins en ekki við næstu fyrirtöku þess 9. desember 2008. Stefndu skiluðu engu að síður greinargerð og var málið munnlega flutt og kveðinn upp í því efnisdómur. Hæstiréttur ómerkti meðferð þess frá og með 9. desember 2008 hvað varðaði kröfur á hendur áfrýjanda málsins. Vísað var til þess að þegar þingsókn féll niður af hálfu stefndu á því tímamarki hefði héraðsdómara borið að fara svo að sem segði í 2. mgr. 96. gr. laga nr. 91/1991 og taka málið til dóms í þeim búningi sem það hefði þá verið í enda lægi ekkert fyrir um að lögmæt forföll hefðu hindrað mætingu af hálfu stefndu, sbr. 97. gr. laganna.

29. Af 36. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla leiðir sú meginregla að þinghöld í málum sem rekin eru við héraðsdómstól skuli fara fram á föstum þingstað dómstóls sem er aðsetur hans. Samkvæmt 2. mgr. greinarinnar getur héraðsdómari þó háð þing til að taka fyrir mál eftir þingfestingu þess utan fasts þingstaðar, hvort sem er innan umdæmis dómstólsins eða utan þess, ef það þykir heppilegra vegna reksturs þess.

30. Af fyrrnefndum tölvupóstsamskiptum héraðsdómara og lögmanna málsaðila 21. nóvember 2024 um fyrirhugað þinghald í málinu á Sauðárkróki daginn eftir, til uppsögu úrskurðar um frávísunarkröfu, er ljóst að lögmennirnir gerðu ekki athugasemdir við þetta. Þá óskuðu þeir ekki eftir að sækja þing í gegnum fjarfundarbúnað. Lögmennirnir gátu því ekki borið fyrir sig lögmæt forföll á grundvelli þess að þörf væri á ferðalagi um langan veg, sbr. d-lið 1. mgr. 97. gr. laga nr. 91/1991. Þá voru atvik ekki með þeim hætti að aðrir stafliðir málsgreinarinnar ættu við.

31. Af b-lið 1. mgr. 105. gr. laga nr. 91/1991 leiðir að dómara ber almennt að fella mál niður þegar stefnandi sækir ekki þing eftir þingfestingu þess ef hann hefur ekki lögmæt forföll, sbr. meðal annars fyrrnefndan dóm Hæstaréttar í máli nr. 238/1999. Þrátt fyrir þetta verður ráðið af 3. og 4. mgr. 115. gr. laga nr. 91/1991 að dómara beri ekki að fella niður mál þegar um er að ræða fjarveru aðila í þinghaldi þar sem, að undangengnum munnlegum málflutningi, er kveðinn upp dómur eða úrskurður um endanlegar lyktir máls. Þannig ber dómara að kveða upp úrskurð um frávísun máls þótt enginn sæki þing sem ákveðið hefur verið til uppkvaðningar slíks úrskurðar. Annað á hins vegar við þegar um er að ræða úrskurð um höfnun frávísunar og ekki er sótt þing af hálfu málsaðila, án lögmætra forfalla. Ber dómara þá að fella málið niður vegna útivistar stefnanda eða boða til nýs þinghalds ef hann telur boðun í þinghaldið hafa verið ábótavant. Hið sama á við ef síðar eru komnar fram upplýsingar um lögmæt forföll af hálfu stefnanda.

32. Af fyrrnefndum lagaákvæðum leiðir að þegar dómari boðar til þinghalds að loknum munnlegum málflutningi um frávísunarkröfu í því skyni að kveða upp úrskurð þar um er aðilum nauðsynlegt að láta sækja þing. Verði frávísunarkröfu hafnað eiga þeir það ella á hættu að dómari felli málið niður ef enginn er mættur í þinghaldið af hálfu stefnanda eða taki það þegar til dóms sem útivistarmál ef svo háttar til hjá stefnda.

33. Svo sem rakið hefur verið var héraðsdómara ljóst daginn fyrir áðurnefnt þinghald að ekki yrði sótt þing af hálfu málsaðila án þess þó að þeir hefðu borið við einhverju þeirra atriða sem samkvæmt 1. mgr. 97. gr. laga nr. 91/1991 gat með réttu leitt til þess að um lögmæt forföll væri að ræða. Þrátt fyrir þetta voru skilaboð dómara til lögmanna málsaðila í tölvubréfi sama dag þau að hann tæki svörum þeirra svo að þeir hefðu boðað forföll en úrskurður um frávísun yrði engu að síður kveðinn upp í þinghaldinu og hann sendur þeim að uppsögu lokinni.

34. Samkvæmt framangreindu verður að líta svo á að dómari hafi með fyrrnefndum skilaboðum til lögmanna gefið til kynna að hann liti annaðhvort á forföll þeirra sem lögmæt eða að úrskurðurinn yrði í öllu falli þess efnis að fjarvera þeirra í þinghaldinu ylli aðilum ekki réttarspjöllum. Þótt lögmennirnir hefðu ekki borið við neinu þeirra atriða sem réttlætt gátu fyrirhuguð forföll höfðu þeir þannig ástæðu til að ætla að fjarvera þeirra myndi ekki verða umbjóðendum þeirra til tjóns.

35. Eins og hér stóð á, einkum vegna áðurlýstra óskýrra og misvísandi skilaboða héraðsdómara til lögmanna málsaðila í tölvupóstsamskiptum þeirra, bar honum við fyrirtöku málsins 22. nóvember 2024 að boða til nýs þinghalds í stað þess að kveða upp úrskurð um frávísunarkröfu að lögmönnum fjarstöddum. Kemur þá til úrlausnar hvaða afleiðingar þessi annmarki á meðferð málsins á að hafa.

36. Megintilgangur réttarfarsreglna er að stuðla að efnislega réttri niðurstöðu í dómsmáli. Hinar ýmsu formreglur geta þó haft víðtækari tilgang, svo sem að styðja við mikilvægar meginreglur réttarfars og stuðla að og halda uppi gæðum við málsmeðferð fyrir dómi. Ómerking dómsúrlausnar getur skerpt á kröfum um að mikilvægum málsmeðferðarreglum sé fylgt og þannig skapað aðhald fyrir alla þá sem koma að rekstri dómsmála. Samkvæmt framangreindu er ómerking úrræði sem rétt er að beita af varfærni með réttaröryggi að leiðarljósi og því aðeins að um stórfelldan annmarka sé að ræða á málsmeðferð eða samningu héraðsdóms sem fallinn er til að hafa áhrif á niðurstöðu máls og ekki er unnt að beita vægara úrræði. Í því sambandi má til hliðsjónar líta til 1. mgr. 176. gr. laga nr. 91/1991 þar sem mælt er fyrir um að Hæstiréttur geti veitt leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar ef ástæða er til að ætla að málsmeðferð fyrir héraðsdómi eða Landsrétti hafi verið „stórlega ábótavant“.

37. Í samræmi við þetta hafa annmarkar á skipun dóms á lægra dómstigi leitt til ómerkingar í dómaframkvæmd enda þar um að ræða atriði sem er til þess fallið að hafa áhrif á niðurstöðu máls. Þá leiðir að jafnaði til ómerkingar dómsúrlausnar ef lögbundnir frestir hafa ekki verið virtir enda í þágu meginreglunnar um greiða málsmeðferð að ekki leiki vafi á hvernig slíkum réttarfarsákvæðum verður beitt. Jafnframt verður ráðið af dómi Hæstaréttar 6. febrúar 1995 í máli nr. 384/1992, sem birtur var í dómasafni réttarins það ár á bls. 304, að ómerking héraðsdóms geti verið nauðsynleg í ljósi meginreglunnar um munnlega málsmeðferð. Í dóminum sagði að svigrúm héraðsdómara og lögmanns aðila til samkomulags um að ekki sé þörf á að endurflytja mál ef uppsaga þess dregst umfram fjórar vikur frá dómtöku, sbr. 1. mgr. 115. gr. laga nr. 91/1991, yrði að sæta takmörkunum með hliðsjón af því að munnlegur málflutningur geti ekki komið að því gagni sem til sé ætlast þegar dómsuppsaga dregst fram yfir átta vikur.

38. Helstu sjónarmið að baki ákvæðum laga nr. 91/1991 um áhrif útivistar málsaðila eru þau að líta megi á fjarveru þeirra sem yfirlýsingu í verki um að annaðhvort ætli fjarstaddur stefnandi ekki að halda máli áfram eða hins vegar að stefndi í sömu stöðu hyggist ekki halda uppi vörnum. Gengið er út frá því að aðilar beri ábyrgð á að mætt sé af þeirra hálfu til löglega boðaðs þinghalds og dómari eigi ekki við þær aðstæður að þurfa að boða þá til nýs þinghalds nema um lögmæt forföll sé að ræða. Skýr og afdráttarlaus dómaframkvæmd um áhrif útivistar er þannig til þess fallin að tryggja fylgni við réttarfarsreglur sem ætlað er að stuðla að greiðri og fyrirsjáanlegri málsmeðferð.

39. Eins og áður hefur verið rakið má einkum rekja fyrrgreindan annmarka á meðferð málsins í héraði til óskýrra og misvísandi skilaboða héraðsdómara í tölvupóstsamskiptum við lögmenn aðila í aðdraganda þinghalds til uppkvaðningar úrskurðar um frávísunarkröfu. Við úrlausn um hvort sá annmarki sé svo stórfelldur að leiða eigi til ómerkingar og heimvísunar málsins er einnig rétt að líta til þess að sex dögum eftir að þingsókn féll niður boðaði dómarinn lögmenn til nýs þinghalds. Var þá sótt þing án athugasemda þeirra eða dómara. Málinu var eftir það fram haldið með eðlilegum hætti og kveðinn upp í því efnisdómur.

40. Við þær aðstæður sem nú hefur verið lýst styður ómerking héraðsdóms og heimvísun málsins ekki við neina af grunnreglum einkamálaréttarfars heldur vinnur þvert á móti gegn meginreglu þess um greiða málsmeðferð. Eins og hér stendur á væri slík niðurstaða ekki heldur til þess fallin að stuðla að efnislega réttri niðurstöðu í málinu. Hún hefði hins vegar í för með sér tafir á úrlausn þess, viðbótarkostnað fyrir málsaðila svo og dómskerfið allt.

41. Þrátt fyrir það sem úrskeiðis fór við meðferð málsins í héraði var málsmeðferðinni samkvæmt öllu framangreindu ekki svo stórlega ábótavant að rétt sé að ómerkja hana og vísa málinu til nýrrar meðferðar í héraði. Hinn kærði úrskurður verður því felldur úr gildi og málinu vísað aftur til Landsréttar til efnislegrar meðferðar.

42. Það athugast að sú málsmeðferð héraðsdómara að kveða upp úrskurð um höfnun frávísunarkröfu í þinghaldi 22. nóvember 2024 í stað þess að fresta málinu utan réttar, svo sem rétt hefði verið í ljósi fyrrgreindra samskipta hans við lögmenn, var ekki í samræmi við lög. Er þetta aðfinnsluvert.

43. Kærumálskostnaður fyrir Hæstarétti verður ekki dæmdur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er felldur úr gildi og málinu vísað aftur til Landsréttar til efnislegrar meðferðar.

Kærumálskostnaður fyrir Hæstarétti fellur niður.