Hæstiréttur
Mál nr. 4/2026
Miðvikudagurinn 14. október 2026
A (Helgi Birgisson lögmaður)
gegn
Verði tryggingum hf. (Magnús Hrafn Magnússon lögmaður)
Lykilorð
Skaðabætur. Líkamstjón. Umferðarslys. Árslaun. Viðmiðunartekjur. Sönnun. Fordæmi. Gjafsókn. Sératkvæði
Reifun
Í málinu var deilt um hvort við útreikning bóta fyrir varanlega örorku A skyldi meta árslaun hennar sérstaklega samkvæmt 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 eða hvort miða skyldi við lágmarkslaun, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Með héraðsdómi var fallist á með A að laun hennar yrðu metin sérstaklega en í dómi Landsréttar voru bætur hins vegar miðaðar við lágmarkslaun. Hæstiréttur leit til þess að A hefði lokið meira en helmingi náms á slysdegi. Var það mat réttarins að þegar litið væri til námsins, námsframvindu fyrir slysið og atvika í kjölfar þess yrði A að öllu virtu talin hafa leitt nægilega í ljós að námslok hafi verið fyrirsjáanleg þannig að árslaun hennar yrðu ákveðin sérstaklega á grundvelli 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Þá tók Hæstiréttur til greina kröfu A, sem tók mið af meðallaunum starfsstéttar hennar samkvæmt kjarakönnun miðað við launavísitölu til stöðugleikatímapunkts en V hf. þótti ekki hafa bent á annað viðmið sem ætla mætti að væri réttari mælikvarði á líklegar framtíðartekjur A.
Dómur Hæstaréttar
1. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen, Karl Axelsson og Skúli Magnússon og Helgi I. Jónsson fyrrverandi hæstaréttardómari.
2. Áfrýjandi skaut málinu til Hæstaréttar 29. janúar 2026. Hún krefst þess að stefnda verði gert að greiða sér 6.749.726 krónur með 4,5% ársvöxtum frá 5. apríl 2020 til 2. júní 2022, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá þeim degi til greiðsludags, allt að frádreginni innborgun stefnda 7. júní 2022 að fjárhæð 3.215.496 krónur. Þá krefst hún þess að stefnda verði gert að greiða sér málskostnað á öllum dómstigum eins og málið væri ekki gjafsóknarmál.
3. Stefndi krefst þess að hinn áfrýjaði dómur verði staðfestur en til vara að dómkröfur áfrýjanda verði lækkaðar verulega og dráttarvextir reiknaðir frá dómsuppsögu. Í báðum tilvikum krefst stefndi málskostnaðar fyrir Hæstarétti úr hendi áfrýjanda.
Ágreiningsefni
4. Í málinu deila aðilar um uppgjör skaðabóta fyrir varanlega örorku áfrýjanda vegna umferðarslyss sem hún varð fyrir árið 2019. Ágreiningurinn lýtur að því hvort við útreikning bóta skuli meta árslaun sérstaklega samkvæmt 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 eða hvort miða skuli við lágmarkslaun, sbr. 3. mgr. sömu greinar.
5. Með héraðsdómi 23. október 2024 var fallist á að árslaun áfrýjanda yrðu metin sérstaklega og krafa hennar á þeim grundvelli tekin til greina. Í hinum áfrýjaða dómi Landsréttar 13. nóvember 2025 var kröfunni hafnað og stefndi, sem þegar hefur greitt áfrýjanda bætur miðað við lágmarkslaun, sýknaður.
6. Áfrýjunarleyfi var veitt 29. janúar 2026, með ákvörðun Hæstaréttar nr. 2025-159, á þeim grunni að dómur í málinu kynni að hafa verulegt almennt gildi um ákvörðun árslauna við útreikning bóta fyrir varanlega örorku.
Málsatvik
Slysið og afleiðingar þess
7. Að kvöldi 5. október 2019 varð áfrýjandi fyrir umferðarslysi þegar bifreið var ekið aftan á aðra bifreið sem við það hafnaði á bifreið sem áfrýjandi ók. Við höggið tognaði hún á hálsi, brjóstbaki og vinstra axlarsvæði. Þegar áfrýjandi slasaðist var hún 26 ára gömul.
8. Bifreiðin sem olli árekstrinum var tryggð lögboðinni tryggingu hjá stefnda og hefur hann gengist við ábyrgð sinni á tjóni áfrýjanda á þeim grunni.
9. Að beiðni aðila skiluðu læknir og lögmaður álitsgerð 15. apríl 2022 um líkamstjón áfrýjanda vegna slyssins. Hvorki var talið að áfrýjandi hefði orðið fyrir tímabundnu atvinnutjóni né tjóni sem bæta skyldi með þjáningarbótum. Hins vegar var varanlegur miski hennar metinn 6 stig og varanleg örorka 6%. Um mat á varanlegri örorku sagði í álitsgerðinni að líklegt væri að varanlegt líkamstjón sem slysið olli hefði áhrif á vinnugetu áfrýjanda og skerti álags- og úthaldsgetu hennar.
10. Með bréfi 2. maí 2022 krafðist áfrýjandi bóta á grundvelli fyrrgreindrar álitsgerðar um líkamstjón sitt. Stefndi gekk til uppgjörs við hana 7. júní sama ár og innti af hendi greiðslu að fjárhæð 773.010 krónur vegna varanlegs miska og 2.923.978 krónur vegna varanlegrar örorku. Til viðbótar greiddi hann 387.632 krónur í vexti og 357.925 krónur vegna þóknunar til lögmanns að meðtöldum virðisaukaskatti. Við uppgjörið gerði áfrýjandi fyrirvara um viðmiðunarlaun við útreikning bóta fyrir varanlega örorku. Eins og áður greinir lýtur ágreiningur málsins að því atriði.
Náms- og starfsferill áfrýjanda
11. Áfrýjandi var í námi við […] samfellt frá hausti [...] og lauk þaðan stúdentsprófi frá [...]braut vorið 2019. Samhliða hóf hún nám við skólann á tanntæknabraut og lauk því vorið 2020.
12. Til að ljúka tanntæknanámi við skólann þarf að taka 203 einingar, 137 í bóklegum greinum og 66 í verklegum. Samkvæmt tölvubréfi kennslustjóra við skólann 10. febrúar 2025 hafði áfrýjandi lokið 98 einingum þegar hún varð fyrir slysinu haustið 2019. Á þeirri önn lauk hún 12 einingum í bóknámi og 32 í verknámi. Á vorönn kláraði hún 22 einingar í bóknámi og 34 í verknámi. Eftir slysið lauk hún því samtals 100 einingum.
13. Samkvæmt skattframtölum áfrýjanda var hún ekki með launatekjur á árunum 2016 til 2019. Á því tímabili var hún í langtímameðferð vegna fíknisjúkdóms auk þess sem hún fékk meðferð vegna átröskunar sem hún hafði glímt við frá unglingsárum. Eftir að áfrýjandi lauk námi sem tanntæknir vorið 2020 vann hún á því ári í hlutastarfi við greinina. Áfrýjandi starfaði ekki við hana árin 2021 og 2022 og var að mestu leyti utan vinnumarkaðar, meðal annars af þeirri ástæðu að hún varð fyrir alvarlegri líkamsárás og veikindi tóku sig upp. Þá eignaðist hún barn [...]. Með ráðningarsamningi [...] febrúar 2023 var áfrýjandi ráðin til starfa sem tanntæknir hjá B slf. og hefur starfað þar síðan.
Málsástæður
Helstu málsástæður áfrýjanda
14. Áfrýjandi reisir málatilbúnað sinn á því að meta beri árslaun sérstaklega á grundvelli 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga við útreikninga bóta til hennar fyrir varanlega örorku vegna líkamstjóns sem rakið verði til umferðarslyssins 5. október 2019. Í því sambandi heldur hún því fram að fullnægt sé skilyrðum ákvæðisins um óvenjulegar aðstæður og annar mælikvarði sé réttari á líklegar framtíðartekjur hennar.
15. Að því er varðar skilyrði 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga um óvenjulegar aðstæður bendir áfrýjandi á að hún hafi verið í námi þegar slysið varð og árin þar á undan. Einnig hafi hún ekki haft atvinnutekjur síðustu þrjú almanaksár fyrir slysið eins og ráða megi af skattframtölum hennar. Árslaun verði því ekki metin eftir 1. mgr. 7. gr. skaðabótalaga þar sem tekjur hennar á því árabili gefi ekki rétta mynd af líklegum framtíðartekjum.
16. Um það skilyrði 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga að annar mælikvarði sé réttari á líklegar framtíðartekjur tjónþola tekur áfrýjandi fram að hún hafi verið komin langt í tanntæknanámi sínu þegar hún slasaðist. Þannig hafi hún lokið um helmingi námsins og sé aðeins litið til bóklega hlutans hafi hún verið búin að ljúka um 72% hans. Einnig verði að líta til þess að hún hafi lokið náminu aðeins sjö mánuðum eftir að hún varð fyrir slysinu. Aðeins sé þekkt eitt dæmi í 33 ára sögu skólans um að nemandi hafi ekki lokið námi eftir að hafa hafið verklegan hluta námsins. Jafnframt verði að hafa í huga að hún hafi starfað við greinina samfellt frá árinu 2023. Að þessu gættu sé rétt að miða árslaunin við meðaltekjur tanntækna við útreikning bóta til áfrýjanda fyrir varanlega örorku.
17. Áfrýjandi telur að dómur Hæstaréttar 1. nóvember 2023 í máli nr. 17/2023 hafi fordæmisgildi fyrir sakarefni þessa máls eins og réttilega hafi verið lagt til grundvallar í héraðsdómi. Með þeim dómi hafi verið dregið úr kröfum til sönnunar við mat á árslaunum af þeirri ástæðu að viðmið um lágmarkslaun í 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga hafi ekki fylgt þróun launa frá setningu laganna heldur annarri og lægri vísitölu, sbr. 1. mgr. 15. gr. þeirra. Áfrýjandi telur því að þetta viðmið geti ekki talist fullar bætur og með því sé grafið undan þeirri vernd sem aflahæfi hennar njóti samkvæmt eignarréttarákvæði 1. mgr. 72. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Að þessu gættu fari niðurstaða hins áfrýjaða dóms í bága við fordæmi Hæstaréttar.
Helstu málsástæður stefnda
18. Stefndi telur að áfrýjandi eigi aðeins rétt á bótum vegna varanlegrar örorku miðað við lágmarkslaun samkvæmt 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga þar sem tekjur hennar á árabilinu 2016 til 2018 hafi verið lægri en nemi þeim launum. Hann andmælir því að meta skuli árslaun sérstaklega á grundvelli 2. mgr. sömu greinar þar sem ekki sé fullnægt skilyrðum ákvæðisins, eins og þau hafi verið túlkuð í dómaframkvæmd. Í því sambandi bendir stefndi á að áfrýjandi beri sönnunarbyrði fyrir að þeim skilyrðum sé fullnægt.
19. Stefndi vísar til þess að í dómum Hæstaréttar hafi því ítrekað verið slegið föstu að tjónþoli þurfi að vera kominn mjög nærri námslokum á slysdegi til að þau teljist fyrirsjáanleg og árslaun ákveðin í samræmi við það eftir 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Að öðrum kosti beri að miða við lágmarkslaun, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Um þetta bendir stefndi á að Hæstiréttur hafi talið tvo þriðju hluta lokinna eininga fullnægja skilyrðinu um fyrirsjáanleg námslok, sbr. dóm Hæstaréttar 27. janúar 2005 í máli nr. 280/2004. Hins vegar hafi 52,5% hluti náms verið talinn ófullnægjandi, sbr. dóm réttarins 10. mars 2016 í máli nr. 331/2015.
20. Með hliðsjón af þeirri markalínu sem dregin hafi verið í dómaframkvæmd um fyrirsjáanleg námslok á slysdegi telur stefndi að það hafi ekki átt við í tilviki áfrýjanda. Í því sambandi skipti ekki máli þótt hún hafi lokið námi í kjölfar slyssins. Jafnframt breyti engu þótt ólokinn hluti námsins hafi verið verkleg kennsla.
21. Stefndi telur að fyrrgreindur dómur Hæstaréttar í máli nr. 17/2023 hniki ekki þeim ályktunum sem dregnar verði af eldri dómum. Í því máli hafi ungur tjónþoli þegar hafið fulla atvinnuþátttöku á slysdegi og því ekki verið námsmaður. Af þeirri ástæðu hafi málið ekki fordæmisgildi um hvort námslok séu fyrirsjáanleg á slysdegi. Einnig hafi forsendur og niðurstaða dómsins verið atviksbundin og því geti hann ekki haft almennt gildi.
22. Stefndi andmælir því að bætur fyrir varanlega örorku sem miðist við lágmarkslaun eftir 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga feli ekki í sér fullar bætur. Þess utan sé um að ræða nýja málsástæðu áfrýjanda fyrir Hæstarétti sem komist ekki að í málinu enda standi ekki til þess heimild eftir 2. mgr. 187. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.
23. Verði talið að meta skuli árslaun sérstaklega við útreikning bóta fyrir varanlega örorku áfrýjanda, sbr. 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga, telur stefndi að þau launaviðmið sem hún reisir kröfu sína á geti ekki verið réttur mælikvarði um líklegar framtíðartekjur hennar. Þannig hafi hún ekki haft neina starfsreynslu á slysdegi og því verði ekki miðað við meðaltekjur tanntækna.
Niðurstaða
24. Sem fyrr greinir lýtur ágreiningur málsins að því hvort ákveða eigi bætur til áfrýjanda vegna varanlegrar örorku miðað við lágmarkslaun samkvæmt 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga eða hvort meta eigi árslaun sérstaklega, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Stefndi hefur gert upp við áfrýjanda miðað við lágmarkslaun. Í málinu krefst hún frekari bóta sem svara til þess að miðað sé við meðaltekjur tanntækna. Ekki er tölulegur ágreiningur með aðilum.
25. Til að fallast á að árslaun verði metin sérstaklega samkvæmt 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga þarf tveimur skilyrðum að vera fullnægt. Annars vegar að fyrir hendi séu óvenjulegar aðstæður og hins vegar að annar mælikvarði sé réttari á líklegar framtíðartekjur tjónþola en meðalatvinnutekjur hans þrjú síðustu almanaksár fyrir þann dag er tjón varð, sbr. 1. mgr. sömu greinar. Sönnunarbyrði fyrir því að þessum skilyrðum sé fullnægt hvílir á tjónþola, sbr. meðal annars fyrrgreindan dóm Hæstaréttar í máli nr. 17/2023.
26. Þegar áfrýjandi varð fyrir slysinu 5. október 2019 hafði hún lagt stund á nám samfellt frá hausti 2017. Hún hafði ekki verið á vinnumarkaði síðustu þrjú almanaksár fyrir slysið en á því tímabili glímdi hún við veikindi. Að öllu gættu verður lagt til grundvallar að aðstæður hennar hafi verið óvenjulegar í skilningi 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Um þetta má til hliðsjónar benda á dóm Hæstaréttar 10. mars 2005 í máli nr. 386/2004. Í ljósi tekjuleysis áfrýjanda síðustu þrjú ár fyrir slysið kemur að svo búnu til skoðunar hvort við ákvörðun bóta fyrir líkamstjón hennar eigi að miða við þau lágmarkslaun sem um ræðir í 3. mgr. greinarinnar eða hvort fullnægt sé fyrrgreindu skilyrði 2. mgr. um að ætla megi að annar mælikvarði sé réttari um líklegar framtíðartekjur hennar.
27. Með lögum nr. 37/1999 var lögfest sú regla sem nú kemur fram í 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Í greinargerð með frumvarpi til breytingarlaganna sagði að í tilviki námsmanns yrði almennt að líta til mismunar á atvinnutækifærum fyrir og eftir slys. Við þær aðstæður að námslok tengd starfsferli eða starfsréttindum mættu „teljast fyrirsjáanleg“ yrðu þó metnir möguleikar námsmannsins til þess að gegna því starfi sem hann stefndi að með menntun sinni. Þetta ætti við hvort heldur slys ylli því að hann yrði að hætta námi eða það drægi úr starfsgetu í fyrirhuguðu starfi. Tekjuviðmið í slíku tilviki færi þá eftir þeirri sérreglu sem er í 2. mgr. 7. gr. laganna.
28. Í dómaframkvæmd Hæstaréttar hefur því ítrekað verið slegið föstu að þegar tjónþoli er námsmaður þurfi hann að vera kominn það langt í námi að námslok séu fyrirsjáanleg svo að árslaun verði ákveðin sérstaklega á grundvelli 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Að öðrum kosti hefur verið miðað við lágmarkslaun samkvæmt 3. mgr. sömu greinar. Þessi dómaframkvæmd er rakin í 9. lið hins áfrýjaða dóms en af henni verður að meginstefnu ráðið að námsmaður verði að hafa lokið tveimur þriðju hluta af námi sínu til að árslaun verði ákveðin sérstaklega miðað við laun viðkomandi starfsstéttar.
29. Eins og áréttað var í dómum Hæstaréttar 22. maí 1998 í málum nr. 311/1997 og 312/1997, sem birtir eru í dómasafni réttarins það ár á bls. 1976 og 2002, eru í aflahæfi manns fólgin eignarréttindi sem varin eru af 72. gr. stjórnarskrárinnar. Þar kom einnig fram að löggjafinn hefði ótvírætt heimild til að setja reglur um hvernig ákveða skuli bætur vegna líkamstjóns enda væri markmið þeirra reglna að fullar bætur kæmu fyrir. Í fyrirliggjandi máli er ekki til úrlausnar hvort tjónþola yrðu tryggðar fullar bætur ef miðað væri við lágmarkslaun samkvæmt 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga þegar höfð er hliðsjón af launaþróun frá árinu 1999 er lög nr. 37/1999 voru sett. Hér skal þó bent á að hækkun þeirra launa eftir lánskjaravísitölu samkvæmt ákvæði um verðlagsbreytingu í 15. gr. skaðabótalaga hefur verið umtalsvert lægri en almenn hækkun launa á sama tímabili. Í tilviki áfrýjanda námu lágmarkslaun samkvæmt 3. mgr. 7. gr. laganna þannig 3.422.500 krónum en hefðu numið 6.691.000 krónum ef fylgt hefði verið almennri þróun launa frá gildistöku laga nr. 37/1999.
30. Samkvæmt framangreindu er ljóst að aðstæður hafa þróast með þeim hætti frá gildistöku laga nr. 37/1999 að lágmarkslaunaviðmið 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga hefur í vaxandi mæli fjarlægst raunverulegar tekjur launafólks á vinnumarkaði. Þrátt fyrir það markmið skaðabótalaga að tryggja tjónþola fullar bætur og stjórnskipulega vernd þess réttar hefur löggjafinn ekki brugðist við þessari þróun.
31. Í fyrrgreindum dómi Hæstaréttar í máli nr. 17/2023 var því slegið föstu að við þessar aðstæður yrðu minni kröfur gerðar til tjónþola um sönnun þess að annar tekjugrundvöllur en sá sem um ræddi í 3. mgr. 7. gr. laganna teldist réttari við mat á líklegum framtíðartekjum hans. Eins og atvikum er háttað í máli þessu verður með sama hætti lagt til grundvallar að minni kröfur verði gerðar til áfrýjanda um sönnun fyrir réttum mælikvarða á líklegum framtíðartekjum hennar, þar á meðal hvort námslok hennar í tanntæknanámi hafi verið fyrirsjáanleg þannig að miða eigi við líklegar framtíðartekjur fyrir það starf fremur en lágmarkslaun samkvæmt síðastnefndu ákvæði.
32. Eftir að áfrýjandi slasaðist 5. október 2019 lauk hún alls 100 einingum á því skólaári en útskrifaðist sem tanntæknir um vorið 2020 eins og áður greinir. Miðað við það hafði hún lokið 103 einingum fyrir slysið en námið í heild var 203 einingar. Þrátt fyrir þetta er staðhæft í bréfi kennslustjóra við skólann 10. febrúar 2025 að áfrýjandi hefði á slysdegi lokið 98 einingum af náminu og hefur það misræmi ekki verið skýrt. Til þess er á hinn bóginn að líta að haustið 2019 lagði hún stund á 32 einingar í verklegu námi sem lauk án prófs eða annars námsmats eftir því sem fram kom við munnlegan flutning málsins fyrir Hæstarétti. Verður hún því talin að hluta hafa lokið þessum verklega þætti námsins miðað við námsframvindu á slysdegi. Að þessu virtu er óhætt að slá því föstu að áfrýjandi hafi verið búin að ljúka meira en helmingi af námi sínu í tanntækni þegar hún varð fyrir líkamstjóninu.
33. Við mat á því hvort áfrýjandi hafi verið komin svo langt í námi að námslok hafi verið fyrirsjáanleg er þess einnig að gæta að hún lagði stund á tveggja ára nám sem var verklegt að hluta. Fyrir slysið hafði framvinda námsins verið í samræmi við skipulag þess og það sama átti við eftir að hún varð fyrir slysinu. Lauk hún þannig námi sínu sjö mánuðum eftir slysið og hefur starfað sem tanntæknir samfellt frá febrúar 2023. Benda atvik bæði fyrir og eftir slysið þannig ekki til annars en að á slysdegi myndi hún ljúka námi sínu og hefja störf á vinnumarkaði sem tanntæknir.
34. Samkvæmt framansögðu hafði áfrýjandi lokið meira en helmingi náms á slysdegi. Þegar litið er til eðlis námsins, námsframvindu fyrir slysið og atvika í kjölfar þess verður hún að öllu virtu talin hafa leitt nægilega í ljós að námslok hafi verið fyrirsjáanleg þannig að árslaun hennar verði ákveðin sérstaklega á grundvelli 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga.
35. Áfrýjandi reisir kröfu sína um bætur fyrir varanlega örorku á árslaunum sem taka mið af meðallaunum tanntækna í júní 2018 samkvæmt kjarakönnun Félags tanntækna og aðstoðarfólks tannlækna. Þau meðallaun eru uppreiknuð miðað við launavísitölu til stöðugleikatímapunkts 5. apríl 2020. Við útreikning árslauna til ákvörðunar bóta fyrir líkamstjón verður að öðru jöfnu ekki stuðst við mælikvarða sem ráðinn er af kjarakönnun stéttarfélags meðal félagsmanna sinna, sbr. dóm Hæstaréttar 28. apríl 2016 í máli nr. 454/2015. Eins og rakið er í héraðsdómi rúmast grundvöllur kröfu áfrýjanda hins vegar innan þeirra heildarlauna sem tanntæknar höfðu að meðaltali á mánuði árið 2018 samkvæmt gögnum frá Hagstofu Íslands. Stefndi hefur ekki bent á annað viðmið sem ætla má að sé réttari mælikvarði á líklegar framtíðartekjur áfrýjanda. Að þessu virtu verður krafa hennar tekin til greina en nánari útreikningur kröfunnar er ágreiningslaus eins og áður greinir. Jafnframt verður fallist á vaxtakröfu áfrýjanda.
36. Um málskostnað og gjafsóknarkostnað fyrir Hæstarétti fer eins og í dómsorði greinir.
Dómsorð:
Stefndi, Vörður tryggingar hf., greiði áfrýjanda, A, 6.749.726 krónur með 4,5% ársvöxtum frá 5. apríl 2020 til 2. júní 2022, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá þeim degi til greiðsludags, að frádreginni innborgun stefnda 7. júní 2022 að fjárhæð 3.215.496 krónur.
Stefndi greiði samtals 3.450.000 krónur í málskostnað á öllum dómstigum sem renni í ríkissjóð.
Ákvæði hins áfrýjaða dóms um gjafsóknarkostnað skulu vera óröskuð.
Allur gjafsóknarkostnaður áfrýjanda fyrir Hæstarétti greiðist úr ríkissjóði, þar með talin málflutningsþóknun lögmanns hennar, Helga Birgissonar, 1.000.000 króna.
Sératkvæði Helga I. Jónssonar og Karls Axelssonar
1. Við gerum ekki athugasemdir við lýsingu meirihluta dómenda á málsatvikum, málsástæðum og löggjöf.
2. Áfrýjandi var 26 ára nemandi í tanntækni er hún lenti 5. október 2019 í umferðarslysi. Bótaskylda stefnda er óumdeild og lýtur ágreiningur málsaðila að því hvort beita eigi 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 eða 2. mgr. 7. gr. sömu laga, sbr. lög nr. 37/1999, við uppgjör bóta vegna varanlegrar örorku áfrýjanda.
3. Til þess að sérreglu 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga verði beitt þurfa tvö skilyrði að vera uppfyllt svo að árslaun verði metin sérstaklega. Þurfa annars vegar óvenjulegar aðstæður að vera fyrir hendi og hins vegar að ætla megi að annar mælikvarði en viðmið 1. mgr. greinarinnar sé réttari á líklegar framtíðartekjur tjónþola. Bæði skilyrðin þurfa að vera uppfyllt og hvílir sönnunarbyrði um það á tjónþola, sbr. meðal annars dóma Hæstaréttar 1. nóvember 2023 í máli nr. 17/2023 og 22. febrúar 2018 í málum nr. 70/2017 og 71/2017.
4. Í dómaframkvæmd Hæstaréttar hefur ráðið úrslitum um hvort uppfyllt séu fyrrgreind skilyrði 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga þegar námsmenn eiga í hlut að þeir séu komnir það langt í námi að námslok séu fyrirsjáanleg og er þar ekki skilið á milli bóklegs og verklegs náms, ef því er að skipta, heldur er námið metið heildstætt, sbr. dóma réttarins 1. október 2009 í máli nr. 20/2009 og 10. mars 2016 í máli nr. 331/2015.
5. Svo sem nánar er rakið í atkvæði meirihlutans er nám í tanntækni í heild 203 einingar. Í tölvubréfi kennslustjóra við skólann 10. febrúar 2025, sem lagt var fram undir rekstri málsins fyrir Landsrétti, kemur fram að áfrýjandi hafði lokið „nákvæmlega“ 98 einingum af náminu á slysdegi. Hvað sem líður ályktunum annars efnis í málatilbúnaði stefnda hefur þessari afdráttarlausu yfirlýsingu skólans um námsframvindu ekki verið hnekkt en fyrir öndverðri niðurstöðu ber áfrýjandi sönnunarbyrði. Verður því að miða við að áfrýjandi hafi lokið 48% náms til tanntæknis á slysdegi.
6. Um það álitaefni hvort nám hafi verið komið það langt á veg að námslok hafi verið talin fyrirsjáanleg á slysdegi skal getið þeirra fjögurra dóma Hæstaréttar sem mesta þýðingu hafa. Í dómi réttarins 16. október 2003 í máli nr. 110/2003 hafði tjónþoli lokið 71% náms á slysdegi og í dómi réttarins 27. janúar 2005 í máli nr. 280/2004 hafði tjónþoli lokið 2/3 hlutum náms á þeim degi. Í báðum tilvikum voru tjónþolar taldir hafa verið komnir það langt á veg með nám sitt að þeim voru dæmdar bætur á grundvelli 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga.
7. Á hinn bóginn var það niðurstaða Hæstaréttar í dómi 1. október 2009 í máli nr. 20/2009 að námslok tjónþola, sem á slysdegi hafði lokið 42% heildarnáms, hefðu ekki verið fyrirsjáanleg og í dómi Hæstaréttar 10. mars 2016 í máli nr. 331/2015 var talið að ekki nægði að tjónþoli hefði lokið 52,5% náms síns á þeim degi. Fékk þar engu breytt þótt viðkomandi háskóli teldi 90% líkur á því að nemendur í hjúkrunarfræði við skólann sem lokið höfðu svonefndu „samkeppnisprófi“ eins og tjónþoli hafði gert lykju náminu. Í öðrum dómum réttarins þar sem reynt hefur á hvort námslok tjónþola hafi verið fyrirsjáanleg hafa þeir verið skemmra á veg komnir í námi en um ræðir í síðastgreindu máli og í þeim tilvikum farið um bótauppgjör eftir meginreglu 3. mgr. 7. skaðabótalaga. Eftir að dómur í máli Hæstaréttar nr. 331/2015 gekk hafa mál þar sem reynt hefur á ákvæði 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga vegna námsmanna ekki komið til kasta réttarins.
8. Sem fyrr greinir hefur í dómum Hæstaréttar verið gengið lengst í því að telja námsmann kominn það langt í námi sínu að námslok séu fyrirsjáanleg, þannig að uppfyllt séu skilyrði 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga, með dómi réttarins í máli nr. 280/2004 en þar háttaði sem áður segir svo til að tjónþoli hafði lokið 2/3 hlutum námsins. Eins og áður segir verður miðað við að á slysdegi hafi áfrýjandi lokið um 48% náms síns. Hún var því skemmra á veg komin en tjónþoli í máli réttarins nr. 331/2015 sem hafði lokið 52,5% náms á slysdegi, en var ekki talinn uppfylla það skilyrði að námslok væru fyrirsjáanleg.
9. Af áfrýjanda hálfu sem og í niðurstöðum héraðsdóms hefur rík áhersla verið lögð á það að með dómi Hæstaréttar 1. nóvember 2023 í máli nr. 17/2023 hafi það fordæmi verið sett að ekki verði lengur gerðar þær fortakslausu kröfur til námsmanna að þeir sýni fram á að námslok þeirra séu fyrirsjáanleg á slysdegi miðað við þau viðmið sem dómstólar hafa mótað. Á það verður ekki fallist heldur þvert á móti tekið undir þá ályktun í hinum áfrýjaða dómi að ekki verði dregnar svo afdráttarlausar ályktanir af umræddum dómi. Í því máli hagaði þannig til að viðkomandi tjónþoli var ekki námsmaður en að þeirri niðurstöðu fenginni kom því næst fram að meta yrði hvort annar mælikvarði væri réttari á líklegar framtíðartekjur tjónþola en sá sem greinir í 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Um þann afmarkaða þátt málsins ályktar Hæstiréttur síðan á þá leið að sú þróun sem orðið hafi á framreiknuðu lágmarkslaunaviðmiði 3. mgr. 7. gr. laganna með lánskjaravísitölu, sbr. 15. gr. þeirra, leiði til þess að minni kröfur verði gerðar til tjónþola um sönnun þess að annar tekjugrundvöllur en sá sem um ræðir í 3. mgr. 7. gr. teljist réttari við mat á líklegum framtíðartekjum. Engra ályktana sér stað í dóminum þess efnis að áform standi til þess að hverfa frá fyrrgreindri dómvenju um mat á launaviðmiði við ákvörðun og útreikning bóta til námsmanna.
10. Í atkvæði meirihlutans í máli þessu kemur réttilega fram að aðstæður hafi þróast með þeim hætti frá gildistöku laga nr. 37/1999 að lágmarkslaunaviðmið 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga hafi í vaxandi mæli fjarlægst raunverulegar tekjur launafólks á vinnumarkaði og að við þeirri þróun hafi ekki verið brugðist á vettvangi löggjafans. Í málinu er þó ekki á því byggt af hálfu áfrýjanda að með umræddri tilhögun sé brotinn réttur á henni vegna eignarréttarákvæðis 72. gr. stjórnarskrár og þá með þeim hætti að skert aflahæfi hennar sé ekki réttilega bætt. Hvað sem líður þeim vafa sem uppi kann að vera um það hvort tilvitnað launaviðmið tryggi tjónþolum fullar bætur er það verkefni löggjafans að standa að þeim samræmdu breytingum á skaðabótalögum sem slíkt kann að útheimta.
11. Að þessu virtu og samkvæmt framangreindri áralangri dómaframkvæmd Hæstaréttar um túlkun á því hvort skilyrðum 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga sé fullnægt þegar um námsmenn er að ræða teljum við að áfrýjandi hafi ekki sýnt fram á að hún hafi verið komin það langt í námi að námslok hennar hafi verið fyrirsjáanleg á slysdegi í skilningi ákvæðisins. Með vísan til þess og að öðru leyti með skírskotun til forsendna hins áfrýjaða dóms teljum við að staðfesta beri hann, þar með talið ákvæði hans um málskostnað og gjafsóknarkostnað. Þá verði málskostnaður milli aðila felldur niður fyrir Hæstarétti og gjafsóknarkostnaður áfrýjanda greiddur úr ríkissjóði.