Fara beint í efnið

Hæstiréttur

Mál nr. 40/2026

Þriðjudagurinn 25. ágúst 2026

A (sjálfur)

gegn

íslenska ríkinu (enginn)

Lykilorð

Kærumál. Hæfi dómara. Vanhæfi

Reifun

Staðfestur var úrskurður Landsréttar þar sem hafnað var kröfu A um að allir dómarar Landsréttar vikju sæti.

Dómur Hæstaréttar

1. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen, Karl Axelsson, Sigurður Tómas Magnússon og Skúli Magnússon.

2. Sóknaraðili skaut málinu til Hæstaréttar með kæru 2. júlí 2026 sem barst réttinum 8. sama mánaðar en kærumálsgögn bárust degi síðar. Kærður er úrskurður Landsréttar 29. júní sama ár þar sem kröfu sóknaraðila um að allir dómarar Landsréttar víki sæti í málinu var hafnað. Kæruheimild er í b-lið 1. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

3. Sóknaraðili krefst þess að hinum kærða úrskurði verði hrundið og dómurum Landsréttar gert að víkja sæti í málinu.

4. Varnaraðili hefur ekki látið málið til sín taka fyrir Hæstarétti.

5. Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

6. Kærumálskostnaður fyrir Hæstarétti verður ekki dæmdur.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.