Hæstiréttur
Mál nr. 12/2026
Miðvikudagurinn 11. nóvember 2026
Guðrún Rósalind Jóhannsdóttir, Hjördís Margrét Bjarnason, Jóhann Jóhannsson, Sigrún Jónatansdóttir og Sóley Enid Jóhannsdóttir (Haukur Örn Birgisson lögmaður)
gegn
Málamiðlun ehf. (Unnar Steinn Bjarndal lögmaður), Nesvöllum íbúðum ehf., P190 ehf. (Reimar Pétursson lögmaður), Reykjanesbæ, Ásdísi Kristinsdóttur, Baldri Baldurssyni, Finnboga G. Kjartanssyni, Gígju Friðgeirsdóttur, Guðgeiri Smára Árnasyni, Guðjóni Skúlasyni, Guðlaugu Málfríði Pálsdóttur, Guðmundi Óskarssyni, Guðrúnu Greipsdóttur, Gylfa Pálssyni, Herði Óskarssyni, Hrafnhildi Jónsdóttur, Ingva Jóni Kjartanssyni, Jóhönnu Guðrúnu Finnsdóttur, Júlíusi Baldurssyni, Kjartani Má Kjartanssyni, Magnúsi J. Kjartanssyni, Margréti Óskarsdóttur, Maríu Baldursdóttur, Maríu Ingibjörgu Valdimarsdóttur, Ómari Baldurssyni, Sif Jónsdóttur, Sigrúnu Kjartansdóttur, Sigrúnu Ólafsdóttur, Sigurveigu Unu Jónsdóttur, Skúla Skúlasyni, Stefáni Guðmundssyni, Unni Óskarsdóttur, Unni Pálsdóttur, Viktori Borgari Kjartanssyni, Þórði Óskarssyni, Þóri Valgeiri Baldurssyni, Þresti Árnasyni, dánarbúi Agnesar Sæmundsdóttur, dánarbúi Jóns Ísleifssonar, dánarbúi Kristjönu Sigríðar Pálsdóttur, dánarbúi Oddrúnar Halldórsdóttur, dánarbúi Pálínu Ágústsdóttur, dánarbúi Reynis Gunnþórssonar, dánarbúi Sigríðar Höllu Einarsdóttur, dánarbúi Sigurgeirs Þorvaldssonar, dánarbúi Soffíu Petreu Gunnlaugsdóttur (Unnar Steinn Bjarndal lögmaður), Andrési I. Guðmundssyni, Auði Svanborgu Óskarsdóttur, Benedikt Á. Guðmundssyni, Dagbjarti Helga Guðmundssyni, Núma Jónssyni og Skúla Hafþóri Hermannssyni (enginn)
Lykilorð
Rétthæfi. Dánarbú. Forkaupsréttur. Einkaskipti. Hlutafé
Reifun
Í málinu var deilt um hvort áfrýjendur ættu forkaupsrétt að hlutum í N ehf. vegna sölu þeirra til P ehf. Ágreiningur aðila laut í fyrsta lagi að því hvort áfrýjendum, sem voru erfingjar J, hefði verið unnt að neyta forkaupsréttar að hlutunum fyrir hönd dánarbús J. Í öðru lagi var deilt um hvort forkaupsréttur hefði verið orðinn virkur á þeim tíma sem máli skipti. Í dómi Hæstaréttar kom fram að rétthæfi manns ljúki er hann deyr og dánarbú hans taki þá við öllum fjárhagslegum réttindum sem hann átti eða naut á því tímamarki, sbr. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl. Eftir að skiptum dánarbús væri lokið nyti það ekki lengur hæfis til að bera og baka sér skyldur að lögum. Í málinu lá fyrir að einkaskiptum á dánarbúi J, sem skráð var fyrir hlutum í N ehf. og naut forkaupsréttar á grundvelli samþykkta þess, lauk með einkaskiptagerð árið 2014. Talið var að með því hefði dánarbúið hætt að vera til sem sérstakur lögaðili með hæfi til að eiga réttindi og bera skyldur að lögum. Að sama skapi hefði þá lokið forræði erfingja á hagsmunum búsins og hvers kyns umboði sem þeir kynnu að hafa falið tilteknum manni til að koma fram af hálfu þess. Þegar áfrýjendur lýstu því yfir í nafni dánarbús J að þau hygðust neyta forkaupsréttar í maí 2022 hefði þar með enginn verið bær til þess að koma fram fyrir hönd dánarbúsins og baka því nýjar skyldur. Var hinn áfrýjaði dómur því staðfestur um sýknu stefndu.
Dómur Hæstaréttar
1. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Björg Thorarensen, Karl Axelsson, Sigurður Tómas Magnússon og Skúli Magnússon.
2. Áfrýjendur skutu málinu til Hæstaréttar 23. febrúar 2026. Þau krefjast þess að viðurkennt verði með dómi að þau eigi forkaupsrétt að 54.667.745 hlutum í stefnda Nesvöllum íbúðum ehf. á grundvelli samþykkts kauptilboðs stefnda P190 ehf. í hlutafé stefnda Nesvalla íbúða ehf., 29. mars 2022, sem samþykkt var af hálfu stefnda Málamiðlunar ehf. fyrir hönd 90,72% hluthafa í félaginu 30. apríl 2022. Þá krefjast áfrýjendur málskostnaðar á öllum dómstigum úr hendi stefndu óskipt.
3. Stefndu, Málamiðlun ehf., Nesvellir íbúðir ehf., P190 ehf., Reykjanesbær, Ásdís Kristinsdóttir, Baldur Baldursson, Finnbogi G. Kjartansson, Gígja Friðgeirsdóttir, Guðgeir Smári Árnason, Guðjón Skúlason, Guðlaug Málfríður Pálsdóttir, Guðmundur Óskarsson, Guðrún Greipsdóttir, Gylfi Pálsson, Hörður Óskarsson, Hrafnhildur Jónsdóttir, Ingvi Jón Kjartansson, Jóhanna Guðrún Finnsdóttir, Júlíus Baldursson, Kjartan Már Kjartansson, Magnús J. Kjartansson, Margrét Óskarsdóttir, María Baldursdóttir, María Ingibjörg Valdimarsdóttir, Ómar Baldursson, Sif Jónsdóttir, Sigrún Kjartansdóttir, Sigrún Ólafsdóttir, Sigurveig Una Jónsdóttir, Skúli Skúlason, Stefán Guðmundsson, Unnur Óskarsdóttir, Unnur Pálsdóttir, Viktor Borgar Kjartansson, Þórður Óskarsson, Þórir Valgeir Baldursson, Þröstur Árnason, dánarbú Agnesar Sæmundsdóttur, dánarbú Jóns Ísleifssonar, dánarbú Kristjönu Sigríðar Pálsdóttur, dánarbú Oddrúnar Halldórsdóttur, dánarbú Pálínu Ágústsdóttur, dánarbú Reynis Gunnþórssonar, dánarbú Sigríðar Höllu Einarsdóttur, dánarbú Sigurgeirs Þorvaldssonar og dánarbú Soffíu Petreu Gunnlaugsdóttur krefjast staðfestingar hins áfrýjaða dóms auk málskostnaðar fyrir Hæstarétti.
4. Stefndu Andrés I. Guðmundsson, Auður Svanborg Óskarsdóttir, Benedikt Á. Guðmundsson, Dagbjartur Helgi Guðmundsson, Númi Jónsson og Skúli Hafþór Hermannsson hafa ekki látið málið til sín taka.
Ágreiningsefni
5. Í málinu er um það deilt hvort áfrýjendur eigi forkaupsrétt að 54.667.745 hlutum í stefnda Nesvöllum íbúðum ehf., alls 90,72% hluta í félaginu, á grundvelli skjals sem ber yfirskriftina „Samkomulag um helstu skilmála kaupsamnings vegna kaupa P190 ehf. á hlutafé Nesvalla íbúða ehf. („félagsins“)“.
6. Ágreiningur aðila lýtur í fyrsta lagi að því hvort áfrýjendum hafi verið unnt að neyta forkaupsréttar að hlutum í félaginu fyrir hönd dánarbús Jóhanns Péturssonar en þau eru erfingjar hans. Ræður þar mestu að skiptum dánarbúsins, sem skráð var fyrir hlutum í félaginu og naut forkaupsréttar á grundvelli samþykkta þess, var lokið þegar því var lýst yfir af þess hálfu að hans yrði neytt. Í annan stað er deilt um hvort forkaupsrétturinn hafi verið virkur á þeim tíma sem máli skiptir. Að þessu frágengnu telja stefndu Nesvellir íbúðir ehf. og Málamiðlun ehf. að kröfu áfrýjenda sé ranglega beint að þeim.
7. Með héraðsdómi 30. apríl 2024 voru stefndu sýknuð af kröfu áfrýjenda með vísan til þess að ekki hefði verið kominn á bindandi kaupsamningur sem virkjað hefði forkaupsrétt samkvæmt ákvæði í samþykktum stefnda Nesvalla íbúða ehf. Með dómi Landsréttar 6. nóvember 2025 var niðurstaða héraðsdóms um sýknu staðfest en á grundvelli aðildarskorts til sóknar, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.
8. Áfrýjunarleyfi var veitt 23. febrúar 2026, með ákvörðun réttarins nr. 2025-172, á þeim grunni að úrslit málsins kynnu að hafa verulegt almennt gildi.
Málsatvik
9. Stefndi Nesvellir íbúðir ehf. á rætur sínar að rekja til byggingar húsnæðis með svonefndu búseturéttarfyrirkomulagi fyrir einstaklinga 55 ára og eldri í Reykjanesbæ á árunum 2005 til 2007. Eftir fjárhagslega erfiðleika á fyrstu árum félagsins var kröfum búseturéttarhafa, alls 29 talsins, vegna búseturéttargjalda sem þeir höfðu greitt, breytt í hlutafé í árslok 2015. Samkvæmt samþykktum félagsins skyldi stjórn fyrir hönd þess eiga forkaupsrétt að fölum hlutum en að því frágengnu nytu hluthafar sama réttar í hlutfalli við hlutafjáreign sína.
10. Jóhann Pétursson var meðal búseturéttarhafa í stefnda Nesvöllum íbúðum ehf. en hann lést 19. september 2013. Erfingjum hans var veitt leyfi til einkaskipta 13. nóvember sama ár og lauk þeim 6. desember það ár. Einkaskipti voru endurupptekin 2. apríl 2014 og lokið samdægurs. Við hvoruga einkaskiptagerð kom búseturéttur Jóhanns til skipta. Þegar kröfum vegna búseturéttargjalda var breytt í hlutafé í árslok 2015 var dánarbú hans skráð fyrir 2,444% hluta í félaginu.
11. Í byrjun árs 2022 hafði fjárhagur stefnda Nesvalla íbúða ehf. breyst til hins betra. Aflaði stjórn félagsins mats á virði eigna þess sem var talið á bilinu 2,8 til 3 milljarðar króna og gekk til viðræðna við stefnda P190 ehf. um mögulega sölu á hlutafé félagsins. Í kjölfar þess var útbúið skjal með heitinu „Samkomulag um helstu skilmála kaupsamnings vegna kaupa P190 ehf. á hlutafé Nesvalla íbúða ehf. („félagsins“)“. Undir það munu fyrirsvarsmenn stefndu P190 ehf., Málamiðlunar ehf. og Nesvalla íbúða ehf. hafa ritað rafrænt 29. og 30. mars 2022.
12. Samkvæmt upphafsorðum skjalsins gera stefndi P190 ehf. (kaupandi) og stefndi Málamiðlun ehf. fyrir hönd hluthafa félagsins (seljendur) með sér samkomulag sem „útlistar helstu skilmála og skilyrði fyrir viðskiptum milli kaupanda og seljenda með hlutabréf í félaginu“. Tekið er fram að þeir skilmálar og skilyrði sem þar komi fram séu ekki tæmandi og gengið út frá því að efnisatriði um kaup á hlutafé verði nánar útfærð í endanlegum kaupsamningi ef viðskiptin gangi eftir. Einnig kemur fram að það sé forsenda kaupanda að hluthafar sem ráði yfir að lágmarki 90% af útgefnu hlutafé félagsins undirgangist samkomulagið og endanlegan kaupsamning, svo og að stjórn félagsins og hluthafar falli frá forkaupsrétti vegna fyrirhugaðra viðskipta. Kaupverð hins selda, að meðtöldum áhvílandi skuldum, er í skjalinu tiltekið þrír milljarðar króna. Þá kemur fram að endanlegt kaupverð hlutabréfa eigi að ráðast af nánar tilgreindum þáttum, þar á meðal stöðu áhvílandi lána hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Aðdraganda og efni skjalsins er nánar lýst í hinum áfrýjaða dómi og héraðsdómi.
13. Í kjölfar undirritunar skjalsins var boðað til hluthafafundar í stefnda Nesvöllum íbúðum ehf. og hann haldinn 8. apríl 2022. Þar var samkomulagið kynnt auk þess sem fram kom að stjórn félagsins myndi ekki nýta forkaupsrétt.
14. Með tölvubréfi framkvæmdastjóra félagsins til hluthafa 11. apríl 2022 var áréttað að ætlunin væri að leita viðbragða þeirra við framkomnu tilboði en það væri sem fyrr segði háð því skilyrði að 90% hluthafa samþykktu að selja hlut sinn. Boðið verð á hvern hlut væri á bilinu 8,5 til 9,1 króna fyrir hvern einnar krónu hlut og réðist endanlegt kaupverð af stöðu langtímalána félagsins.
15. Stjórn félagsins sendi 30. apríl 2022 enn tölvubréf til hluthafa þar sem fram kom að 90% þeirra væru búnir að samþykkja að taka tilboði stefnda P190 ehf. frá 29. mars þess árs. Kauptilboðið hefði þannig verið samþykkt. Í sama bréfi var boðað til aðalfundar félagsins sem fram skyldi fara 9. maí sama ár. Í meðfylgjandi dagskrá aðalfundarins var að finna tillögu um að forkaupsréttur hluthafa yrði felldur brott.
16. Með tölvubréfi 9. maí 2022 til stjórnar stefnda Nesvalla íbúða ehf., eða sama dag og aðalfundurinn fór fram, var því lýst yfir af hálfu nafngreinds lögmanns að umbjóðandi hans, „db. Jóhanns Péturssonar“, hefði ákveðið að nýta sér forkaupsrétt sinn í stefnda Nesvöllum íbúðum ehf. Öllum áformum um að breyta samþykktum félagsins afturvirkt var mótmælt.
17. Aðalfundur félagsins fór fram 9. maí 2022 samkvæmt því sem áður hafði verið ákveðið. Í fundargerð kom fram að fulltrúi dánarbús Jóhanns Péturssonar hefði þar mótmælt fyrirhuguðu afnámi forkaupsréttar hluthafa og áréttað að dánarbúið hefði lýst yfir nýtingu hans vegna framkomins tilboðs stefnda P190 ehf. Af hálfu framkvæmdastjóra stefnda Nesvalla íbúða ehf. var af því tilefni tekið fram að ekkert endanlegt kauptilboð lægi enn fyrir og myndi ekki gera það fyrr en öllum fyrirvörum hefði verið aflétt. Einn þeirra væri að ákvæði um forkaupsrétt hluthafa yrði fellt brott. Að svo búnu var tillaga um breytingu á samþykktum félagsins þar að lútandi borin upp og samþykkt.
18. Með samhljóða bréfum lögmanns, fyrir hönd dánarbús Jóhanns Péturssonar, til hluthafa 13. maí 2022 var tilkynnt að dánarbúið hygðist nýta forkaupsrétt sinn og ganga inn í hið samþykkta tilboð í stað stefnda P190 ehf.
19. Einkaskipti á dánarbúi Jóhanns Péturssonar voru endurupptekin 7. júní 2022 og þeim lokið samdægurs. Með þeim urðu áfrýjendur í jöfnum hlutföllum eigendur að hlutafé dánarbúsins í stefnda Nesvöllum íbúðum ehf. að nafnverði 1.472.856 krónur eða 2,444% heildarhlutafjár.
20. Á grundvelli tilboðs sem samþykkt var 1. júní 2022 seldu eigendur 90,72% hlutafjár í stefnda Nesvöllum íbúðum ehf. hluti sína til stefnda P190 ehf. og var gengið frá kaupunum með kaupsamningi 24. júní 2022. Nam kaupverðið 7,08 krónum á hvern hlut.
Málsástæður
Helstu málsástæður áfrýjenda
21. Áfrýjendur byggja kröfu sína á því að komist hafi á bindandi samningur milli stefnda P190 ehf. og stefndu hluthafanna þegar samþykki þeirra við tilboði félagsins 29. mars 2022 lá fyrir. Þá hafi verið uppfyllt skilyrði tilboðsins um að hluthafar sem réðu yfir meira en 90% af hlutafé stefnda Nesvalla íbúða ehf. væru búnir að samþykkja það og því hefði það orðið bindandi. Heiti eða búningur skjalsins breyti hér engu. Í því sambandi er vísað til þess að allur aðdragandi ráðstöfunarinnar og kynning fyrir hluthöfum beri vitni um að fyrir hendi hafi verið bindandi kauptilboð stefnda P190 ehf.
22. Áfrýjendur telja að aðrir fyrirvarar í umræddu kauptilboði en þeir sem sneru að samþykki eigenda meira en 90% hlutafjár hafi ekki þýðingu í málinu enda þurfi forkaupsréttarhafar ekki að lúta sömu fyrirvörum og kaupandi. Af þeim sökum geti stefndu ekki borið fyrir sig að kauptilboðið hafi ekki orðið bindandi á grundvelli slíkra fyrirvara, svo sem að það hafi verið háð því að fallið yrði frá forkaupsrétti af hálfu stjórnar og hluthafa. Ekki sé tækt að klæða kauptilboð í slíkan búning í því skyni að sniðganga forkaupsrétt. Af sömu ástæðu sé þýðingarlaust í málinu að nýtt tilboð hafi verið útbúið og síðan samþykkt 1. júní 2022.
23. Áfrýjendur vísa til þess að þau hafi notið forkaupsréttar samkvæmt grein 2.4 í samþykktum stefnda Nesvalla íbúða ehf. Hann hafi orðið virkur þegar eigendur meira en 90% hlutafjár höfðu samþykkt tilboðið og það varð skuldbindandi. Því til stuðnings er vísað til þess að í tilboðinu hafi verið tiltekinn ákveðinn „samþykktardagur“. Þá hafi við kynningu þess á hluthafafundi 8. apríl 2022 komið fram að stjórn stefnda Nesvalla íbúða ehf. hygðist ekki nýta forkaupsrétt sinn og á þeim tíma hafi legið fyrir að öðrum hluthöfum væri heimilt að nýta rétt sinn að þessu leyti. Áfrýjendur hafi verið einu hluthafarnir sem tilkynntu að þau hygðust nýta forkaupsrétt á grundvelli greinar 2.4 í samþykktum félagsins, sbr. 14. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög.
24. Áfrýjendur vísa til þess að þau hafi, sem forkaupsréttarhafar, tilkynnt með fullnægjandi hætti um nýtingu forkaupsréttar. Þannig hafi þau tilkynnt stjórn stefnda Nesvalla íbúða ehf. það með tölvubréfi 9. maí 2022 sem einnig hafi legið fyrir á hluthafafundi félagsins sama dag. Einstökum hluthöfum hafi verið tilkynnt 13. sama mánaðar að áfrýjendur hygðust nýta forkaupsrétt sinn að hlutum þeirra hluthafa sem samþykkt höfðu tilboðið.
25. Áfrýjendur líta svo á að þau hafi haft fullan og óskoraðan rétt til að ráðstafa eignum dánarbús Jóhanns Péturssonar sem ekki höfðu þá þegar komið til skipta. Þau mótmæla því að sú heimild hafi einungis getað komið til með því að sótt væri um nýtt leyfi til einkaskipta. Við þessar aðstæður hafi verið ljóst að skiptum væri ekki endanlega lokið á dánarbúinu í skilningi 3. mgr. 2. gr. laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl. Samkvæmt því ákvæði hafi búið því notið hæfis til að eiga og öðlast réttindi og til að bera og baka sér skyldur. Þá vísa þau til 1. mgr. 97. gr. laganna um að áfrýjendur hafi borið sameiginlega ábyrgð á skuldbindingum búsins og þar með einnig á nýjum skuldbindingum sem stofnað væri til fyrir þess hönd. Engin rök standi til þess að túlka lög á þá leið að dánarbú geti ekki neytt tiltekinna réttinda sem fylgja eign þess.
26. Á það er einnig bent að allir aðilar málsins hafi lagt til grundvallar þennan skilning á stöðu dánarbúa þegar atvik gerðust. Þannig hafi erfingjar ýmissa dánarbúa athugasemdalaust samþykkt fyrrgreint kauptilboð þótt skiptum þeirra væri lokið. Einkaskipti í þessum búum hafi fyrst verið endurupptekin þegar kom að því að framselja hluti í stefnda Nesvöllum íbúðum ehf. en það hafi ekki verið gert fyrr en í júní 2022. Með sama hætti hafi umboðsmenn þessara dánarbúa greitt atkvæði um breytingu á samþykktum félagsins án athugasemda.
Helstu málsástæður stefndu
27. Stefndu vísa til þess að þegar því var lýst yfir að forkaupsréttur yrði nýttur 9. maí 2022 hafi einkaskiptum eftir Jóhann Pétursson verið endanlega lokið í skilningi 3. mgr. 2. gr. laga nr. 20/1991 og dánarbú hans því ekki verið til sem lögpersóna. Áfrýjendum hafi verið nauðsyn að sækja um leyfi til einkaskipta á ný samkvæmt 2. mgr. 95. gr. sömu laga til að gera ráðstafanir í nafni búsins og þá að fengnum yfirlýsingum þeirra sem komu í stað tveggja látinna erfingja Jóhanns um sameiginlega ábyrgð á skuldbindingum þess. Þetta hafi ekki verið gert og í raun hafi allt verið á huldu um afstöðu erfingja Jóhanns til þeirra aðgerða sem ráðist var í af hálfu dánarbúsins. Yfirlýsingar um nýtingu forkaupsréttar af hálfu búsins hafi því verið markleysa.
28. Því er mótmælt sem röngu og þýðingarlausu að áfrýjendur hafi verið í góðri trú um heimildir sínar. Er í því sambandi bent á að á fundinum 9. maí 2022 hafi verið áréttað að nauðsynlegt væri að hafa samband við sýslumann til þess að taka upp skipti á búum þegar svo háttaði til að hlutir væru skráðir á nöfn dánarbúa sem búið væri að ljúka skiptum á. Áfrýjendum hafi því mátt vera vel ljóst að þau gætu ekki stofnað til verulegra fjárhagslegra skuldbindinga með yfirlýsingu lögmanns „fyrir hönd dánarbús“.
29. Að þessu frágengnu telja stefndu að forkaupsréttur hafi ekki orðið virkur á grundvelli samkomulagsins 29. mars 2022. Um hafi verið að ræða viljayfirlýsingu sem háð var ýmsum fyrirvörum og skilyrðum. Þótt tilskilinn fjöldi hluthafa hafi verið búinn að lýsa yfir vilja til að ganga til samninga við stefnda P190 ehf. 30. apríl það ár hafi það ekki falið í sér að bindandi samningur væri kominn á. Verði þetta meðal annars ráðið af því að á þeim tíma hafi endanlegt verð hluta ekki legið fyrir en einnig hafi átt eftir að semja um aðra skilmála. Þannig hafi verið ljóst af samkomulaginu að síðara „samþykkt formlegt kauptilboð“ hafi verið áskilið til þess að kaupin teldust bindandi. Þá hafi ekki allir þeir hluthafar sem lýstu yfir vilja sínum til sölu að endingu selt hluti sína.
30. Stefndu hafna því að leitast hafi verið við að sniðganga forkaupsrétt áfrýjenda. Um hafi verið að ræða félagsbundinn forkaupsrétt sem heimilt hafi verið að fella niður með breytingum á samþykktum stefnda Nesvalla íbúða ehf. Slík ákvörðun hafi verið tekin með lögmætum hætti á aðalfundi félagsins 9. maí 2022 en eftir það hafi hvorki áfrýjendur né aðrir hluthafar notið forkaupsréttar. Fyrir það tímamark hafi forkaupsréttur hins vegar enn ekki verið orðinn virkur.
Niðurstaða
31. Svo sem rakið er í hinum áfrýjaða dómi lýkur rétthæfi manns er hann deyr. Tekur dánarbú hans þá við öllum fjárhagslegum réttindum sem hann átti eða naut á því tímamarki nema annað leiði af réttarreglum, löggerningi eða eðli réttindanna, sbr. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 20/1991. Samkvæmt 3. mgr. sömu greinar nýtur dánarbú hæfis til að eiga og öðlast réttindi og hæfi þess til að bera og baka sér skyldur helst þar til skiptum þess lýkur endanlega eftir því sem mælt er fyrir í lögunum. Af þessu leiðir að eftir að skiptum bús lýkur nýtur það ekki lengur hæfis til að bera og baka sér skyldur að lögum.
32. Fyrir liggur að einkaskiptum á dánarbúi Jóhanns Péturssonar lauk þegar sýslumaður staðfesti einkaskiptagerð 2. apríl 2014, sbr. 1. mgr. 95. gr. laga nr. 20/1991. Sú staðfesting var ekki háð fyrirvörum og því endanleg í skilningi 3. mgr. 2. gr. laganna. Með henni hætti dánarbúið þar af leiðandi að vera til sem sérstakur lögaðili með hæfi til að eiga réttindi og bera skyldur að lögum. Með sama hætti lauk þá forræði erfingja á hagsmunum búsins og hvers kyns umboði sem þeir kynnu að hafa falið tilteknum manni til að koma fram af hálfu þess, sbr. 1. og 2. mgr. 85. gr. laganna. Sjónarmið áfrýjenda um að skýra beri ákvæði laga nr. 20/1991 svo að einkaskiptum teljist ekki lokið ef skilyrði reynast síðar vera til endurupptöku þeirra eiga sér hvorki stoð í fyrirmælum laganna né framkvæmd þeirra.
33. Eftir lok einkaskipta voru það erfingjar Jóhanns Péturssonar, en ekki dánarbú hans, sem báru ábyrgð á hugsanlegum skuldbindingum þess, einn fyrir alla og allir fyrir einn, og þá án tillits til þess hvort þeim var kunnugt um þær áður en skiptum lauk, sbr. 5. tölulið. 28. gr. og 97. gr. laga nr. 20/1991. Kæmu síðar fram eignir sem hefðu átt að koma til skipta en gerðu það ekki gátu erfingjar óskað eftir endurupptöku skipta við sýslumann samkvæmt nánari fyrirmælum 2. mgr. 95. gr. laganna. Einungis með útgáfu slíks leyfis sýslumanns til einkaskipta á grundvelli þeirrar umsóknar gátu þeir að nýju fengið í hendur forræði búsins og í sameiningu orðið bærir til að ráðstafa hagsmunum þess, sbr. 1. mgr. 85. gr. laganna.
34. Áður er rakið að búseturéttur Jóhanns heitins kom ekki til skipta þegar einkaskiptum á dánarbúi hans lauk á árinu 2014. Hlutafé í stefnda Nesvöllum íbúðum ehf., sem komið hafði í stað kröfu vegna búseturéttargjalds, var því enn skráð á dánarbú hans í hlutaskrá þegar því var lýst yfir af hálfu lögmanns á aðalfundi félagsins 9. maí 2022 að forkaupsréttur yrði nýttur. Var sú yfirlýsing beinlínis gerð í nafni dánarbúsins og án nokkurrar tilvísunar til áfrýjenda sem erfingja Jóhanns eða hagsmuna þeirra á þeim grunni. Hinu sama gegndi um tilkynningar lögmannsins um nýtingu forkaupsréttar til einstakra hluthafa 13. sama mánaðar. Það var hins vegar ekki fyrr en 7. júní sama ár sem skipti dánarbúsins voru endurupptekin með leyfi sýslumanns og hlutir þess færðir á nöfn áfrýjenda í jöfnum hlutföllum á grundvelli viðbótarskiptagerðar. Hafði forkaupsréttur hluthafa í félaginu þá verið felldur á brott úr samþykktum þess og var sú ráðstöfun áfrýjenda því án þýðingar fyrir sakarefni málsins.
35. Við framangreindar aðstæður í maí 2022 er ljóst að enginn var til þess bær að koma fram fyrir hönd „dánarbús Jóhanns Péturssonar“ og baka því nýjar skyldur. Þegar af þeirri ástæðu gátu fyrrgreindar yfirlýsingar fyrir hönd búsins um nýtingu forkaupsréttar ekki haft þau réttaráhrif sem áfrýjendur gera kröfu um að verði viðurkennd hér fyrir réttinum. Verður því staðfest niðurstaða hins áfrýjaða dóms um að sýkna stefndu af kröfu áfrýjenda.
36. Við ákvörðun málskostnaðar er horft til þess að af hálfu stefnda Nesvalla íbúða ehf. var ítrekað litið svo á að heimilt væri að eiga lögskipti við dánarbú og umboðsmenn þeirra, þar á meðal dánarbú Jóhanns Péturssonar, þótt skiptum í þeim hefði verið lokið og dánarbúin þar af leiðandi ekki lengur hæf til að bera réttindi og skyldur að lögum. Einnig bera gögn málsins með sér að fyrirsvarsmaður stefnda Nesvalla íbúða ehf. hafi við kynningu á samkomulagi við stefnda P190 ehf. 29. mars 2022 ítrekað gefið til kynna að hluthafar nytu forkaupsréttar og gætu gengið inn í framkomið tilboð. Í þessu ljósi þykir rétt að málskostnaður falli niður á öllum dómstigum.
Dómsorð:
Hinn áfrýjaði dómur skal óraskaður um annað en málskostnað.
Málskostnaður fellur niður á öllum dómstigum.