Fara beint í efnið

Hæstiréttur

Mál nr. 22/2026

Mánudagurinn 1. júní 2026

A og B (Guðbjarni Eggertsson lögmaður)

gegn

C hf. og TM tryggingum hf. (enginn)

Lykilorð

Kærumál. Hæfi dómara. Vanhæfi

Reifun

Staðfestur var úrskurður Landsréttar þar sem hafnað var kröfu A og B um að þrír landsréttardómarar vikju sæti.

Dómur Hæstaréttar

1. Mál þetta dæma hæstaréttardómararnir Benedikt Bogason, Ása Ólafsdóttir, Karl Axelsson, Sigurður Tómas Magnússon og Skúli Magnússon.

2. Sóknaraðilar skutu málinu til Hæstaréttar með kæru 6. maí 2026 sem barst réttinum 11. sama mánaðar en kærumálsgögn bárust 18. þess mánaðar. Kærður er úrskurður Landsréttar 24. apríl sama ár þar sem hafnað var kröfu sóknaraðila um að landsréttardómararnir Kjartan Bjarni Björgvinsson, Kristbjörg Stephensen og Kristinn Halldórsson vikju sæti í málinu. Kæruheimild er í b-lið 1. mgr. 167. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

3. Sóknaraðilar krefjast þess að hinum kærða úrskurði verði hrundið og breytt á þá leið að fyrrgreindir landsréttardómarar víki sæti. Láti varnaraðilar sig málið varða fyrir Hæstarétti gera sóknaraðilar kröfu um kærumálskostnað.

4. Varnaraðilar hafa ekki látið málið til sín taka fyrir Hæstarétti.

5. Með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar verður hann staðfestur.

6. Kærumálskostnaður fyrir Hæstarétti fellur niður.

Dómsorð:

Hinn kærði úrskurður er staðfestur.

Kærumálskostnaður fyrir Hæstarétti fellur niður.